Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.1992, Page 8

Skinfaxi - 01.05.1992, Page 8
KVENNAKNATTSPYRNA Hluti afkvenna- knattspymuliði Hattar. Hanna Veiga, Elva Rún, Iris, Hugrún og Ocidný Freyja. Fagrir fætur Hvatningarorð til þeirra sem langar að byrja: „Ekki hlusta á karlremburnar sem segja að maður fái Ijótar lappir afþví að spila knattspyrnu. “ V Kvennaknattspyrnulið Hattar á Egilsstöðum spilar í 1. deild í sumar. Þegar Skinfaxi leit inn á æfingu hjá þeim sögðust þær vera spenntar, en jafnframt líta á þetta sem reynslu eða kennslustund. „Það kemur í ljós hvort við höfum eitthvað í önnur lið að segja, en sterk- ustu andstæðingarnir eru ellaust IA, Umf. Breiðablik og ef til vill Valur. En við höfum það markmið að halda okkur í deildinni.“ Allar stunda þær jafnframt aðrar íþróttagreinar, en eru búnar að spila knattspyrnu í 3-4 ár og segja félags- skapinn mjög góðan. „Við erum allar vinkonur og styðj- um hver aðra. Það er löngu úrelt að tala um brussur í knattspyrnu, en það má þó segja að kvennaknattspyrnan sé grófari en karlaknattspyrnan. Við erum grimm- ari og meiri kjaftur á okkur. Og það er kannski af því að það örlar enn á því að litið sé niður á konur í knattspyrnu. Kvennaknattspyrnan hefur batnað mikið síðustu ár og þar með eykst áhuginn hjá stelpum að stunda hana. íslenskar knatt- spyrnukonur ættu að stefna að því að verða eins góðar og stelpurnar frá Bandarfkjunum, Noregi og Kína. Þær eru rosalega góðar og snöggar og ef þær kæmu hingað myndu þær rúlla karlalið- unum upp. Aðalvandamálið er að það er alls ekki nógu mikið gerl fyrir konur í knatt- spyrnu á íslandi. Þær eru oft á tíðum hafðar útundan eða til hliðar, bæði í blöðum og hjá sumum félögum." k 8 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.