Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 30
Fósturbörnin: Örfoka svæði grætt upp - af Umf. Reyni á Hellissandi Skógrœkt er afar mikilvcegur þáttur í uppgrœðslu landsins. Hið viðamikla verkefni UMFÍ, „Fóst- urbörnin, “ sem unnið hefur verið að síðan 1991, hefur víða skilað miklum og góðum árangri. Eitt ótal- margra dæma af því tagi er fóstur- barn Umf. Reynis á Hellissandi. Félagsmenn hafa tekið að sér græða upp örfoka svæði milli Hellissands og Rifs. Skinfaxi sló á þráðinn til Viðars Gylfasonar formanns Umf. Reynis og spurði hann hvernig uppgræðslan hefði gengið. Viðar sagði, að starfið hefði hafist fyrir rúmum tveim árum. Félagið hefði fengið styrk úr pokasjóði á hverju ári. ,,Við höfum keypt áburð og fræ og handdreift á nokkurn hluta svæðisins í senn. Eg giska á að svæðið sem við erum með í fóstri séu svona tveir ferkílómetrar. I hitteðfyrra tókst sáningin mjög vel hjá okkur og það kom vel upp. I fyrra tókst hún ekki eins vel, því veðrið var verra og þurrkarnir meiri. En árangurinn kemur betur í ljós í sumar. Við sjáum þegar mikinn mun á þessu svæði. Það er gaman að geta bent fólki á þetta, einkum þeim sem segja að það komi aldrei neitt til baka af því sem greitt sé í pokasjóðinn. Þessu fólki getum við bent á svæðið, sem er talandi dæmi fyrir gagnsemi sjóðsins.“ Viðar sagði, að ekki yrði látið staðar numið við uppgræðsluna þótt verkefninu ljúki sem slíku í ár. Félagsmenn tækju almennt þátt í þessu starfi. Fyrsta árið hefðu um 40 manns verið með og um 30 í fyrra. I sumar yrði haldin grillveisla fyrir þá sem tækju þátt. Viðar sagði enn fremur, að Untf. Reynir legði einnig skógræktarfélaginu á staðnum lið og gróðursetti tré á svipuðum slóðum og sáningin færi fram. „Það er mikill kraftur í landgræðslunni hér og svo verður örugglega áfram.“ Að þessum orðum sögðum skal á það minnt, að huga þarf að fósturbörnunum, þótt hinu eiginlega tímabili ljúki. Hvert einasta handtak, sem unnið er í þágu landgræðslu, hreinsunar og umhverfis- verndar yfirleitt, er ómetanlegt. Margt smátt gerir eitt stórt. Við skulum vera þess minnug og leggja okkar af mörkum til þess að fegra Iandið okkar. W w VISNAÞATTUR Ágætu lesendur. Brostu þá og brjóttu blað, Ekki reyndust þeir margir, sem sendu bæt við sælustundu. inn botna að þessu sinni. Raunar var ekki nema einn lesandi, Sveinn Sæmundsson, Og þá er það næsti fyrripartur. Hann sem botnaði fyrripartinn, er birtist í síðasta tölublaði. Hann sendi sendi þrjá er svona: botna. Þeireru eftirfarandi: Þegar haustið hallar að, hljótt ég óska og vona. Sumar rennur senn í hlað og sunna vermir grundu. Og nú skora ég á lesendur að bregða Ljóðadís þér læðist að, skjótt við og senda inn botna. Við leikur kátt um stundu. stefnum að myndarlegum vísnaþætti í næsta tölublaði. Best mun þá að beisla Glað og bregða á skeið um stundu. Kærar kveðjur, Ingimundur. 30 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.