Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 20
ALMENNINGSIÞROTTIR íþróttir jafn mikilvægar og matur og næring / heil tíu ár hafa Austurlands- fraukur á Egilsstöðum stundað reglubundna líkamsrækt og síðan Táp og fjör var stofnað fyrir tveimur árum geta þær oftar gengið að skipulögðum æfinga- tímum. Skinfaxi hitli nokkrar hressar konur, þar sem þær voru af fullum krafti að púla og svitaperlurnar láku niður kroppana á meðan nokkur börn hlupu og hoppuðu í kring. Þær sögðust mæta til skiptis í léttari og erfiðari púltíma, en í vetur var reynt að koma af stað blönduðum tímum en það gekk ekki upp. „Þeir eru eitthvað hræddir við okkur, en við söknum þess að hafa ekki blandaða tíma.“ I Túp ogfjör koma konur og karlar á aldrinum 17-80 ára, menntaskóla- stelpur. húsmæður og annað vinnandi fólk. Börnin hafa oft verið tekin með af því að annars komast mæðurnar ekki út úr húsi og þar með fá börnin líka fyrstu reynslu sína af íþróttum. En qf hverju að vera að þessu sprikli, þegcir nóg er cið gera í vinnunni, við heimilisstörfm og íbarnastússinu? „Eg vinn skrifstofuvinnu og maður verður að gera eitthvað til þess að halda sér í formi. Þessi leikfimi gefur mínu lífi tvímælalaust jafn mikið gildi og það að borða og nærast." „Okkur er nauðsynlegt að samræma heimilisstörfin og vinnuna og finna síðan tíma til þess að þjálfa líkamann", fullyrðir ein. „Hjá mér varð þetta til þess að karlinn fór að elda matinn“, bætir önnur við. Hvciða rcíð getið þið gefið konum sem hcfo ekki enn drifið sig í einhverja líkams- rcekt? „Ef konur búa á stöðum þar sem ekki er boðið upp á neinar íþróttir þá eiga þær að drífa sig út að ganga eða skokka. Byrjunin gæti verið sú að nokkrar tækju sig saman og hittust á ákveðnum stað á ákveðnum tíma og mynduðu þannig gönguhópa. Þær verða auðvitað að byrja rólega ef þær hafa ekki verið í neinni hreyfingu og færa sig svo smám saman upp á skaftið.“ „Nei ég er ekki sammála að best sé að byrja úti, ég held að það sé betra að byrja innan dyra, þá öðlast maður meira öryggi og fara síðan út. Það er alltaf til bolur og einhverjar buxur til þess að vera í inni, en úti þarf maður að eiga útigalla og góða göngu- og hlaupaskó.“ Það er sem betur fer liðin tíð að konur haldi að til þess að geta látið aðra sjá sig í íþróttum þá þurfi þær að vera tággrannar og í flottum glansgöllum sem verða í tísku 1993. Það er sam- dóma álit þeirra kvenna sent hafa drifið sig af stað í líkamsrækt að það sé þeint mikils virði að nota ákveðinn tíma til þess að öðlast hreysti og vera í góðum og skemmtilegum félagsskap. 20 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.