Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 32
G A M L A R K E M P U R íþróttir öldunga íþróttir lengja lífið Það er stórkostlegt til þess að vita að íþróttaiðkun færist sífellt í vöxt hjá fólki sem komið er yfir 35-40 ára aldurinn. Það stendur þeim nær sem eru gamalkunnir íþróttamenn, en sífellt fleiri fara af stað, jafnvel þó þeir hafi ekki verið viðriðnir íþróttir að neinu marki. Þátttaka eldri íþrótta- manna í langhlaupum og víða- vangshlaupum er nú orðin al- menn um allt land, enda oft boðið upp á göngu- eða skokkvega- lengdir. Til er hópur fólks sem kallar sig öldunga og hefur í yfir tíu ár stundað íþróttir og tekið þátt í sérstökum öld- ungamótum hérlendis og erlendis. Olafur Unnsteinsson, íþróttakennari, sem nú heldur upp á þrjátíu ára íþrótta- kennarafmæli sitt hefur verið ein aðal- driffjöðrin í íþróttalífi öldunga. Skinfaxi leitaði hófanna hjá honum til að fræðast um þessa starfsemi. Hvernig fóru íþróttir öldunga af stað og hvernig hefur þetta þróast? „Öldungastarf í frjálsum íþróttum hófst af fullum krafti á árunum eftir 1980. Árið 1972 hafði Guðmundur Her- mannsson, KR, fyrstur manna keppt í öldungakeppni erlendis, en það var keppni á milli Evrópuþjóða og Banda- ríkjanna sem fór fram eftir OL í Munchen. Hann sigraði þar og átti um skeið heimsmet í kúluvarpi í 45-49 ára flokki, 18,48 metra. „Ég kynntist öldungastarfinu þegar ég var við nám í Danmörku 1973-75, þá ákváðu Danir að koma af stað meistara- keppni öldunga í frjálsum íþróttum. Meistarakeppni öldunga hafði þá farið fram í Bandaríkjunum frá 1969 og það- an er hugmyndin komin, en það voru Vestur-Evrópuþjóðir sem urðu fyrstar til þess að ryðja keppni í frjálsíþróttum öldunga braut.“ Árið 1980 ákvað hópur eldri íþrótta- manna að hrinda af stað mótum og nokkur mót fóru fram í Kópavogi á árunum 1980-85. Og árið 1985 var sér- stakt frjálsíþróttaráð öldunga stofnað innan FRI og undanfarin sex ár hefur Ólafur verið formaður ráðsins sem vinn- ur að framgangi öldungastarfsins. „Keppni öldunga hefur þróast ótrú- lega mikið og haldin er keppni þrisvar á ári, meistaramót innanhúss, kappamót öldunga og meistaramót utanhúss. Keppendur hafa verið allt að 70 að tölu og þátttakan er vaxandi og það er skemmtilegt til þess að vita að kepp- endur koma víða að af landinu. Öld- ungaráðið hefur hvatt til þess að einstök félög taki upp öldungakeppni einu sinni á ári og það starf er að þróast. Sérstök öldungamót hafa verið haldin hjá HSK, í Keflavík, Hafnarfirði, hjá HSH, hjá UIA og hjá Víði í Garði og nú er fram- undan mót hjá Norðlendingum. Innan öldungaráðsins eru skráðir um 120 meðlimir og starfið fer vaxandi, en því miður fær öldungaráðið enga sér- staka fjárveitingu frá ISI eða FRÍ til starfsins. Þróunin erlendis er að verða sú að styrkveitingar berast frá samsvarandi aðilum og ég vona að sú þróun verði einnig hér á landi. Starfið hefur hingað til verið rekið með félagsgjöldum, gjöldum fyrir þátttöku á mótum og stuðningi fyrirtækja. Dyggir stuðnings- menn öldungaíþrótta eins og Ólafur Thors og Einar Einarsson hafa sagt við mig, að ef ekki er hægt að styðja gamal- kunna íþróttamenn sem eru jafnvel í fremstu röð í heiminum, þá sé varla grundvöllur fyrir því að styrkja íþrótta- hreyfinguna í heild." Hver er árcingur okkar Islendinga miðað við aðrarþjóðir? „Árangur okkar undanfarin ár er með ólíkindum góður. Ég vil leyfa mér að segja að við öldungar erum að ná árangri sem er tiltölulega betri en þeir yngri eru að ná í dag. Flest okkar voru í fremstu röð fyrir áratugum síðan, Is- landsmeistarar og methafar og náðum góðum árangri erlendis. Nú höfum við tekið þátt í stórmótum og höfum staðið okkur það vel að komasl í úrslit í heims- meistarakeppni, á Evrópumótum, Norð- urlandamótum og þátttaka okkar hefur auðvitað verið mikil landkynning", segir Ólafur. Ólafur er 53 ára og hefur sjálfur keppt í um ljörutíu ár, en hann var sig- ursæll í 100 m hlaupi, langstökki og þrí- Ólafur, ásamt Al Oerter, fjórföldum OL-meistara í kringlukasti. 32 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.