Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 38
FASTI R ÞÆTTI R
Vísnaþáttur
Heilirogsælirlesendurgóðir. Núbirtist
ykkursíðari hluti Landsmótsvísna. Frá
Austurlandi, vísur Braga Bjömssonar
Surtsstöðum, og frá Suðurlandi, vísur
Jóhannesar Sigmundssonar Syðra-
Langholti. Ég vil beina því til lesenda
aðsendaþættinum vísur, limrurogfyrri-
eða seinniparta.
Landsmótin
Þurna mœtir frjálslegt fólk
fnllt af keppnisgríni,
sem er alið upp á mjólk
- ekki brennivíni.
B. B.
Við minnumst þeirra erfremstirfóru,
foringjanna hugumstóru,
er landsmótunum lyftu hátt.
En fimmtíu ára frœgðarsaga
fœrð er hér til vorra daga
og samtakanna sýnir mátt.
J. S.
Ungmennafélögin
Þetta er merkileg hreyfmg, sem mjakar sér
hœgt
en markvisst til starfa, og það erfrœgt
að meira er hennar mottó.
Hún víða sér hefur í krónur krœkt
og krœfust er allra í lottó.
B. B.
Af ungmennafélögum er ég mjög hreykinn
og íþeim frá fermingu búinn að vera.
Já, þeim tekst að sameina lífið og leikinn,
það landsmótin glögglega vitni um bera.
J. S.
Unga fólkið í dag
Það erfallegt ogflott,
það erfrjálslegt og glatt.
Það ber vellíðan vott,
það er vitað - og satt.
B. B.
Um unga fólkið allt gott vil ég segja
afáratuga reynslu góðra kynna.
Um ávirðingar œtla ég að þegja,
því eflaust má nú sitthvað að þvífinna.
J. S.
Tískan
Já, það er nú þetta með tískuna,
hún þrífst ekki innan um nískuna,
en kallar á eyðslueyri,
alltafmeiri og meiri,
eins og skrattinn á skollaþýskuna.
B. B.
Stutta tískan stendur fyrir sínu,
stundum þó hún valdi kvöl og pínu.
En úr því konurfótum stnumflíka
mérfinnst að karlar megi þetta líka.
J. s.
Trimm
Reynast engum örlög grimm,
eða heldur Ijón á vegi.
Þó þeir eigi að iðka trimm
eftir lyst á nótt sem degi.
B. B.
Allir vilja iðka trimm,
einkum þegar nótt er dimm.
Stœltir kroppar og styrkir "Iimm”
að stunda bœði skokk og “swim".
J. s.
Hjónabandið
Létt er nú að leysa afsér
- langi menn og þrái -
þetta band sem bundið er
bara einu jái.
B. B.
Bœði veldur blíðu og stormi
það band er kynin hnýta sér
í vinsœlasta félagsformi,
sem finna má í heimi hér.
J. S.
Hvað á maður til bragðs
að taka ef maður mætir
nakinni konu á fáförnum
vegi?
Vceri sú björt á brá sem morgunsólin
og broshýr eins og hún - að entri skúr,
ég mundi leiða hana bak við hólinn
og Iteld svo að égfœri líka úr.
B. B.
Undarleg spurning er nú þetta.
Ætli ég mundi nokkuð gera,
nema konunni klœðin rétta
efkarlmenn hún þorir að líta bera.
Ég óska lesendum gleðilegra jóla og
farsæls nýs árs, þakka liðið.
Sigurður Gíslason
38
Skinfaxi