Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 17
KNATTSPYRNA
Eysteinn Hauksson.
vel með honum og hann á örugglega
eftir að fá hringingar.
Er hœgt að gera eitthvað til að sporna
gegn þeirri þróun að allir góðir leik-
mennfari suður?
„Þegar ég kom austur þá hafði
Höttur ekki náð neinum teljandi árangri
í knattspyrnu eða verið í toppbaráttu.
I fyrra hafði ég góðan mannskap og
okkur tókst að vinna riðilinn með því að
skora 47 mörk á móti sex sem við
fengum á okkur og komast í úrslit. Þetta
vakti ntikla athygli og þar með kom-
umst við á blað. Farið var að fylgjast
nteð því hvort hér væru menn sem gætu
eitthvað og við tilnefndum tvo og annar
komst inn.
Liðið þyrfti að komast einni deild
ofar, í þriðju deild, þannig að fólkið í
bænum áttaði sig betur á hvers konar lið
við erum með. Margir Egilsstaðabúar
eru aðfluttir og það hefur ekki skapast
þessi mikilvæga samstaða og ímynd að
Höttur sé bestur og enginn geli unnið
Hött.
Samstaðan er vel þekkt í Keflavík
og þar fylgjast allir með.
Ég get ekki íntyndað mér að reynt
verði að hindra það ef eitthvert félag
reynir að fá Eystein til sín og ég hef
auðvitað ekkert um það að segja þar
sent ég er einungis ráðinn hér í eitt ár.
Austfirðingar hafa átt A-landsliðs-
ntann, Njál Eiðsson, og Þróttur Nes-
kaupstað hefur líka átt unglingalands-
liðsmann einu sinni eða tvisvar. En þetta
er í fyrsta sinn sent Egilsstaðir eignast
rnann. En það er ljóst að Eysteinn á
enga möguleika ef Höttur færist ekki of-
ar í deildinni nerna þá að hann skipti um
félag og fari suður þar sem möguleik-
arnir eru mestir. Félagið sem Eysteinn
gengi til liðs við myndi slá tvær flugur í
einu höggi þar sem hann er lands-
liðsmaður í tveim greinunt. Fyrir
Eystein er knattspyrna einungis í fjóra
mánuði en með gervigrasinu í Reykja-
vík er hún ársíþrótt. Hér þyrfti að koma
gervigrasvöllur, annað hvort á Héraði
eða á Reyðarfirði. þannig að strákarnir
hér drægust ekki svona aftur úr“, segir
Freyr.
En hvað stendur hugur Eysteins til?
„Það sem ég hugsa fyrst og fremst
um núna er þetta surnar. Ég verð með
Hetti, hér er kominn nýr grasvöllur og
þjálfunin getur ekki verið betri. Og það
sem ég hugsa um er að koma Hetti upp
úr fjórðu deild en lengra er ég ekki
farinn að hugsa. En auðvitað myndi ég
ekki slá hendinni á móti freistandi til-
boðuin, að fara suður og spila þar með
öðrum flokki, en ég er ekki farinn að
hugsa það mál meira.“
Iframtíðinni, landsliðið, eða Itvað?
„Ja, ég stefni alltaf lengra, en tíminn
verður að leiða það í ljós og ntaður
verður bara að halda áfram á fullu
þangað til maður nær takmarkinu", segir
Eysteinn af sinni yfirveguðu rósemi.
Freyr Sverrisson
Hvernig knattspyrnu spilar Eysteinn?
„Þegar ég byrjaði að þjálfa 1' fyrra þá
kom hann á æfingu hjá mér og hafði þá
ekki verið í knattspyrnu í tvö ár og vildi
vera með og það varð fyrsta árið hans í
meistaraflokki. Ég sá strax að hann var
injög leikinn nteð boltann og komst síð-
ar að því síðar að hann hafði keypt sér
KSI knattspyrnuskólaspóluna og spilað
hana og hlaupið svo út á blett og þaul-
æft ákveðin atriði. Og þegar það var bú-
ið var hlaupið inn aftur og næsta atriði
tekið fyrir. Það var auðséð að Eysteinn
Skinfaxi
17