Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1990, Qupperneq 21

Skinfaxi - 01.12.1990, Qupperneq 21
VIÐTAL Ólafur á skrifstofu sinni. yfirstjórn hvers safnaðar gæti gert í þessu máli, ræða síðan við foreldra fermingarbarnaogfermingarbömin. Ég mæltist til þess, að þar sem hægt væri, yrðu safnaðarheimili opnuð betur og börn og unglingar boðin velkomin svo þau geti átt þar athvarf. Það er nauðsynlegt að fólk, hvar svo sem það á heima á landinu, viti af áhuga kirkjunnar að koma til móts við foreldra og aðra uppalendur og stuðla að sem farsælustu lífi fyrir börn og unglinga. Tilmæli eru til safnaða og presta að þeir fari á barnaheimilin, í skólana og bjóði upp á þessa þjónustu. Kirkjan hefur áhuga á því að þau safnaðarheimili sem eru í þéttbýli höfði til fólks, sem e.t.v. stundar ekki vinnu utan heimilisins, á þann hátt að það komi í safnaðarheimilin og hjálpi til, en nauðsynlegt er að einn ábyrgur aðili verði kallaður til starfa í safnaðarheimi linu til þess að veita þessu forystu. Nú er þess krafist að báðir foreldrar vinni úti. Ef kona tekur sér frí frá vinnu til að geta verið meira með barninu sínu og hugsað um það, þá spyr fólk: Fékkst þú ekkipössun fyrirbarnið? Þjóðfélagið gerir þær kröfur til fólks að það vinni mikið. Ungt fólk sem byrjar búskap vill eiga íbúð, bíl, sjónvarp og margt fleira. Það hvarflar ekki að því að það taki tíma að eignast hlutina. Fólk sem hefur fullt starf utan heimilis er þreytt þegar það kemur heim. Það segir sig sjálft að það er minni tími fyrir börnin. Börnin eru oft einhvern hluta dagsins utan forsjár pabbaog mömmu og við viljum gjarnan koma til móts við foreldrana með því að bjóða börnunum að koma í safnaðar- heimilin. Ég held að sá dagurkonti ekki að aðeins annað foreldrið vinni utan heimilisins. Við erum búin að venja okkur á að fara til útlanda, við viljum eignast hitt og þetta og auðvitað kostar það sitt.” Er samstarf milli kirkju og foreldra nægilega gott, hvernig hyggst kirkjan bregöast viö? „Ég held að það sé ekki nógu rnikið samstarf milli foreldra og kirkjunnar. Ég var prestur þegar sjónvarps- útsendingar byrjuðu á laugardags- og sunnudagsmorgnum og það hafði óhugnanleg áhrif. Sóknin í barna- messurnar datt alveg niður. Nú er þetta sem betur fer aftur að breytast og prestar í þéttbýli hafa sagt mér að í vetur hafi aðsókn í barnastarfið verið mjög góð. Þarna hefði ég viljað að kirkjan og foreldrar tækju höndum saman og hjálpuðu börnunum að átta sig á því hvort væri þýðingarmeira, að horfa á sjónvarpið á sunnudagsmorgnum eða taka þátt í barnastarfi þar sem börnin hlusta á sögur, syngja og fara í hreyfileiki. A flestum heimilum er myndbandstæki og hægt hefði verið að taka barnaefnið upp og sýna þeim það seinna. En sem betur fer er þetta nú breytt og börnin sjá sjálf hvað það er gott og gaman fyrir þau að koma í kirkjuna. Þaðánægjulegaviðbarnastarf kirkjunnar er það hversu margir foreldrar koma með börnunum sínum. Þegar ég var að by rja þá voru það afamir og ömmurnar sem kornu með börnin í barnamessurnar, en nú eru það foreldrarnir og hreint ekki síður pabbarnir sem koma með börnunum sínum og það finnst mér af hinu góða. Kirkjan hefur gengist fyrir starfi á eftirmiðdögum, sem er kallað TTT og er starf fyrir tíu til tólf ára krakka. Þá hafa svokal laðir mömmumorgnar verið vinsælir. A þessum morgnum hafa mömmur og pabbar getað komið í safnaðarheimilin, börnin hafa föndrað, teiknað og hlustað á sögur, meðan foreldrarnirtala saman. Þessirntorgnar hafa án efa verið til góðs, l.d. þeim konum sem eru bundnar heima og hitta fáa. Ég hef áhuga á að efla þetta starf.” Getur þú sagt mér frá samþykkt kirkjuþings um stofnun Fjölskylduþjónustu kirkjunnar? „Prestar hafa alltaf sinnt ráðgjöf og aðstoð og það fær enginn skilnað nema að tala við prest. En presturinn er ekki sérfræðingur á öllum þeim sviðum tilfinningalífsins eða efnahagslífsins semspilainn íþegarkemurtil skilnaðar. Okkur langar að opna miðstöð í byrjun næstaárs 1991 um f jölskylduráðgjöf og verður það gert í samstarfi Biskupsembættisins, Reykjavíku- rprófastsdæmis, Kjalarnessprófasts- dæmis og Amessprófastsdæmis. Um verður að ræða miðstöð sem prestar geta vísað fólki á, ef þeim finnst málið svo viðamikið að þeir ráði ekki við það sjálfir, eða það krefst svo mikils tíma að þeir geti ekki sinnt því. Venjan er sú að prestar tala við hjónaefni áður en þau eru gefin saman. Þessi fjölskylduþjónusta mun einnig sjá um þann þátt og býður hjónum að koma á hjónanámskeið þó svo að ekkert sé að. Fjölskylduráðgjöfin mun auðvitað kappkosta að þjóna þörfum allrar fjölskyldunnar og einnig börnum og unglingum. Skinfaxi 21

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.