Skinfaxi - 01.05.1992, Blaðsíða 29
VERÐLAUNASOGUR
Ungu skáldin sem unnu til verðlauna
Þrefaldur verðlaunahafi
I síðasta tölublaði Skinfaxa voru
úrslit í smásagnasamkeppninni
birt og jafnframt sagan sem varð
í fyrsta sæti, Einu sinni var...
eftir Stefán Boga Sveinsson frá
Egilsstöðum. Stefán Bogi, sem
er fæddur 1980, er sannarlega
búinn að gera garðinn frægan því
síðastliðinn vetur vann hann til
verðlauna í þrem verðlaunasam-
keppnum. Hann fékk einnig
fyrstu verðlaun í Ijóðasamkeppni
í tímariti UÍA, Snæfelli, og hann
vann til verðlauna í teiknisam-
keppni Mjólkurdagsnefndar. I
viðtali sem Austri átti við hann á
dögunum sagði hann að rit-
gerðasamkeppnin hjá Skinfaxa
hefði verið skemmtilegust. Fyrir
utan smásagnasmíðar, Ijóðagerð
og teikningu þá stundar Stefán
Bogi knattspyrnu hjá íþrótta-
félaginu Hetti á Egilsstöðum.
En hvemig fór hann að þvf að semja
verðlaunasöguna?
„Það gerðist þannig að þegar ég
fékk Skinfaxa og las auglýsinguna um
keppnina þá las ég líka viðtalið við Pelé.
Þá ákvað ég að lofa Pelé enn meira. Ég
hef ekki oft samið sögur og aldrei tekið
þátt í keppni áður. Byrjun sögunnar kom
strax upp í hugann og ég skrifaði hana
strax niður. Síðan þurfti ég að hugsa
hvert framhaldið yrði. Eftir að ég sarndi
söguna sýndi ég Pétri Eiðssyni hana og
hann benti mér á ýmislegt sem ég gat
lagað, t.d. orðalag og annað. Ég held að
ég hafi verið svona eina kvöldstund að
sentja Einu sinni var..sagði Stefán
Bogi.
Stefán Bogi les mjög mikið og af
lestrinum segist hann fá ntikinn orða-
forða. Hann ætlar að halda áfram að
semja sögur og ljóð og er búinn að
kaupa sér sérstaka bók til þess að skrá
ljóðin í.
„Það getur vel verið að ég gefi
ljóðin einhvern tíma út, en það verður
langt þangað til því að bókin er 100
blaðsíður og ég skrifa eitt Ijóð á hverja
blaðsíðu."
Þetta ljóð sem hér fer á eftir samdi
Stefán Bogi sérstaklega fyrir Skinfaxa.
Eg horfi á himininn
Ég horfi á himininn
á blaði.
Öll þessi stóru lönd
svo smá,
að ég gæti eytt þeim
í hendi mér.
Eins og þau gætu eytt mér,
í raunveruleikanum.
I sumar ætlar Stefán Bogi að
spiia knattspyrnu og fylla út í
ljóðabókina sína þess á milli.
Skinfaxi óskar honum góðs gengis
á listabraut framtíðarinnar.
Stefán Bogi Sveinsson.
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir
er fædd árið 1979 og er frá Ytra-Ósi,
rétt utan Hólmavíkur. Hún vann annað
sætið í smásagnasamkeppninni fyrir
söguna Sundkeppnin. Anna stundar
bæði sund og fótbolta, en því miður
þurfa krakkarnir á Hólmavík að fara í
Bjarnarfjörð til þess að komast í sund
þannig að hún getur ekki stundað sundið
eins ntikið og hún vildi. Anna hefur oft
samið sögur en aldrei tekið þátt í keppni
áður.
Sagan um Sundkeppnina er um
stelpu sern var ntjög góð í sundi en eftir
að hún fór að drekka áfengi og reykja þá
fór henni að ganga illa. Anna segir að
hún hafi meðal annars fengið fræðslu
um skaðsemi áfengis og reykinga í
skólanunt. til dæmis hafi verið sýnd
teiknimynd frá Krabbameinsfélagi
Islands sem hafi haft góð áhrif.
En er einhver saga á bak við Sund-
keppnina?
„Nei það held ég ekki, ég settist bara
niður og skrifaði. Það getur þó verið, ég
þekki stelpu sent er þremur árum eldri
en ég og er rnjög góð í sundi og hún
reykir. Það getur verið að hún hafi verið
í undirmeðvitundinni þegar ég skrifaði
söguna. Ég veit að hún er alltaf að reyna
að hætta að reykja og ég hef áhyggjur af
henni."
Og hér kernur sagan hennar Önnu G.
Ingvarsdóttur.
Sundkeppnin
Rúna vaknaði við það að Patryggur
kötturinn hennar var að sleikja hana í
frantan. „Patryggur hættu þessu“, sagði
Rúna og setti Patrygg niður á gólf. Rúna
sem hét Hugrún Óskarsdóttir var 13 ára
görnul með ljóst, liðað hár niður á bak
og gráblá augu. Hún æfði sund og
frjálsar. Rúna átti einn bróður sem hét
Einar Karl og var 15 ára. Rúna og Einar
bæði drukku og reyktu. I gærkvöldi,
sem var laugardagskvöld, fóru þau bæði
á fyllirí sern endaði með því að Rúna
ældi á stéttina fyrir framan húsið hjá sér.
I dag átti að vera sundmót sent Rúna átti
að keppa á. Rúna var með höfuðverk
eftir gærdaginn. Þegar hún stóð upp og
hreyfði sig eitthvað fékk hún ógeðslega
rnikinn verk. „Jæja kisi minn, við verð-
um víst að fá okkur verkjatöflu", sagði
Rúna og labbaði inn í eldhús. Mamma
og pabbi Rúnu sátu við eldhúsborðið og
lásu dagblað. „Góðan dag Rúna mín".
sagði Jóhanna mamma hennar. „Hvað
vilt þú fá í morgunmat?", spurði hún.
“Verkjatöflu og eitt glas af vatni" sagði
Skinfaxi
29