Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 7
FOSTURBORNIN
Umhverfisverkefni
ungmennafélaganna „Fósturbörnin”
Þátttakan um 90% fyrstu helgina
Nú hafa ungmennafélagar um
allt land hafist handa við
þriggja ára umhverfisverkefni
sem nefnt hefur verið
„Fósturbörnin”.
Allt frá upphafi vega hefur
umhverfisvernd verið ung-
mennafélögum ofarlega í huga
og er skemmst að minnast
átaksins „Tökum á, tökum til”,
þegar ungmennafélagar
hreinsuðu meðfram 6000 km
svæði og um 400-500 tonn af
rusli söfnuðust.
Á sambandsráðs-
fundi UMFÍ haustið
1990 var ákveðið að
ráðast í enn veiga-
meira verkefni og
þeim tilmælum beint
til allra aðildarfélaga
UMFÍ að þau tækju
að sér „fósturbarn”
úr náttúru landsins.
Tillögur að „fóstur-
börnum” voru eftir-
farandi: Fjara sem
hreinsuð er reglu-
lega, vegarkafli sem
hreinsað er meðfram, land til
uppgræðslu, gróðursetning í
ákveðið landsvæði, hefting foks
eða annað sem landinu kemur
til góða.
í byrjun apríl var Guðrún
Sveinsdóttir ráðin verkefnis-
stjóri til að hafa umsjón með
verkefninu. Skinfaxihittihana
að máli til að fregna hvernig
hafi gengið.
220 fóstursvæði
Umhverfisverkefniðhófsthelgina 8.-9.
júní, livernig var þátttakan og hvað
var gert?
„Fyrir þessa fyrstu helgi höfðu alls 209
félög af 245 tilkynnt fósturbarn. Þessi
þátttaka er nálægt því að vera 90% og
mér finnst það stórglæsileg frammi-
staða. Auðvitað vonast ég til að þau
félög sem eftir eru, fylgi í kjölfarið
vegna þess að umhverfisvernd er
málefni allra og ekki síst yngri
kynslóðarinnar. Einstaka ungmenna-
félag hefur þar að auki tekið sér fleiri en
eitt fósturbarn, t.d. hefur Ungmenna-
félagið Efling í Reykjadal í S-Þing-
eyjarsýslu þrjú fósturbörn í sinni umsjá.
Alls hafa verið skráð 220 fósturbörn
vítt og breitt um landið og ég vonast til
þess að þau verði fleiri”.
Viljum stuöla að
hugarfarsbreytingu
Hverertilgangurinn nteð verkefninu?
„Aðaltilgangurinn með þessu verkefni
er að stuðla að hugarfarsbreytingu hjá
fólki og fá það til að bera meiri virðingu
fyrir umhverfinu og náttúru landsins.
Þetta verkefni er mjög vel til þess fallið,
af því að það á að standa yfir í þrjú ár.
Við viljum þannig fá börn, foreldra og
aðra til að vinna saman að skemmtilegu
og gagnlegu málefni. Fólk getur einnig
notað þetta tækifæri til að koma saman
og gera margt annað skemmtilegt og
bara láta sér líða vel úti í náttúrunni”.
I hverju fólust verkefnin?
„Verkefnin eru svo sannarleg
margbreytilega og mér finnst mjög
ánægjulegt hve þau spanna stórt svið.
Mörg félög tóku að sér hreinsun; fjörur
Félagar úr ÍK gróðursettu á félagssvæöi sínu í Fossvogsdal um 20 tveggja metra tré sem voru gjöf frá Kópavogsbæ.
Skinfaxi
7