Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 20
VIÐTAL
„Líkaminn er musteri Guðs og maður
á að gæta hans"
Rætt viö herra Ólaf Skúlason, biskup íslands
Herra Ólaf Skúlason biskup íslands
þekkja landsmenn allir. Ritstjóri
Skinfaxa lagði leið sína í biskupsstofu
til að ræða við Ólaf um ýmis málefni
ogfengust hjá honum áhugaverð og
fróðleg svör.
Ólafur er fæddur á bænum
Birtingaholti í Hrunamannahreppi,
þar sem afi hans, Ágúst Helgason og
MóeiðurSkúladóttirThorarensenfrá
Móeiðarhvoli bjuggu. Sigríður móðir
Ólafs var dóttir þeirra. Faðir hans,
Skúli Oddleifsson, var líka úr
Hreppum, en foreldrar hans voru
Oddleifur Jónsson og Helga Skúla-
dóttir og bjuggu í Laugarholtskoti.
Ólafur flutti tveggja ára gamall til
Keflavíkurogólstþaruppátrúræknu
heimili. Margir prestar voru í ætt
Ólafs og heitir hann eftir séra Ólafi
Briem á Stóra-Núpi. Oftsinnis var
hann kallaðurséraólafurogmávera
að það hafi haft nokkur áhrif á þá
ákvörðun hans að gerast prestur.
í Keflavík vareinungis barnaskóli, en
Ólafur lauk fullnaðarprófi 12 ára og
fór síðan í kvöldskóla séra Eiríks
Brynjólfssonar á Útskálum, sem hann
starfrækti í Keflavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla íslands 1952 ogeftir
það lá leið hans í Háskólann, þar
sem guðfræðin varð fyrir valinu og
útskrifaðist hann í maí árið 1955.
„Það var Asmundur Guðmundsson
frændi minn og biskup sem vígði mig til
prests 5. júní, árið sem ég útskrifaðist.
Þann 18. júní giftist ég Ebbu
Sigurðardóttur frá Siglufirði, dóttur
Maggýar Flóventsdóttur og Sigurðar
Tómassonar sem bjuggu fyrst á
Siglufirði. Viku seinna fórum við til
Norður-Dakóta í Ameríku, þar sem
hveitibrauðsdagarnir voru haldnir
hátíðlegir.
Við vorum á fimmta ár í Ameríku og
dvölin þar var mjög ánægjuleg. Eg hef
oft sagt að hún hafi verið á við nám við
merkan franthaldsskóla, svo óhemju
mikla reynslu fékk maður. Það var
mjög vel hlúð að ungprestum sem voru
að byrja. A hverju sumri var ég alltaf
nokkrar vikur í námi við háskóla vítt oa
breitt um norður- og austurhluta
Bandaríkjanna, þar sem tekin voru fyrir
ýmis atriði sem geta gagnast prestum
vel. Eg var ritari kirkjufélagsins, því
við þurftum að hafa prest sem gat bæði
skrifað ensku og íslensku. í krafti þess
fékk ég tækifæri til þess að taka þátt í
starfi lúthersku kirkjunnar um alla
Ameríku, sótti þing og ráðstefnur.
Vestra fæddust svo tvær dætur, Guðrún
Ebba og Sigríður.”
Getur lútersk trú manna verið
mismunandi?
„Marteinn Lúther gerði uppreisn gegn
páfavaldinu, sem vildi sníða trúnni
ákveðinn stakk. Hann sagði að kristinn
maður ætti að gera það upp við sig
hvernig hann læsi Biblíuna og það væru
ekki páfi og kirkjuþing sem ættu að
ráða því, heldur einstaklingurinn,
upplýsturaf samvisku sinni ogþekkingu
á ritningunni. í krafti þessa hefur verið
töluvert boðunarfrelsi. Þjóðkirkjan á
ekki að sníða kenningunni þröngan
stakk, heldur benda á hinar stóru
meginlínur, það gefur möguleika til
frávika. Því eins og við vitum þá vilja
sumir hafa messur og helgisiði
íburðarmikla, en aðrir vilja að messur
minni á samkomur og að helgisiðir séu
hafðir í lágmarki.”
Á nýafstöðnu kirkjuþingi gerðu
prestar og forystumenn kirkjunnar
margar áhugaverðar samþykktir.
Má þar nefna samþykkt um að
stuðla að heill og velferð barna og
unglinga. Þá var gerö
athyglisverð samþykkt um athvarf
fyrir börn í safnaðarheimilum.
Hvernig hyggst kirkjan hrinda
þessum hugmyndum í
framkvæmd, og hvert er álit þitt á
foreldrum í nútíma
velferðarþjóðfélaginu?
„Eg var einmitt að ganga frá bréfi til
allra presta, þar sem þeir eru beðnir að
taka höndum saman um þessa samþykkt.
Eg bað presta að ræða þessi mál á
fundum sóknarnefnda, ræða hvað
Ólafur og Ebba heima I stofu.
20
Skinfaxi