Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 12
VIÐTAL Skokkari léttist úr 165 kílóum í 130 kíló Óli kokkur er hann oftast kallaður og fáir vita að hann heitir Óli Theódór og er Hermannsson. Ólier47áraog 1,90 á hæð og samsvarar sér mjög vel. Óli byrjaði að ganga og skokka í maí 1989 vegna þess að hann var orðinn svo máttlaus og ónógur sjálfum sér. Hann dreif sig í Hveragerði og fékk þar góða byrjun. „1 Hveragerði er mjög góð íþróttaaðstaða og gott fólk sem þjálfaði okkur, en eitt er víst að árangurinn er undirmanni sjálfumkominn,”segirÓli. Óli á heima í Mosfellsbænum og vinnur hjá Vegagerð rikisins á Artúnshöfða. Hann fer oft eftir hitaveitustokkunum heim, en sú leið er um 8 kílómetrar. „Mesta sem ég hef gengið voru 16 kílómetrar, þá labbaði ég frá Bergholtinu í Sætún á Kjalarnesi á klukkutíma og korteri. Mér finnst best að ganga og skokka til skiptis og ég passa mig á því að hita vel upp áður en ég byrja. Við konan förum oft saman í fjallgöngu og höl’um m.a. farið í átta daga gönguferð á Hornstrandir. I sumar fórum við í Jökulfirðina og vorum sex daga á göngu. Við gengum 7-8 tíma á dag og allt upp Óli kokkur á fullri ferð. í 10 tíma. Það er yndislegt að vera úti í náttúrunni og eftir hvert tjall og hverja brekku er maður auðvitað mjög ánægður. Með göngutúrunum æfi ég þrjá daga í viku í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ. Þar er ég með fjölda kvenna í leikfimi. Núnaerum við tveirkarlmennirnir. Það er fínt að vera með konunum, þær eru mikið harðari af sér en karlmennirnir, við erum oft linari í teygjunum. Það er svo gott að koma í íþróttahúsið og sundlaugina í Mosfellsbæ. Fólkið sem vinnur þarna er svo elskulegt og styður mig mjög mikið. Að hitta þetta fólk eykur líka áhuga manns. Áður en ég byrjaði að hreyfa mig var ég einsog múmía, fór í vinnuna og heim. Nú vil ég ekki missa af þessu og ég verð að fara út hvern einasta dag. Eg ætla að halda áfram eins lengi og ég get og ætla ekkert að gefa eftir. Ef ég gef eitthvað eftir þá finn ég fyrir því um leið. Þegar maður er búinn að byggja upp þolið þá er þetta ekkert mál. Menn eiga einfaldlega að drífa sig af stað,” segir Óli kokkur og skokkar eftir stokkinum. Menntskælingar koma bæjarbúum í gott form Menntskælingar á Egilsstöðum hafa staðið í stórræðum við að koma Egilsstaðabúum ígottform. Nemendur við íþróttabraut hafa gel'ið út bækling þar sem í eru haldgóðar upplýsingar um það hvernig hægt er að þjálfa líkamann og koma honum í gott form. Og þeir hafa ekki látið þar við sitja. Kennari þeirra, Hermann Níelsson, hefur farið með þeim í nokkur fyrirtæki á staðnum þar sem kynnt hefur verið holl hreyfing oglfkamsþjálfun. FariðvaríKaupfélag Héraðsbúa, þar sem starfsmenn fengu fræðslu í kaffitímanum. Hermann tók fólkið í örvunarleikfimi og nemendurnir kynntu bæklinginn um líkamsþjálfun. Starfsmönnunum var boðið að mæta um kvöldið til þess að kynna sér göngu- og skokkþjálfun og síðan boðið að taka þátt í leikfimi. Þessi kynning varð til þess að starfsmennirnir mynduðu með sér gönguhóp og hefur starfsmannafélagið nú tvo fasta íþróttatíma í íþróttahúsinu á viku. Á Egilsstöðum er rekin heilsuræktar- stöðin Táp og tjör og segir Hermann Níelsson að aðsókn hafi aukist eftir þessa kynningu. Þetta er merkilegt framtak og augljóst hve góð áhrif þessi kynning á hreyfingu hefur fyrir l'ólkið og starfsemina í bænum. „Breyttu um lífsstíl, hreyfðu þig meira, farðu út og viðraðu hundinn, hvort sem þú átt einhvern eða ekki,” segja menntskælingar á Egilsstöðum. 12 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.