Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 16
KNATTSPYRNA Landsliðsmaður í knattspyrnu og handknattleik Það þykir í frásögur færandi þeg- ar landsbyggðarmaður í fjórðu deild er valinn í unglingalands- liðið í knattspyrnu. Austfirðingar geta nú státað af því að eiga mann í 18 ára landsliðinu. Ey- steinn Hauksson, 17 ára, frá Hetti á Egilsstöðum lyfti félaginu á hærra plan þegar hann var valinn í liðið, en hann er líka leikmaður í unglingalandsliðinu í handknattleik. Eysteinn æfði ekki handknattleik síðastliðinn vetur, en samt var hann valinn í I8 ára liðið. Veturinn 90-91 fór Eysteinn suður og spilaði með KR í þriðja flokki í handbolta og varð ís- landsmeistari með þeim, og þar komu þeir auga á hann. Að hann skyldi valinn í unglingalandsliðið í knattspyrnu er því mun stærri sigur fyrir hann, þar sem mun færri hafa séð hann spila. Skinfaxi var á ferð á Egilsstöðum í maímánuði og hitti nýbakaðan ung- lingalandsliðsmann. Fyrsti unglingalandsliðsmaðurínn í knattspyrnu ct Egilsstöðum, hvernig líst þérá? „Mér líst vel á og er ánægður með þetta. Það má segja að ég hafi stefnt að þessu síðan ég byrjaði að æfa, fjögurra ára gamall.“ Freyr Sverrisson úr Keflavík hefur þjálfað Eystein á annað ár. Hann var áður leikmaður í l. deild í Keflavfk og þjálfaði einnig yngri flokka. Hann sagði það mikinn áfanga og stórt stökk fram á við fyrir Egilsstaði að eignast ung- lingalandsliðsmann í knattspyrnu. „Málið var það að þegar valið fór fram á landsliðinu 14-16 ára, drengja- landsliðinu, þá var Eysteinn tilnefndur, en þá átti hann við þrálát meiðsli að stríða í nára og var auk þess á kafi í handboltanum. Hann var efins um hvað hann ætli að gera og gaf ekki kost á sér. Það er yfirleitt þannig að þegar strákar utan af landi eru valdir í drengja- landsliðið þá koma stóru félögin í Reykjavík og bjóðast til þess að aðstoða þá og þeir fara í skóla í Reykjavík og þar með ganga þeir í eitthvert Reykja- víkurfélaganna. Þannig gerist það að þeir eru komnir í önnur lið þegar þeir eru valdir og þar með eru það ekki liðin úti á landi sem eiga menn í unglinga- landsliði. Núna er það bara spurningin hvað okkur tekst að halda lengi í hann hérna fyrir austan þegar hann er kominn í Iandsliðið", sagði Freyr. Hverju spáir þú? „Ja, Eysteinn er íþróttamaður af lífi og sál. Hann hvorki reykir né drekkur og æfir oft meira en aðrir. Eg á von á því að stærri knattspyrnufélögin fylgist 16 Skinfa.xi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.