Skinfaxi - 01.12.1990, Síða 7
L E I Ð A R I
Ágætu ungmennafélagar.
Á 27. sambandsráðsfundi
UMFI, sem haldinn var í
nóvemberbyrjun voru
samþykktar margar nrerkar
tillögur. Þar kom fram vilji
fundarmanna til þess að
ungmennafélögin legðuaukna
áherslu á umhverfismálin í
starfi sínu. Við höfum þegar beitt okkur í þessum málurn
og ég minni á verkefnið Tökum á - tökum til, átak sem
vakti þjóðarathygli. Tillögur þær í umhverfismálum sem
samþykktar voru á sambandsráðsfundinum í Nesjaskóla
eru því rökrétt framhald af starfi sem þegar hefur verið
unnið.
Við höfum nú búið í þessu landi í 1100 ár. Búseta okkar
hefur spillt því, en líka bætt. Og við eigum að halda áfram
að bæta landið okkar. Ábúð manna á ekki að vera röskun,
heldur eðlilegur hluti af náttúru landsins. Sá tími er löngu
liðinn að við komum fram við landið, eins og það sé
einnota. Það verður hér áfram, fyrir börnin okkar.
Á fundinum í Nesjaskóla var samþykkt tillaga sem miðar
að því að kanna möguleika á söfnun t. d. pappírs og
úrgangsplasts til endurnýtingar og endurvinnslu. Þetta er
hugsað þannig að það geti orðið félögunum tekjulind ef vel
tekst til og af verður. Einnig hvöttu fundarmenn stjórn
UMFÍ til þess að vera leiðandi aðili í að upplýsa almenning
um vörur sem væru skaðlausar umhverfinu og merki sem
auðkenna þær.
Ein er sú tillaga sem samþykkt var á sambandsráðsfundinum
og er beint til allra ungmennafélaga.
„27. sambandsráðsfundur UMFI, haldinn í Nesjaskóla 2.
og 3. nóvember 1990, samþykkirað stefnt skuli að því að
hvert einstakt ungmennafélag í landinu taki að sér
“fósturbarn” úrnáttúru landsins. Fósturbarnið verði tekið
í umsjá fyrstu helgi í júní 1991 og standi verkefnið yfir í
þrjú ár.
Hvert félag velur sér fósturbarn sem getur verið:
Fjara sem hreinsuð er reglulega.
Vegarkafli sent hreinsað er meðfram.
Land til uppgræðslu.
Gróðursetning í ákveðið landsvæði.
Hefting foks eða annað sem kemur landinu til góða.”
Ég hvet öll ungmennafélög til þess að vera með. Notið
veturinn til þess að velja ykkur fósturbarn. Sníðið ykkur
stakk eftir vexti og hafið verkefnið við hæfi og eftir
aðstæðum á hverjum stað. Ekkert er því til fyrirstöðu að
hafa samvinnu við önnur félög og ýmis verkefni koma til
greina svo fremi að þau bæti landið okkar.
Við skulurn veljafósturbörnin þannig að umsjón þeitTa og
vemdun stuðli að almennri þátttöku félagsmanna. Þar
kemur tvennt til. Annað er að styrkur ungmennafélags-
hreyfingarinnar liggur í almennri þátttöku í starfinu,
samtakamættinum. Hitt, og ekki síðra, er að þátttaka í
slíkum verkefnum glæðir vonandi þann skilning aðbúseta
manna sé eðlilegur hluti af náttúru Islandsog það sé eins
hægt að bæta landið og spilla því.
Ég óska öllurn ungntennafélögum gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Húsavík á Ströndum
Mattlu'as Sœyar Lýðsson
í síðast blaði Skinfaxa hóf göngu sína nýr
þáttur: Raddirlesenda. Hringterínokkra
lesendur og þeir beðnir að gefa álit sitt á
blaðinu. Hugmyndin er að koma á betri
tengslum við lesendur með það að
markmiði að Skinfaxi verði sá miðill
ungmennafélaga sem hann á að vera.
Lesendur eru hvattir til að senda línu til
blaðsins og láta íljós skoðanirsínar. Allar
frjóarhugmyndireru vel þegnar. Síminn
er 91-12546.
Erna Stefánsdóttir 14 ára
Sandfellshaga 1, Kópaskeri
„Mér finnst blaðið gott, ég er rnikill
lestrarhestur og renni yfir það þegar það
kemur. Það er ekki nauðsynlegl að hafa
sérstaktunglingaefni íblaðinu. Mérfinnst
nafnið ekki alveg í samræmi við efni
blaðsins. Ef brydda ætti upp á einhverju
RADDIR LESENDA
nýju í blaðinu finnst mér að krakkar ættu
að senda inn sögur sem gerst hafa í
íþróttum.”
Þorsteinn Benjamínsson, Þórðargötu 24,
Borgarnesi
„ Ég kaupi Skinfaxa vegan barnanna
minna. Blaðið er ágætt og mér finnst að
það ætti ekki að breyta nafni þess. Það er
mun skemmtilegra að sjá Skinfaxa með
þessu nýja útliti. Það sem þyrfti að gera er
að fara meira á svæðin til að safna efni í
blaðið. Fara til hinna ýmsu ungmenna-
félaga og skýra frá íþróttum barna og
ungl inga. Það er mjög gott fyrir krakkana
að fá untfjöllun um það hvað þau eru að
aðhafast í íþróttunum, þá sjá þau að það cr
lekið eftir þeim og verða ákafari í ástundun
íþrótta.
Mér finnst að það eigi ekki bara að tala við
þá íþróttamenn sem eru alltaf í blöðunum,
heldur lfka ungt og efnilegt fólk sem
stendur sig vel. Og það er nauðsylegt að
fara á þau svæði. þar sem starfið er í lægð.
Reyna að blása lífi í starfsemina með því
að fjalla um hvað fólkið, börnin og
unglingamir eru að aðhafast.”
Óskar Broddason, Framnesi
Blönduhlíð , Skagafirði
„Mérfinnst Skinfaxi góður. í síðastablaði
las ég auðvitað viðtalið við Pétur
Guðmundsson kúluvarparaogfannst það
gott. Það var skemmtilegt að viðtalið
birtist rétt áður en hann kastaði yfir
Islandsmetið. Urslitin frá Landsmótinu
tóku auðvilað silt pláss og mér fannst gott
að fá upplýsingar um alla röð keppenda,
ekki bara 1 .-3. sæti. Mér finnst allt í lagi
að hafa Skinfaxanafnið áfram á blaðinu.”
Skinfaxi
7