Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 29
G R E I N
Framtíðarskipulag Þrastaskógar,
náttúruperlu fjölskyldunnar
Hinn lB.októberárið 1911 gafTryggvi
Gunnarsson Ungmennafélagi Islands 45
hektara landssvæði úr Öndverðar-
nestorfunni í Grímsnesi til þess að rækta
þar skóg. Landssvæðið var nefnt
Þrastaskógur árið 1913, þar sem urmull
þrasta gerði sig heimakominn í
skóginum og gerir enn.
Árið 1912 var Þrastaskógur girtur og
hefur skógurinn verið á
náttúruminjaskrá síðan árið 1984. Árið
1913 hófst skipulagt skógræktarstarf í
skóginum, fræjum var sáð og hafin
gróðursetning ýmissa trjátegunda.
Trjátegundir eru orðnar tjölmargar, en
mest ber á sitkagreni og stafafuru, og
virðist Þrastaskógur vera kjörlendi fyrir
þá síðarnefndu. Margar fágætar
trjátegundir finnast í skóginum og má
þar helst nefna ýmsar þintegundir, s.s.
fjallaþin. Einnig finnst þar blágreni og
eru blágrenitrén með þeim hæstu, sem
finnast á landinu. Frá upphafi hafa um
180 þúsund plöntur, m.a. frá Canada,
Síberíu og Noregi, verið gróðursettar í
Þrastaskógi.
Þjónustumiðstöðin Þrastalundur liefur
verið í eigu UMFÍ síðan 1965. Þar
hefur verið rekin veitingasala og er
Þrastalundur mjög vinsæll
áningarstaður ferðalanga sem fara um
Grímsnesið.
Árið 1970 var íþróttavöllurinn í
Þrastaskógi fullgerður. Framkvæmdir
höfðu staðið yfir með hléum allt frá
1964. Það verk varmikil vinna, sprengja
þurfti hraunhóla, aka uppfyllingu og
gróðurmold ívöllinn,gerafrárennsIiog
leggja þökur. Þórður Pálsson
skógarvörður stjórnaði fyrst verkinu,
en síðar Hafsteinn Þorvaldsson, sem þá
var formaður UMFl.
Iþróttavöllurinn hefur verið mikið
notaður, þar hafa verið íþróttamót,
æfingarog völlurinn hefurveriðnotaður
sem leiksvæði og tjaldsvæði.
Ungmennafélaga hefur lengi dreymt um
að gera þessa náttúruperlu, Þrastaskóg,
að aðgengilegra útivistarsvæði,
samverustað fjölskyldunnar, þar sem
hægt væri að skoða yndislega íslenska
náttúru og dvelja við leik og
íþróttaiðkun. Á stjórnarfundi UMFI
sem haldin var í V ík í Mýrdal í maí 1988
var ákveðið að efna skyldi til
hugmyndasamkeppni unt framtíðar-
skipulag og notkun Þrastaskógar.
Hugmyndasamkeppnin varhaldin 1989
og alls bárust fjórtán mjög frant-
bærilegar tillögur.
1. verðlaun hlutu þeir Pálmar
Kristmundsson og Björn Skaptason.
Megintilgangur keppninnar var að fá
hugmyndir að sem fjölbreyttustu
athafnasvæði fyrir almenning,
sérstaklega hvað útivist og íþróttir
varðar.
Skipuð var nefnd til þess að vinna úr
þeim tillögum sem fram komu í
keppninni. I nefndinni áttu sæti Finnur
Ingólfsson formaður, Sæmundur
Runólfsson, Hafsteinn Pálsson, Egill
Heiðar Gíslason og Þórir Haraldsson.
Skilaði nefndin störfum l'yrir 27.
sambandsráðsfund UMFI, sem haldinn
var í Nesjaskóla 3. nóvember s.l.
Á fundinum voru niðurstöður
nefndarinnar kynntar, en Vífill
Magnússon arkitekt hel'ur fært þær í
myndrænt form.
Fundarmenn voru mjög ánægðir með
niðurstöðurnar og var samþykkt að fela
stjórn UMFÍ að fá fyrirliggjandi
teikningu um skipulag Þrastaskógar
samþykkta hjá skipulagsyfirvöldum.
Voru menn sarnmála um að vinna skyldi
áfram eftir tillögunum og stefnt skyldi
að því að hefja framkvæmdir á næsta
ári. Þá skyldi leggja áherslu á
göngustígagerð, uppsetningu hrein-
lætisaðstöðu í skóginum og uppbygg-
ingu verslunar- og þjónustuaðstöðu við
Þrastalund.
Ungmennafélagar hljóta að fagna
þessari samþykktoglítabjörtumaugum
til þeirra stunda sem þeir eiga eftir að
njóta í Þrastaskógi.
Samkvæmt samþykktinni verður
Þrastaskógi skipt í fjögur svæði:
1. Þrastalund.
2. Suðursvæði, sem er svæðið frá
Þrastalundi inn að íþróttavelli.
3. Miðsvæði, sem er íþróttavöllurinn
og næsta nágrenni.
4. Norðursvæði, sem ersvæðið norðan
íþróttavallarins.
Svæðið kringum Þrastalund verður
hannað þannig að það geti þjónað
Þrastaskógi og sumarbústaðasvæðinu í
nágrenninu. Gerterráðfyrirverslunog
veitingaaðstöðu, bensínstöð, bíla-
stæðum og aðstöðu fyrir veiðimenn,
starfsfólk og eftirlitsmann. Sérstök
áhersla verður lögð á þjónustu við
ferðafólk.
Byggingarnar verða hannaðar með það
fyrir augum að þær falli vel að
landslaginu, verði hagkvæmar í notkun,
ódýrar í byggingu og hægt verði að nota
þær allt árið.
Suðursvæðið, sem er að mestu skógi
vaxið, verður það svæði skógarins sent
verður látið halda þeirri mynd sem það
er í, þó verða settir göngustígar og
áningarstaðir og skógurinn grisjaður.
Á miðsvæði verður byggður UMFÍ-
skáli þar sem hægt verður að taka á móti
íþróttahópum til gistingar í
svefnpokaplássi. Þar verður búnings-
og snyrtiaðstaða,borðsalur,lítiðeldhús
og áhalda- og tækjageymsla. íþrótta-
völlurinn verður sniðinn að þörfum
fjölskyldunnar, þar verður hægt að
leggja stund á almenningsíþróttir, fara í
leiki og eiga góða stund við heilbrigða
líkamsþjálfun.
Á norðursvæðinu verður gert ráð fyrir
mörgum litlum rjóðrum sem verða ætluð
fyrir tjöld. Aðstaða verður fyrir
tjaldvagna, ásamt hreinlætisaðstöðu og
bílastæðum. Sumarhús UMFl verða
staðsett norðan tjaldsvæðanna og
bátavík verður staðsett við Álftavatn,
þar sem gert verður ráð fyrir að hægt
verði að stunda vatnaíþróttir.
Skinfaxi
29