Skinfaxi - 01.05.1992, Qupperneq 11
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR
Teygjuœfingar ent lykilatriði eftir skokkið.
var hér byrjaði hann á því að mæla út
leiðir en hafði sig aldrei í að hlaupa fyrr
en hann fór að hlaupa með Seltjarnes-
hópnum og hefur nú hlaupið bæði hálft
maraþon og heilt. Þetta er gott dæmi um
mann sem aldrei hreyfði sig neitt og
hefur nú komist þessar vegalengdir",
segir Hjálmar.
Hvað er hað sem haií' til hess að drífa
fólk afstað?
„Fólk verður auðvitað sjálft að
ákveða það að vera með, en ég held að
það væri gott að fá þekkta hlaupara eins
og Sigurð Pétur til þess að halda nám-
skeið og eins er ágætt að halda almenn-
ingshlaup eins og Egilsstaðamaraþon,
Krabbameinshlaup og Lionshlaup. Fólk
kemur til þess að taka þátt í þeim og
gengur kannski fyrst í stað, en það getur
orðið til þess að koma fólki af stað“,
segir Helgi.
„Það er líka sjálfsagt að leiðbeina
fólki ef það hefur áhuga á því. Við Helgi
erum á ákveðnum stað á ákveðnum tíma
og höfum alltaf sagt: komið og verið
með, það gerir ekkert til þó þið fylgið
okkur ekki eftir“, bætir Hjálmar við.
„Ef það líður einhver tími frá því
maður hefur hreyft sig þá verður maður
órólegur og fær einhvern fiðring. Það
þarf að hvetja fólk til þess að hreyfa sig
því það er gífurlega hollt. Við erum fyrst
og fremst að gera þetta okkur til
ánægju“, segir Helgi.
„Mér finnst orðið svo nauðsynlegt
að hreyfa mig að þegar ég er á ferða-
lögum erlendis þá tek ég með mér skóna
og stuttbuxurnar. Það er ágætt að byrja á
því að skoða umhverfið og átta sig á
helstu stöðunum með því að hlaupa um.
Og þó að ég hafi þessa reynslu, að
spila knattspyrnu og vera í hópíþróttum
þá er það þessi reynsla sem stendur upp
úr, að vera úti og hlaupa“, segir Hjálmar
og þeir skokkfélagar, Helgi og Hjálmar,
skokka af stað, alls ófeimnir við allt og
alla.
Krakkar úr 6. bekk Egilsstaðaskóla tóku þátt í Islandsmeistarakeppnihni í samkvœmisdönsum 1992. Hér
eru þaa fyrir utan íbúðir aldraðra á Egilsstöðum, en þar dönsuðu þau að viðstöddu fjölmenni.
Skinfaxi
11