Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1990, Síða 36

Skinfaxi - 01.12.1990, Síða 36
FRÁSÖG N A „Skyrið er það langbesta sem ég hef smakkað” Segir Stefan Johansson, sænskur skiptinemi sem dvalið hefur á íslandi á vegum UMFÍ í þrjá mánuði Ég kom til Islands frá Svíþjóð í maímánuði, þaðan sem eplatrén voru í þann veginn að ná fullum þroska og vötnin að verða volg. Að koma til íslands var eins og að endurlifa vorið á ný. Ég steig á land á Keflavíkurflugvelli og leit með opnum munni og starandi augum yfir landslagið. Kuldinn og rokið næddi í gegn um sumarjakkann og grámyglulegt útsýnið blasti við. Rétt áður hafði ég setið í hlýrri og notalegri flugvélinni og spurt sjálfan mig. Hvernig skyldu nú þessir þrír mánuðir sem skiptinemi (IFYE) verða á Islandi? Þrír mánuðir á meðal Islenskra manna og dýra, í hinni margfrægu og umtöl uðu náttúru. Þegar ég sit nú hér og hripa niður minningar og hugsa til þess að brátt er komið að því að ég muni halda heim á ný, þá hríslast um mig ólýsanleg tilfinning og söknuður yfir öllu því sem ég hef upplifað og kynnst. Ég kem til með að sakna allra Ég kem til með að sakna allra þeirra fjölskyldna og einstaklinga sem ég hef dvaliðhjá. Ég sakna líka landsins, þess mikla víðlendis, hinna björtu og löngu nátta, sem urðu fyrir mig eins og endalaus dagur. Ég sakna hinna litlu fiskibáta og stærri skipanna og hinna kyrrlátu hafna. Þetta á líka við um trillukarlana sem þrömmuðu eldsnemma til sjós í sjóklæðum sínum. Það líður áreiðanlega langur tími þar til ég upplifi annað eins á næstunni. Að vera IFYE skiptinemi (International for youth exchange 4H) á Islandi er mjög skemmtilegt og hrífandi. Okkur gefast mörg tækifæri til að kynnast svo mörgu sem er svo ólfkt því sem gerist í Svíþjóð. Á Norðurlandi komst ég í snertingu við bændur og þeirra vorstörf, sem eru á vissan hátt svipuð og í Svíþjóð, en þó að mörgu leiti ólík þegar betur er að gáð. Bændur í Svíþjóð vinna ekki líkt því eins mikið og hér á Islandi. I Svíþjóð þurfabændurt. d. ekki svona ntargar og langar girðingar sem þarf að halda við. Við höfum nefnilega ekki svo margt fé sem rennur sjálfala og dreifir sér út um íjöll og firnindi. Sömu vélar, sama vandamál Á Norðurlandi kynntist ég hvernig mjólkursamsalan starfar á Akureyri og fylgdist með frantleiðsluferli á vörum sem þeir framleiða. Þar eru samskonar vélarog notaðareru íSvíþjóð. Á Islandi virðist vera sama vandamálið og heima með offramleiðslunaen þóergreinilega meiri hugmyndaauðgi í framleiðslunni hér og hér eru miklu fjölbreyttari vörur framleiddar. Hérert. d. skyr, mysuostur og fjölbreyttar súrmjólkurafurðir með alls konar bragðbættum efnum eins og kirsuberja-, jarðarberja-, kíví og fleiri bragðefnum. Skyrið er það langbesta sem ég hef smakkað. Ég kynntist líka mjög vel starfsemi kaupfélaganna á Akureyri, (KEA) slík starfsemi er líka til í Svíþjóð en ekki nándar nærri eins útbreidd og hér. A5 vera blindfullur Ég varð alveg dolfallinn þegar ég fór í fyrst skipti á sveitaball á Islandi. Ég stóð þarna stjarfur og starandi nteð tunguna lafandi af undrun og rankaði ekki við mér fyrr en allir voru farnir að glápa á mig. En hversvegna varð ég svona hissa? Jú í Svíþjóð er það algerlega bannað að vera undir áhrifum eða lykta af víni áður en farið er á dansleik. Á íslandi er leyfilegt að hafa með sér þær drykkjarvörur sem maður ætlaraðnotaáballinu. Otrúlegtímínum augum. Nú er ég farinn að venjast þessum sið. En ég er þó alfarið á móti því að nota áfengi. Fallegar litlar kirkjur á íslandi og kvöldin löng Ég hef verið viðstaddur fermingar og séð þann mismun sem ríkir í siðum milli landa okkar. Á Islandi eru fleiri kirkjur miðað við fólksfjölda en í Svíþjóð. Þið eigið miklu fleiri litlar og mjög fallegar kirkjur allt í kringum landið. I Svíþjóð er yfirleitt ein stór kirkja í hverjunt bæ. Fólkið heima þarf því oft að fara langar leiðir til að hlusta á orð guðs. Þegar ég kem heint mun ég eflaust eiga erfitt með að breyta þeim vana mínum, að vera á fótum langt fram eftir kvöldi. Hérbyrja t. d. fundir kl. 20:30, bíó kl. 21:00, leikhús kl. 21:00 og ýmsar æfingar á milli kl. 20:00 og 23:30. í Svíþjóð tíðkast þetta ekki og allt slíkt byrjar mun fyrr eða um kl. 18:00 og í fyrstunni var nijög erfitt fyrir ntig að vaka svona langt frameftir á kvöldin. Sjókvíaeldi og tómataveldi Að fóðra laxinn var mjög spennandi verkefni. Við sem sáum um þetta hittumst í húsi þar sem kerin voru. Þar 36 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.