Skinfaxi - 01.05.1992, Page 12
ALMENNINGSIÞROTTIR
íþróttir eldra fólks
„íþróttir halda manni ungum“
íþróttaiðkun ungra sem aldinna
færist sífellt í vöxt og út um allt
land má finna eldra fólk sem
hefur tileinkað sér einkunnarorð
heilbrigðs lífs og nýstofnaðra
íþróttasamtaka: íþróttir eru fyrir
alla. Hvað er líka yndislegra en
að hafa tækifæri til þess að
ganga eða skokka úti í guðs-
grænni náttúrunni og finna þá
vellíðan sem streymir um líkam-
ann.
Hjónin Rögnvaldur Erlingsson, 75
ára og Þórhildur Jónasdóttir, 62 ára búa
á Egilsstöðum og hafa bæði mikinn
áhuga á líkamsrækt. Þeirra hvatningar-
orð til eldra fólks eru:
„Það er alveg nauðsynlegt að hreyfa
sig, byrjið strax, en farið rólega af stað.“
Rögnvaldur hefur stundað frjálsar
íþróttir síðan 1935, en þó tekið hlé á
milli.
„Eg varð að taka mér frí vegna þess
að ég var með kalkaðan mjaðmarlið og
gekk haltur um tíma, en komst svo aftur
á skrið eftir að búið var að skipta um
kúlu í mjaðmarliðnum og mjöðmin háir
mér ekki neitt lengur. Þegar barnabörnin
mín fóru að keppa á sumarhátíð UÍA fór
ég með þeim og einfaldlega smitaðist.
Jóhann Jónsson kunningi minn frá
Seyðisfirði fór líka að hlaupa hérna og
þá datt mér í hug að reyna að hlaupa
með honum og hef verið á hlaupum
síðan.
Mér finnst best að hlaupa á morgn-
ana og ég geri það nokkuð reglulega, en
á veturna geng ég 3-4 km. Það er ekki
fyrr en tíð fer að batna á vorin að ég fer
inn á völl og hleyp nokkra hringi."
Rögnvaldur hefur tekið þátt í öld-
ungamótum sem haldin hafa verið á
Egilsstöðum og sett í það minnsta þrjú
Islandsmet í sínum aldursflokki.
„Það er gaman að hitta gamla félaga
á mótum og ég hef mjög gaman af
þessu“, segir Rögnvaldur og er ekki á
því að gefa neitt eftir þó svo að ntjaðm-
arliðurinn hafi gefið sig og gerviliður
komið í staðinn.
Rögnvaldur segir að hann hafi ekki
þurft að draga frúna með sér út, hann
hafi einfaldlega srnitað hana.
„Þegar við vorum að fara að hátta
kvöldið fyrir Egilsstaðamaraþon fyrir
tveim árum fór Rögnvaldur að tala um
að skokkið yrði daginn eftir. Þá ákvað
ég að vera með og ég hljóp 4 km. En
það er hins vegar ekkert gott að fara of
L M
verðlaunagripir, er ört vaxandi
þjónustufyrirtæki með glæsilega
en ódýra verðlaunagripi fyrir
íþróttafélög og félagasamtök.
• Litprentaður bæklingur
• Yfir 650 titlar á skrá
• Ágröftur 15-20 kr. pr. staf
• íþróttagreinamerki fyrir
allar greinar íþrótta.
Við sendum hvert á land sem er og erum ekkert mikið
lengra frá þér en telefaxið eða síminn. Þess
vegna er hægt að panta
verðlaunin heima í stofu.
I(LM
VERÐLAUNAGRIPIR
Siglufirði, sími 96-71866 (virka daga kl. 9-18)
hs: 96-71133 FAX 96-71 399
12
Skinfctxi