Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 33
G R E I N 30 ár frá fyrstu ferð á Landsmót DDGU Sigurlið UMFÍ í Horsens. Fremri röö f.v.: Elín Högnadóttir UÍA, Jóna Ágústsdóttir UMFK, Heiöa Bjarnadóttir UMSK, Lísbet Alexandersdóttir UÍA, Helga Þ. Guðmundsdóttir UNÞ, Ragna Erlingsdóttir HSÞ, Jóhanna Gunnlaugsdóttir UMSE, og Dóra Gunnarsdóttir fararstjóri. Efri röö f.v.: Ólafur Unnsteinsson Iþróttakennari, Birgir Bragason UMFK, Hörður Gunnarsson HSH, ísleifur Karlsson UMSK, Guðbjörg Viðarsdóttir HSK, Kolbrún Rut Stefens UDN, Huld Aðalbjarnardóttir UNÞ, Jón Þ. Heiðarsson USAH, Steingrimur Jóhannesson UMFÓ, Bjarki Viðarsson HSK, Helgi Sigurðsson UMSS, Kristinn Þ. Bjarnason HSS, Orri Pétursson UMSK, Hjörleifur Sigurþórsson HSH, Þuríður Þorsteinsdóttir UMSS, Friörik Steinsson UMSS, Sigríöur Helgadóttir UMSE, Jóhann Hrjóbartsson USVS, Sigurbjörn Gunnarsson og Sigurbjörn Gunnarsson fararstjóri. Hinn 29. júní -1. júlí fór fríður flokkur UMFÍ-fólks til keppni á Landsmóti DDGU, sem haldið var í Horsens á Jótlandi. Þátttakendur á landsmótinu voru um 30 þúsund og var Margrét Danadrottning meðal heiðursgesta. Danska sjónvarpið sjónvarpaði frá mótinu og virtist áhugi almennings vera mikill. Ólafur Unnsteinsson sá um þjálfun hópsins, en hann hefur séð um samæfingar frjálsíþróttafólks UMFI í Reykjavík síðastliðin tvö ár. Þátttaka frjálsfþróttafólks innan UMFÍ í Landsmóti dönsku ungmenna- félaganna hófst fyrir rúmlega 30 árum. Þá voru það sigurvegarar á 11. Landsmóti UMFÍ á Laugum árið 1961 sem fóru á danska Landsmótið, sem haldið var í Vejle árið 1961. Ólafur var þar meðal keppenda, en á Laugum sigraði hann í 100 metra hlaupi, varð annar í langstökki og þrístökki, auk þess sem hann var stigahæsti karl mótsins. íslensku keppendurnir sigruðu í Vejle árið 1961 og það gerðu þeir einnig í Horsens 1990. Um 15 dönsk sambönd sendu keppendur á mótið í Horsens, en Islendingarnir kepptu þar sem gestir. Islendingarnir stóðu sig vel, en það var Hörður Gunnarsson frá HSH sem var fjölhæfasti keppandi mótsins og vakti hann mikla athygli með því að sigra í fjórum greinum: 100 m hlaupi á tímanum 11,2 sek., 400 m hlaupi á tímanum52,l sek., langstökki erhann stökk 6,64 m og 1000 m boðhlaupi. Frjálsíþróttakonur UMFI vöktu mikla athygli með því að sigra glæsilega. Hin kornunga Heiða Bjarnadóttir UMSK, sem er 15 ára gömul, sigraði í 100 m hlaupi á tímanum 12,8 sek. Þá sigraði Lísbet Alexandersdóttir UÍA í 800 m hlaupi á tímanum 2:31,5 mín., og einnig í 3000 m hlaupi á tímanum 11:11,9 mín. Eftir Landsmót DDGU kepptu íslendingarnir á frjálsíþróttamóti í Fuglsp, þar sem Hörður Gunnarsson hljóp 100 metrana á 10,9 sek og sá árangur var fyrirboði þess að hann var á leið íhóp bestu spretthlaupara landsins. Bjarki Viðarsson kastaði kúlunni 15,47 m og er hann nú kominn í hóp bestu kúluvarpara hérlendis. Það var samhent lið sem hélt heim á leið eftir góða og ánægjulega ferð til Danmerkur. Fararstjórar hópsins voru Dóra Gunnarsdóttir og Sigurbjörn Gunnarsson, en Pálmi Gíslason og Stella Guðmundsdóttir voru sérstakir gestir á mótinu og voru með hópnum mestallan tímann. Feröir sem þessar hafa löngu sannað gildi sitt og þeir unglingar sem kepptu eiga án efa eftir að vekja athygli á komandi árum. Skinfaxi 33

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.