Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 36
HEILDARSTIG LANDSMÓTSINS
Frjá. Sund Borðt. Glíma Júdó Starfsí. Blak Bridds Fiml. Handb. Kn.kv Kn.ka. Karfa Skák Samt.
UMSK 86 58 15 - - 37 9 27 11 13 19 31 4 25 335
HSK 94 54 4 3 3 41 13 33 1 11 5 11 4 7 284
UMSE 90 - 4 - - 43 3 14 - - 17 27 - 17 215
UMSB 78 46 12 - - 25 - 23 - - - 11 13 3 211
HSÞ 70 34 12 5 - 39 5 - 3 7 9 11 4 5 204
UMFK 50 - 9 - 1 25 1 29 9 9 - 37 17 13 200
UÍA 62 26 4 - - 32 11 25 5 3 11 11 9 - 199
USAH 82 10 - - - 35 - 7 - - 2 23 - 19 178
HSH 66 10 - - 5 16 - 10 - - 2 33 11 9 162
USVH 42 38 - - - 32 - 20 - - 13 11 - - 156
HSB 14 50 - - - 29 - 17 - - - 11 - 23 144
UMSS 74 - - - - 7 - - - - - 25 15 - 121
UDN 54 22 - - - 7 - - - - 7 11 - 15 116
UFA 46 - - - - 7 - 20 7 - - - - 27 107
UMN 14 30 - - - 21 - 1 - 1 - 11 19 - 97
USÚ 58 - - - - 7 - 3 - - 15 - - 1 84
HVÍ 14 10 - - - 19 - 14 - - - - - - 57
UMFÓ 14 42 - - - - - - - - - - - - 56
USVS 36 10 - - - - - 5 - - - - - - 51
UMFG - - - - 7 - - - - 5 - 35 4 - 51
HSS 14 - - - - 25 - - - - - - - 11 50
UV - - - 1 - 7 - 31 - - - 11 - - 50
UNÞ 30 - - - - - 7 10 - - - - - - 47
UGS - - 4 - - 7 - - - - - 11 - 21 43
HHF 36 - - - - - - - - - - - - - 36
UMFF 14 10 - - - - - - - - - 11 - - 35
UMFD 14 - - - - 16 - - - - - - - - 30
UÍÓ - - - - - - - - - - - 29 - - 29
UMFÞ - - - - - 7 - - - - - - - - 7
Sigraði glæsilega með spjótsár í kinn
Rafn viö stökkrána, sem er í 1,35 metra hæö
Íþróttahátíð USVS var haldin 17.-19.
ágúst síðastliðinn.
Keppnin fór fram í blíðskaparveðri, en
öll félögin innan USVS, fimm talsins,
sendu keppendur. Alls var keppt í átta
flokkum, fjölmörg héraðsmet voru sett
og ekki leyndi sér að áhugi á frjálsum
íþróttum fer ört vaxandi. Um tveimur
stundum áður en keppni átti að fara fram
á laugardeginum voru hástökkvarar
framtíðarinnar farnir að æfa stíft og
hvöttu hver annan. Einn þeirra, Rafn
Arnason, sem keppti í flokki hnokka 9-
lOára létþaðekki á sig fá þó hann hefði
fengið spjót í kinnina á æfingu fyrir
mótið. Hann setti héraðsmet í þremur
greinum, í 60 metra hlaupi, hljóp á 9,2
sekúndum, í boltakasti, kastaði 40,03 m
og setti glæsilegt met í hástökki, stökk
1,35 m. Auk þess sigraði hann í lang-
stökki, stökk 3,95 metra. Rafn sagðist
hafa byrjað að æfa frjálsar íþróttir þegar
hann var7-8 áraog sagðist vel geta gert
betur.
í flokki hnáta 9-10 ára sigraði Jóhanna
F. Sæmundsdóttir í sömu greinum og
setti héraðsmet í þremur þeirra, 60 m
hlaupi á 9,6 sek., langstökki, stökk 3,52
m og í boltakasti, kastaði 25,47 metra.
Y ngstu keppendurnir voru 8 ára og y ngri.
Þar ríkti nrikil spenna og voru þau sum
hver að keppa í fyrsta skipti, jafnvel að
reyna sig í fyrsta skipli. Jóhannes Guð-
mundsson, í flokki peyja, sigraði í 60 m
hlaupi á 10,4 sek og setti nýtt héraðsmet.
Ingvar Jóhannesson sigraði ílangstökk-
inu, stökk 3,13 m og setti einnig héraðs-
met.
Tátur létu sitt ekki eftir liggja og í 60
metra hlaupi varð fyrst Elín Osk Helga-
dóttir á I 1,6 sek., en hún keppti sem
gestur. Sigurvegari varð því Katrín V.
Hjartardóttir á 12,2 sek. og setti hún nýtt
héraðsmet. I langstökkinusigruðu stöll-
urnar Katrín og Áslaug Pálsdóttir og
stukku þær 2,60 metra og settu héraðs-
met.
Mörg flugu héraðsmetin, en það verður
spennandi að sjá hvort krakkarnir geta
gert enn betur á næstu Íþróttahátíð sem
áætlað er að halda á næsta ári.
36
Skinfaxi