Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 17
G R E I N 3. Róið í sel Tveir iðkendur setjast andspænis hvor öðrum, spyrna saman fótum sem eru bognir um hné, grípa höndum saman með krumlutak'í éða handsalstaki. Annarhefurróðurinn með bakfalli, svo að höfuð snertir nær völlinn. Hinn gefur mjúklega eftir með djúpri bolbeygju og hnébeygjum. Til baka og skipt. Ath.: Iðkendur togast á og spyrna svo þeir reisi hvorn annan á fætur. 4. Iðkendur snúi hægri hliðuni sainan. stígi vinstri fótum langt til hliðar, en jaðrar hægri fóta snertast, grípa höndum saman í krumlu eða handsalstaki. Togast á. Ath.: Handsalstakerfornkveðjanorræn og tákn um samkomulag. 6. Skaka strokk Iðkendur snúi bökum saman í stöðu, kræki samanörmum um olnboga. Annar beygi sig djúpt áfram. Hinn gefi mjúkt eftir og lyftist, beygi hné. Til baka og skipt. Ath.: Enda má skaksturinn með því að annar beygir sig svo djúpt áfram með varúð að hinn veltur um hrygg fram fyrir hann til stöðu. 7. Olnbogatog Við lok umsvifa í 6 snúi iðkendur saman hliðumjaðrarhægrifótasnertist. Hægri örmum krækt saman urn olnboga. Iðkendur grípi saman höndum fyrir framan sig. Togast á. Sjowbrmífok ^3 5. Iðkendur standi í sömu sporuni og í 4. Höndum gripið saman með sjómannstaki. Iðkendur leitast við að toga, ýta, gefa eftir og færa arm viðfangsmanns til beggja hliða, svo að hann lyfti il frá velli eða riði til falls. 8. Að olnbogast Staðiðsem 17, losaðarolnbogakrækjur, en armar beygðir um olnboga og höndum gripið saman á kvið. Hvor iðkandi leitast við að færa viðfangsmann sinn úr sporunum með því að beita olnboganum eða gefa snöggt eftir er hann sækir. 9. Að reisa horgemling Iðkandi sitji flötum beinum, dragifætur að sér, færi hægri arm undir hnésbót hægri fótar og grípi með hægri hendi um eymasnepil hægra eyra. Vinstri armur færist aftur fyrir bak og höndin grípi um buxnastrenginn. I þessari kryppluðu setu skal iðkandi rísatil stöðu á vinstri fót, án þess að sleppa tökum á snepli eða streng og hoppa þrjú hopp áfram. Iðkandi ráði nteð hvorri hendi hann grípi undir hnésbót, því með fætur er eins og hendur að maður beitir öðrunt meir. 10. Fara í eða úr brókinni hans skolla (Skollabrókin, t. d. hnapphelda) Iðkandi stendur og heldur fyrir framan sig sveig, gjörð eða hnappheldu, sem er hnesluð saman (þvermál rúntlega axlarbreidd eða mjaðmamál viðkom- andi) og skal þræða hana upp unt sig og færa sig úr henni. Skinfaxi 17

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.