Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 6
Glímukóngur Islands ífullum skrúða ásamt Kjartani Lárussyni, þjálfara sínum. GLIMUKONGURINN Glímu- kóngurinn Nýkrýndur glímukóngur íslands og handhafi elsta og jafnframt eins merkasta verðlaunagrips hér á landi, Grettisbeltisins, er Jóhannes Sveinbjörnsson frá Heiðarbæ í Þingvallasveit. Hann er 22 ára gamall, fæddur 12. apríl 1970 og hefur verið sigur- sæll í glímu um langt skeið. Þegar hann keppti í fyrsta skipti í Íslandsglímunni hafnaði hann í fjórða sæti og varð í öðru sæti '89 og '90. Hann vann fyrsta glímu- sigurinn á fyrsta mótinu sem hann keppti á, fyrsta veturinn sem hann æfði glímu, þá 15 ára gamall. „Ég slysaðist einhvern veginn til þess að vinna minn flokk í landsflokka- glímunni og það hefur sennilega frekar verið vegna þess að ég var stærri og sterkari en hinir, en að ég hefði einhverja verulega tækni. Sá sigur hvatti mig auðvitað til þess að halda áfram og eftir það hvarflaði aldrei að mér að hætta. Næsta vetur á eftir var ég yfirleitt annar eða þriðji og vann enga sérstaka sigra sem ég man eftir. Um haustið I986 tókst mér að vinna Fjórðungsglímu Suðurlands og var þá VI F yngstur í fullorðinsflokki. En það glímumót sem mér hefur þótt einna eftirminnilegast var Bændaglíma Suð- urlands 1987, sem haldin er til minn- ingar um Sigurð Greipsson. Þá kepptu Arnesingar og Rangæingar. Fyrst fórum við Arnesingar halloka en svo tókst mér að leggja þá fimm Rangæinga sem voru eftir í liðinu þannig að við unnum. A þessari glímu voru margir áhorfendur og það er alltaf dálítið gaman og hvetjandi þegar fólk, sem hefur gaman af glímu, er að horfa á. Það eru mörg mót skemmtileg en þetta mót var með þeim skemmtilegri sem ég hef keppt á.“ Jóhannes hefur unnið Fjórðungs- glímuna í hvert sinn síðan ‘86, verið Islandsmeistari í sínum flokki sex sinnum og hefur því frá því hann byrjaði misst tvisvar af fyrsta sætinu. A lands- móti UMFÍ á Húsavík ‘87 varð Jóhannes annar í þyngsta flokki, bikar- meistari varð hann í unglingaflokki '88 og í fullorðinsnokki ‘92, vann Þorramót glímusambandsins í fullorðinsflokki '91 og '92 og Skarphéðinsskjöldinn hefur hann borið alls fimm sinnum. Hvað er það sem gerir mann að góðum glímumanni? „Þetta er erfið spurning, en ég held að það sé númer eitt að æfa glímuna vel og best að læra hana af þeim sem kunna hana betur en maður sjálfur. Það er lika nauðsynlegt að vera í sem bestu líkam- legu formi. Glímumenn verða að vera liðugir, þolgóðir og hafa góða snerpu. Til þess að vera í sem bestu alhliða formi er ágætt að stunda einhverjar aðrar greinar með og æfa lyftingar til þess að allir vöðvar vinni saman og það er ekkert atriði að geta lyft miklu. Þolið skiptir líka miklu máli. Ef glímur eru langar þá er maður fljótur að mæðast ef ekkert þol er fyrir hendi. Snerpan þjálfast með því að æfa viss brögð og vera snöggur að taka þau og svo er líka hægt að æfa spretti og hopp- æfingar. Ég lærði ýmislegt gott í sam- bandi við það þegar ég var í frjálsum hjá Þráni Hafsteinssyni á Laugarvatni. Hann Iagði mikla áherslu á snerpuna og benti okkur á að hlaupa bæði stutta spretti og lengri vegalengdir. Snerpan er oft úrslitaatriði því við- bragðið skiptir miklu máli. Eftir hverja æfingu er nauðsynlegt að teygja vel á vöðvunum. Það þýðir ekkerl að glíma alltaf við þann sama, menn læra fljótt hvor á ann- an og til að fá sem mesta fjölbreytni er best er að glíma öðru hverju við þá sem 6 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.