Skinfaxi - 01.05.1993, Qupperneq 5
VORMENN
ÍSLANDS
Vormenn íslands, yðar bíða
eyðiflákar, heiðalönd.
Komið grænum skógi að skrýða
skriður berar sendna strönd.
Huldar landsins verndar vættir
vonarglaðar stíga dans,
eins og mjúkir hrynji hættir
heilsa börnum vorhugans.
Þannig hefst kvæði Guðmundar Guðmundssonar sem
hann tileinkar ungmennafélögunum. Já, eitt er víst að enn í
dag eiga vonnenn íslands verk að vinna við að klæða landið
skógi og ekki síður að hlúa að þeim gróðri sem fyrir er. En
nú má spyrja hvort ekki hafi eitthvað verið gert í þessum
efnum. Jú svo sannarlega og rniklu meira en margur hyggur
eins og kemur í ljós þegar skoðuð er samantekt Björns B.
Jónssonar um skógrækt á vegum ungmennafélaga á Islandi.
Þessi úttekt er mjög merkilegt framtak og niðurstaðan hefur
komið mörgum á óvart, ekki síst þeim sem telja að ung-
mennafélögin séu bara orðin íþróttafélög.
I samantekt Björns, sem við stjórnarmenn höfum fengið í
hendur, kemur meðal annars fram að 1992 voru 113 svæði
undir skógrækt hjá 96 félögum með aðild að UMFÍ - auk
þess sem mörg félög hafa tekið þátt í útplöntun hjá öðrum
aðilum svo sem skógræktarfélögum. Stærð þessara svæða er
370 hektarar, sem gerir rúmlega 3 hektara á félag og verður
að teljast harla gott.
En nú gæti einhver sagt sem svo að ungmennafélögin séu
hætt að sinna sínum skógreitum, þau hugsi ekki um annað
en íþróttir. Slík ályktun er ekki óeðlileg þar sem umfjöllun
um íþróttir er margfalt meiri en um aðra þætti í starfsemi
ungmennafélaga og skal hér nefnt eilt dæmi um slíkt. Árið
1990 fór UMFÍ af stað með verkefnið „Fósturbörnin”, sem
er verkefni á sviði umhverfismála. Mest umræða og
umfjöllun varð út af nafni þessa verkefnis en mun minna
rætt og ritað um tilgang þess og árangur. Nú, þegar síðasta
ár þessa verkefnis er runnið upp, þá liggur ljóst fyrir að yfir
80% aðildarfélaga UMFÍ, sem eru 267 með 44.600
félagsmenn, hafa á einn eða annan hátt tekið þátt í
verkefninu. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að það eru
ekki eingöngu íþróttir sem ungmennafélög sinna, þau láta
sér ekkert óviðkomandi sem er til uppbyggingar
einstaklingnum og til framfara fyrir land og þjóð.
Eitt verkefni enn verð ég að nefna, - ruslahreinsun
meðfram akvegum landsins. Það hefur um margra ára skeið
verið fastur liður í starfi margra ungmennafélaga að fara
einn dag á vori hverju og hreinsa allt rusl meötram vegum í
viðkomandi byggðarlögum. Það hefur oft verið talsvert
magn af alls kyns rusli sem slík hreinsun hefur skilað og
margur verið undrandi yfir því.
Eg nefni þetta hér því mér finnst vera orðin umtalsverð
aukning á því að rusli sé fleygt út um bdgluggann en þetta
var sem betur fer orðið sjaldséð fyrirbæri. Nú þarf að hefja á
ný áróður gegn þessum ósið áður en landinu verður drekkt í
áldósum og sælgætisbréfum - að ekki sé talað um tóma
smurolíubrúsa sem eru því miður farnir að sjást víða með
fram víðförnum leiðum. Hvar er slagorðið „hreint land -
fagurt land”? Vonandi er það ekki alveg rykfallið - en
þarfnast líkast til hreinsunar og þess að komast aftur út í
sólskinið.
Þar sem þetta tölublað er tileinkað félagssvæði UMSE
finnst mér rétt að vekja athygli á því mikla starfi sem unnið
hefur verið hér á svæðinu. Tvö undanfarin ár hefur verið
ráðist í framkvæmd stórra íþróttamóta og nú er þriðja mótið
í sumar. Þessu fylgir mikil vinna sem áhugafólk leggur
fúslega fram án nokkurs endurgjalds og einnig þjappar slík
vinna félögum saman, allir vilja gera sitt besta til að auka
traust á því starfi sem unnið er af ungmennafélögum. Slík
stórmót hafa einnig vakið forráðamenn sveitarfélaga til
umhugsunar um aðstöðu til iþróttaiðkunar. Veruleg breyting
hefur orðið til hins betra á svæði UMSE síðustu ár, má þar
nefna íþróttahús á Hrafnagili, íþróttasvæðið á Dalvík,
skíðasvæðið þar og nú er að komast í gagnið íþróttahús við
Þelamerkurskóla og sundlaug í byggingu á Dalvík. Þetta er
umtalsverð breyting frá því að hafa ekkert íþróttahús á
félagssvæði UMSE fyrir fáum árum. En eitt verða allir að
muna, - að slíku uppbyggingarstarfi lýkur seint og vonandi
verður búseluþróun í þá átt að hér geti þrifist öflugt starf
undir forystu ungmennafélaga uni ókomin ár.
Ég læt Guðmund Guðmundsson eiga síðustu orðin í
þessari hugleiðingu. - Islandi allt.
Vormenn íslands, vorsins boðar,
vel sé yður, frjálsu menn.
Morgunn skóga og rósir roða,
rækt og tryggð, er græðir senn.
Notið, vinir, vorsins stundir,
verjið tíma og kröftum rétt,
búið sólskært sumar undir
sérhvern hug og gróðrarblett.
Jóhann Ólafsson
Skinfaxi
5