Skinfaxi - 01.05.1992, Page 30
Rúna og settist niður við borðið.
„Verkjatafla og vatn skal það vera,“
sagði Jóhanna og náði í verkjatöflu fyrir
Rúnu. „En í eftirmat?", spurði Jóhanna.
„Ja, egg og flesk“, sagði Rúna. Þegar
Rúna var búin að borða eggin og fleskið
skrapp hún í heimsókn til Huldu vin-
konu sinnar. Þegar hún kom aftur heim
var klukkan orðin
þrjú og hún fór að
hafa sig til fyrir sund-
mótið. Rúna keppti í
100 m bringusundi og
50 m skriðsundi.
Rúna hafði átt heima
úti á landi til 10 ára
aldurs og þar hafði
hún æft bæði sund og
frjálsar íþróttir en
síðan hún flutti til
Reykjavíkur hafði
hún alveg hætt að æfa
frjálsar, en haldið
áfram í sundinu. Rúna
hafði líka byrjað að
reykja og drekka þeg-
ar hún flutti til
Reykjavíkur. Eftir að
hún flutti til höfuð-
borgarinnar varð hún
alltaf verri og verri í íþróttum og latari
og latari og gerði ekkert annað en hanga
í tölvu og horfa á myndbönd. Þegar
klukkan var orðin hálf fjögur fór Rúna
til Huldu og þær löbbuðu niður í Breið-
holtslaug, en þar átti sundmótið að fara
fram. Þegar þær komu í sundklefann
fóru þær í sturtu og klæddu sig í
sundbolina sína. Hulda ætlaði að keppa í
50 m baksundi. Rúna var að drepast úr
kvíða og þegar röðin kom að henni var
hún búin að hætta við að keppa, en
Hulda neyddi hana til þess að gera það.
Núna var Rúna kölluð upp í bringu-
sundið. „Gangi þér vel“, kallaði Hulda.
Rúna synti vel og hratt, en samt var
þetta versti tíminn sem hún hafði fengið
þegar hún var að keppa á móti. Rúna
varð í þriðja sæti í bringusundi, en í
sjötta sæti í skriðsundinu. „Hulda, veistu
í hverju ég er að pæla?“, spurði Rúna.
„Nei, ég veit það ekki nema þú segir
mér það“, sagði Hulda. „Hætta að
reykja". „Ha!“, sagði Hulda. „Já ég er
að pæla í hætta að reykja núna strax,
bíddu aðeins“, sagði Rúna og tók túss-
penna upp úr vasanum og byrjaði að
skrifa eitthvað á gangstéttina. „Bíddu
ekki kíkja, þú mátt sjá rétt bráðum.
svona nú máttu sjá“, sagði Rúna hreyk-
in. Hulda leit á gangstéttina og las:
„Eg undirrituð Hugrún Oskars-
dóttir hætti að reykja sunnudaginn
19. janúar 1992 og ég vona að ég byrji
aldrei aftur.
Hugrún Óskarsdóttir.“
„Eg trúi þessu ekki“, sagði Hulda.
„Núna byrjar þú að vera með Björk og
liðinu.“ „Nei, nei, þó að ég hætti að
reykja þá þýðir það ekki að ég hætti að
vera með vinum mínum“, sagði Rúna.
„Eigum við að fá okkur pylsu og kók?“,
spurði Hulda. „Já, já", sagði Rúna. Síð-
an fóru þær heim til Rúnu og sýndu
Jóhönnu verðalaunapeningana og auð-
vitað þurfti hún að verðlauna þær með
því að baka pönnsur og hita kakó. Þegar
þær voru búnar að troða í sig eins miklu
og þær gátu í sig látið voru þær alveg
að springa. Þær fóru að hlusta á plötur,
en svo þurfti Hulda að fara að drífa sig
enda var klukkan langt gengin í átta og
hún átti líka eftir að læra heima fyrir
morgundaginn.
Dagarnir liðu fljótt og þegar hér er
komið sögu er liðinn mánuður frá því að
Rúna hætti að reykja, fyrst hafði það
gengið illa og hún hafði borðað alveg
óhentjumikinn mat og þá sérstaklega
snúða. En svo fór hún að venjast þessu
og hana var alveg hætt að langa í síga-
rettu. Rúna fór í sund á hverju degi og
var farin að æfa hlaup og hástökk.
Næsta sundmót átti að vera eftir tvo
daga og Rúna æfði svo stíft að hún hafði
varla tíma til að fara í heimsóknir og
hún var tvisvar búin að lofa Huldu að
koma og í bæði skiptin svikið það og
núna var hún á leiðinni til Huldu til að
útskýra fyrir henni hvers vegna hún
hafði ekki komið. Þegar Rúna hringdi
dyrabjöllunni hjá Huldu var hún ekki
viss hvort hún myndi þora að standa
fyrir framan hana eftir að hafa svikið
hana tvisvar sinnum.
Arni sem var bróðir
Huldu kom til dyra.
„Nei hæ Rúna, langt
síðan þú komst síð-
ast“, sagði hann. „Er
Hulda inni? Eg þarf
að tala við hana“,
sagði Rúna. „Já ég
skal ná í hana“, sagði
Árni og hvarf inn í
húsið. Þegar Hulda
kont í dyrnar sá Rúna
hvað hún var leið.
„Viltu koma í bíó?“,
spurði Rúna. Þá
glaðnaði yfir Huldu.
„Já endilega“, sagði
hún, „á hvaða
mynd?“ „Þú ræður“,
sagði Rúna. „Hemm,
ég hef heyrt að Hrói
Höttur sé góð. Hvað finnst þér?“, spurði
Hulda. „Allt í lagi og ég borga miðana
og þú nammið, samþykkt?", spurði
Rúna. „Já, samþykkt“, sagði Hulda. Eft-
ir bíóið fóru þær í sund. í sundlauginni
sagði Hulda að Rúna hefði tekið mikl-
um framförum. Rúna varð dálítið
montin, en sagði svo að það væri allt því
að þakka að hún hætti að reykja. „Kem-
ur þú á sundmódð á sunnudaginn?",
spurði Rúna. „Ja ég veit það ekki,
kannski til að horfa á en ekki til að
keppa“, sagði Hulda. „Nú af hverju
ekki?“, spurði Rúna. „Æi ég er svo léleg
í sundi“, sagði Hulda. Ekki finnst mér
það,“ sagði Rúna, „Þú vinnur örugglega
í baksundinu, það er pottþétt. „Jæja þá
ég skal keppa í baksundi, en engu öðru“,
sagði Hulda. Næsti dagur leið fljótt og
núna var kominn sunnudagur. Mótið átti
að byrja klukkan fjögur eins og vana-
lega og klukkan hálf fjögur voru stelp-
urnar mættar á svæðið. Nú var það
Hulda sern var komin að því að hætta
við á síðustu stundu, en Rúnu tókst að
tala hana til. Núna var Rúna kölluð upp
til að keppa í 100 m bringusundi, hún
var í fyrsta riðli. Rúna náði besta tím-
anum í sínum riðli, bæði í bringusundi
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir.
30
Skinfaxi