Skinfaxi - 01.05.1992, Page 36
Vísnaþáttur
Hlaupið var áhorfendum ógleymanlegt,
þegar þetta létta náttúrubarn sveif fram-
úr keppinautum sínum. Þegar tímaverð-
irnir litu á klukkurnar sínar blikkuðu
þeir augunum nokkrum sinnum og
nudduðu þau. Klukkurnar sýndu 11
sekúndur sléttar, sem var nýtt Islands-
met.
Frá sigrí Sigurðar Jónssonar HSK í
400 m hlaupi á 14. Landsmóti UMFÍ á
Sauðárkróki 1971.
Sigurður var talinn sigurstranglegur
í hlaupinu. Honum hafði snemma verið
bent á að hann gæti hlaupið þessa
vegalengd og hann komst fljótt að raun
um að þar þýddi ekkert að óttast
kvalafullan endasprett. Maður yrði að
hlaupa á fullri ferð og láta skeika að
sköpuðu um endalokin, hvort sem
maður laumaðist ælandi út af vellinum
eða kæmist í mark. Þegar hlaupið fór af
stað mátti sjá að Sigurður einbeitti sér
að Trausta Sveinbjörnssyni sem var
talinn helsti andstæðingur hans. En brátt
kom annar andstæðingur í Ijós.
Austfirðingurinn Stefán Hallgrímsson
var á braut fyrir innan Sigurð og var allt
í einu kominn nokkra metra fram úr.
Sigurður herti á sér og fór að saxa á
forskot Stefáns, sem aftur á móti herti
sig enn, beit sig í Sigurð og hélt
ferðinni. Þeir hlupu nánast samhliða, sáu
varla hvor annan en heyrðu þeim ntun
betur þungan blástur. Þegar í markið
kom hafði Sigurði tekist að komast ögn
framúr, þó ekki lengra en svo að hann
var ekki viss og hann fékk ekki vissu
fyrir því að hann hefði sigrað fyrr en
hann sá framan í Þuríði systur sína.
Sigurður jafnaði Landsmótsmet Trausta
á Eiðum, hljóp á 52,5 sek en Stefán
hljóp á 52,6 sek.
í síðasta vísnaþætti, sem var raunar
sá fyrsti í langan tíma, voru settir fram
tveir fyrripartar. Aðeins einn. Jón Stef-
ánsson frá Dalvík, sendi botna svo leit-
að var til nokkurra hagyrðinga sem
brugðust vel við og árangurinn er þessi:
Vorið nálgast blómin blíð
birtu sólar njóta.
Jón Stefánsson:
Bráðum angar foldin fríð
og frjóin öngurn skjóta.
Bjarni Valtýr Guðjónsson:
Arsins ljómar töfratíð
tryggir vöxtinn skjóta.
Freygarður Þorsteinsson:
ísland mun því alla tíð
alls hins besta njóta.
Jóhannes Sigmundsson:
Sæluríka sumartíð
senn vér munum hljóta.
Karl Gunnlaugsson:
Ymsir þrauka enn um hríð
aðrir af iandi þjóta.
Pálmi Gíslason:
Okkar bændur betri tíð
brátt nú munu hljóta.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir:
Heyja vor og vetur stríð
í vatni blómin fljóta.
Sveinbjörn Beinteinsson
Glaðnar yfir grænni hlíð
gleymist flest það Ijóta.
Ýmsar stjórnir vinna vel
verkin flestir lofa.
Jón Stefánsson:
Og hýrga sig við hanastél
í heiðursmannakofa.
Bjarni Valtýr Guðjónsson:
Meðan hugans heita þel
hafnar gleymskudofa.
Freygarður Þorsteinsson:
Andúð mína enn ég fel
inni í litlum kofa.
Jóhannes Sigmundsson:
Sumir aðrir að ég tel
oft á verði sofa.
Karl Gunnlaugsson:
Þessi er lökust það ég tel,
þeir á verði sofa.
Pábni Gíslason:
Onefnda þó eina tel
í öld er mætti sofa.
Sveinbjörn Beinteinsson:
Aðalstörfin upp ég tel
eta, drekka, sofa.
Hagyrðingar, takið nú vel við ykkur
og sendið botna um hæl við þessa fyrri-
parta:
Ennþá hreliir erfið tíð
illt er því að kyngja.
Agústnóttin undur blíð
ýmsar vonir glæðir.
Með stuðlakveðjit,
Ingimundur.
Ljóðabókin Léttljóð
Nýlega kom úr ljóðabókin Léttljóð eftir Eyfirðinginn Birgi Marinósson. Þessi fjórða
ljóðabók er til sölu á skrifstofu Ungmennasambands Eyjafjarðar og er hún árituð af höfundi.
Þeir sem hafa áhuga á að eignast bókina geta hringt eða skrifað og látið senda sér hana í
póstkröfu, eintakið kostar 1500 krónur.
UMSE
Óseyri 2 - 600 Akureyri - sími 96-24477
36
Skinfaxi