Skinfaxi - 01.05.1991, Qupperneq 15
SAMSTARF UM UMHVERFISMAL
Góð fjáröflun fyrir
félögin
Hvers vegna þetta viðhorf?
„Þetta fyrirkomulag er báðum til
hagsbóta. Þessi verk þarf að vinna og
þaukostapeninga. Ef ungmennafélagar
nenna og geta unnið þessi verk, er það
góð fjáröflun sent félögin þurfa á að
halda til að viðhalda fjölbreyttu íþrótta-
og tómstundastarfi, sem síðan bætir
mannlífið og gerir strjálbýli og þéttbýli
byggilegra.
Það er öllum hollara að vinna fyrir sér
heldur en lifa eingöngu á styrkjum og
framlögum”.
Eðlilegt að
sveitarfélögin hafi
yfirumsjón með
umhverfismálum
Hvaða þáttum œtti sveitarfélagað hafa
yfirumsjón með á sviði
umh verfismála ?
„Sem flestum þáttum. Það er eðlilegt
að sveitarstjórnir hafi yfirumsjón nteð
umhverfismálum, þótt bæði
einstaklingar, félög og verktakar sjái
um framkvæmd hinna ýntsu þátta. I
minni sveit er vikuleg sorphirða í
höndum verktaka, sem vinnurfyrirþrjú
önnur stór sveitarfélög. Þannig nýtist
stór pressubíll vel. Einnig er notkun
ruslagáma allmikil á svæðinu, sem hefur
gjörbreytt öllu útliti við hafnir og
úrvinnslufyrirtæki. Brennsla úrgangs
og umhirða á losunarstað er einnig á
hendi þess verktaka sem flytur sorpið”.
Sameiginleg
sorphreinsun í
undirbúningi
Eru einhverjar fyrirhugaðar
framkvœmdirinnanhreppsinstengdar
umhverfismálum eða endurvinnslu?
„Já, nú er í undirbúningi hjá
Héraðsnefnd Eyjafjarðar sameiginleg
sorphreinsun, flokkun og losun á
urðunarstað fyrir mest allt
Eyjafjarðarsvæðið. lVleð frekari
samvinnu er betur hægt að flokka
hættuleg efni og einnig pappír, plast og
annað til endurvinnslu. Á Akureyri er
þegar hafin endurvinnsla á plasti sem
flutt er út. Einnig er brotajárni og
bílflökum safnað saman, pressað í vissa
stærð af böggum sem passa á
flutningabíla eða í skip.
Hjá mínu sveitarfélagi fór fram könnun
á því hvað kostar að brenna sorpi með
tilliti til nýtingu orkunnar í
fjarvarmaveitur. Þess má geta að
sveitarstjórnin hér beitti sér fyrir
framleiðslu á ruslagámum í mörgum
stærðum og gerðum. Það er
járniðnaðarfyrirtæki hér í sveit sent
frantleiðir þessa gáma í samvinnu við
danskt fyrirtæki. þ.e. efnið kemur
tilsniðið en er soðið hér og ntálað. Þar
nteð geta viðskiptavinirnir keypt gáma
í stærðum sem henta hverjunt og einunt
og með því bætt umgengni og umhirðu
allra í kringum sig,” sagði Sveinn
Jónsson oddviti að lokum.
ALLT FYRIR ÍÞRÓTTIR
Sleggjur
Kasthringir
Startblokkir
Stökkplankar
Hástökksáhöld
Stangarstökksáhöld
Grindur
Startbyssur og skot
Boðhlaupskefli
Merkivélar
Handboltamörk
Fótboltamörk
Vökvunarvagnar
Fótboltar
Handboltar
Kúlur
Á.ÓSKARSSON HF. AD
Þverholti Pósthólt 75 270 Mosfellsbæ Simi 666600/667200
Skinfaxi
15