Skinfaxi - 01.12.1990, Qupperneq 27
G R E I N
mótsstað, hvað loftþrýsting og loftslag
varðaði. Mjög fáir vissu um þessa
neðanjarðar íþróttamiðstöð, upplýs-
ingum um hana varhaldið leyndum og
yfirmenn Iþróttaskólans í Leipzig vissu
ekki einu sinni að hún væri til fyrr en á
þessu ári.
Ekki er ólíklegt að almenningur í
austurhluta Þýskalands fái nokkra óbeit
á íþróttum þegar uppvíst er um lokaðan
yfirstéttahring íþróttamanna.
Iþróttafólkið hafði ákveðin forréttindi
og miklum peningum var varið til
íþróttalegrar uppbyggingar, sem nýttist
ekki nema ákveðnum hópi íþrótta-
manna, þeim sem sköruðu framúr.
I ljósi þessa og þeirrar staðreyndar að
mörgum íþróttakennurum hefur verið
sagt upp störfum, hljóta að vakna ýmsar
spurningar. Spurningar um framtíð
þeirrar velgengni sem Þjóðverjar í
austurhl uta Þýskalands hafa átt að fagna
á íþróttasviðinu.
Það er ljóst að margir A-Þjóðverjar
hljóta að hafa óbeit á íþróttum, vegna
þess að drjúgur hluti peninga landsins
hefur farið í að byggja upp góða
íþróttaaðstöðu, en margt annað hefur
setið á hakanum.
Það hlýtur að vera nokkurt áhyggjuefni
Þjóðverja í austurhluta sameinaðs
Þýskalands hvort og hvemig íþróttalegri
uppbyggingu verði háttað nú eftir
sameininguna.
SÍMAVIÐTALIÐ
Körfubolti á Króknum
Málefni körfuboltans á Sauðárkróki hafa
verið blaðamatur að undanförnu.
Tindastólsmenn hafa verið sakaðir um
kaup á Islandsmeistaratitilinum í
körfubolta. Körfuknattleikslið Tinda-
stóls var í sjöunda sæti deildarinnar á
síðasta vetri. Félagið hefur fengið til
sín úrvalsleikmenn; Pétur Guðmunds-
son frá San Antonio Spurs, Einar
Einarsson frá IBK og Tékkann Ivan
Jonas. Þá hefur Valur Ingimundarson
spilað með liðinu í fjögur ár. Eru
Tindastólsmenn sigurvissir? Hvernig
er hugsað um yngri flokkana?
Páll Ragnarsson formaður Umf.
Tindastóls situr við símann.
Páll, hvaða áhrif telur þú að koma
þessara leikmann hafiástarffélagsins?
„Ég hef þá trú að ef vel gengur lyfti það
undir alla starfsemi félagsins. Ahugi
barna og unglinga verður meiri, tleiri
eru fáanlegir til starfa og auðveldara er
að sækja um stuðning til fyrirtækja og
stofnana.”
Hvað gerist þegar þessir menn liverfa
til annarra félaga?
„Ertu svo viss unt að þeir fari? Við
höfum trú á því að þessir leikmenn
verði áfram hjá okkur, þeim líkar vel og
þeir eru búnir að standa sig framúr-
skarandi vel. Því fer víðsfjarri að við
hugsum eingöngu um starfið í meistara-
flokki, við eigum núna Islandsmeistara
í 3. flokki kvenna og erum með lið í
öllum flokkum. Þessir leikmenn eru
þjálfarar í yngri flokkunum og eiga án
efa eftir að vinna gott starf þar.”
Hefur körfuboltaáhugi aukist á
Króknum?
„Strax í fyrra var mjög góð aðsókn á
leiki. Fólkið hér er mjög áhugasamt og
núna er íþróttahúsið alltaf troðfullt af
fólki sem kemur frá Akureyri, Skaga-
strönd og víðar. Aður en við fengum
íþróttahúsið voru engir leikir á veturna
og heimaleikir liðsins voru á Akureyri.
Að spila heima er gríðarlega mikilvægt
og nú eru spilaðir um tveir leikir á viku.
íþróttahúsið hefur gjörbreytt allri
starfsemi félagsins. Iþróttahúsin úti á
landi skipta bæjar- og sveitarfélög mjög
miklumáli, þau eru lífsnauðsynleg fyrir
landsbyggðina.”
Hvað finnst þér um þá miklu gagnrýni
sem þið hafið fengið um kaup á
leikmönnum eða meistaratitli?
„Þessi gagnrýni snertir mig lítið, ég læt
hanasem vind um eyru þjóta. Þaufélög
sem hafa gagnrýnt okkur hafa sjálf laðað
til sín góða leikmenn utan að landi. Þau
naga sig í handabökin af því að við
vorum einfaldlega fyrri til að fá Pétur
Guðmundsson hingað á Sauðárkrók.
I þessari umræðu má ekki gleyma því
að frá okkur hafa farið góðir leikmenn.
Ingimar Jónsson, sem leikur nteð IS, er
uppalinnhjáokkur. EyjólfurSverrisson
fór frá okkur til Stuttgart, og er strax
kominn í aðalliðið, það sýnir að hér er
vel starfað. Markmaður Akurnesinga í
knattspyrnu, Gísli Sigurðsson, er
hreinræktaður Skagfirðingur. Þó við
bítum frá okkur þá þarf engan að undra
það. En Islandsmeistaratitlarhafaaldrei
verið til sölu, svo fullyrðingar um kaup
okkar á meistaratitli eru úl í hött.
Við erum bjartsýnir og liðið ætti að geta
hreppt efsta sætið. Ég vil engu spá,
úrslitin koma í Ijós í fyllingu tímans.”
Skinfaxi
27