Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 36
ÆFINGAÁÆTLUN
Frá Reykjavíkurmaraþoni 1986.
verða að auka grænmetisneyslu sína.
Menn verða að hafa nægilega mikla
orku til að stunda æfingar.
Daginn fyrir hlaup á fólk að borða létt
fæði, mikið af kolvetnisríkri fæðu svo
það hafi næga orku á meðan á hlaupinu
stendur. Það er ágætt að það líði 3-4
tímar frá því að málsverður er snæddur
og þar til hlaupið fer fram.
Drykkir
Þeir sem ætla að hlaupa hálft maraþon
og maraþon ættu að drekka ntikinn
vökva,t.d.ávaxtasafa,þremurtilfjórum
tímum fyrir hlaupið. Einum til tveimur
tímum fyrir hlaupið er gott að drekka
hálftvatnsglas. Þegaríhlaupiðerkomið
borgar sig fyrir hlaupara að fá sér að
drekka á hverri drykkjarstöð vegnaþess
að vökvatapið er það mikið, en samt
ekki meira en tvo eða þrjá sopa. Gott er
að hafa fyrir reglu að fá sér sykurdrykk
í fyrri hluta hlaups, en vatn í þeint
síðari, vegna þess að það tekur líkamann
lengri tíma að vinna úr sykrinum.
Byrjandi þarf líka að kunna að halda á
glasi þegar hann hleypur. Þegar
hlauparinn grípur glasið, sem ávallt er
pappaglas, á hann að brjóta fyrir opið
með því að grípa um það ofanvert,
þannig að ekki skvettist úr því á
hlaupunum.
Ef menn taka þátt í maraþonhlaupum í
15 stiga hita eða meira, þá er gott að
hellavatniyfirsigádrykkjarstöðvunum
til að kæla líkamann.
Þessi æfingaáætlun er ntiðuð við
mínútur, en hvað tekur það langan tíma
fyrirhlauparaaðfara 1 kmaðmeðaltali?
Það getur tekið trimmara 5-7 mínútur
að fara einn kílómeter, en fyrir þá sem
hafa æft eitthvað að ráði tekur það 4-5
mínútur. En besta ráðið til að kanna það
er að hlaupa ákveðna vegalengd, t.d. á
hlaupabraut, sem er 400 metra hringur,
hlaupa tvo og hálfan hring og mæla
tímann sem svo er hægt að miða við
þegar hlauparinn hleypur úti í
náttúrunni.
Gangi ykkur vel!
Skiníaxi
Besti árangur Ágústs Þorsteinssonar
Vegalengdir Tími Staður Ar
800 m 2:00.1 mín Reykjavík 1978
1500 m 4:01.1 mín Troisdorf, Þýskal. 1979
3000 m 8:48.6 mín Heilbronn, Þýskal. 1978
5 km 15:18.8 mín Troisdorf, Þýskal. 1984
10 km 32:17.6 mín Reykjavík 1978
Hálft maraþon 1:10.41 kl.st. Haag, Holland 1986
Marþon 2:29.07 kl.st. Manchester, England 1983
3000 m hindrun 9:36.5 mín Tárnby, Danmörk 1984
36
Skinfaxi