Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 8
Orn Þórisson formaður UMSE:
Viljum efla tengslin
við félögin
„Innan UMSE eru félög, sem eru
einungis nafnið eitt. En si/o er aftur
mjög blómleg starfsemi í öðrum, ”
sagði Örn Þórisson formaður
Ungmennasambands Eyjafjarðar,
þegar Skinfaxi leit við hjá honum á
skrifstofunni að Óseyri 2 á Akueyri
einn sólbjartan laugardagsmorgun
ekki alls fyrir löngu.
Ekki er langt síðan Örn tók við
formennsku sambandsins af Þuríði S.
Arnadóttur. Hann var áður varaformaður
UMSE og þar áður meðstjórnandi. Hann
segist kominn inn í starfið ,,í gegnum
ieiklistar- og skemmtistarfið,” sem sé
raunar fjáröflunarhliðin á íþróttastarf-
seminni. Örn kemur úr Umf. Skriðuhrepps,
þar sem hann kynntist starfi ungmenna-
félagshreyfingarinnar fyrst. Hann var
formaður þess félags í nokkur ár. Og nú er
hann sumsé tekinn við formennsku í
UMSE og ræðir um virk félög og óvirk.
„I sumum tilvikum er alls ekki hægt að
blása lífí í þau félög, sem hafa verið óvirk.
Viðkomandi sveitarfélög eru orðin svo
fámenn, að það er enginn til að starfa í
ungmennafélögunum. Þau eru þarna að
Örn Þórisson formaður UMSE á skrifstofu
sambandsins að Óseyri 2.
nafninu til. Þau eru það dauð, að það er
ekki einu sinni hægt að fá þau til þess að
sameinast. Það er enginn áhugi hjá þeim
sem eru að nafninu til í forystu.
Það hafa verið ákveðnar þreifingar í
gangi hjá Möðruvallasókninni og Skriðu-
hreppnum um sameiningu. En það eru
skiptar skoðanir og menn spyrja sig hverju
sé verið að sameinast og hvað ávinnist við
það.”
-En svo eru önnur félög innan sam-
bandsins sem starfa afkrafti?
„Jú, sem betur fer. Meiri hluti
aðildarfélaganna er starfandi. Framtíðin,
Arroðinn, Æskan og Skriðuhreppurinn
hafa verið virk félög, en þau hafa beitt sér
á mismunandi sviðum. Umf. Skriðuhrepps
hefur einbeitt sér að leiklistarstarfi og
ýmsu á skemmtanasviðinu.”
-Hvað er helst fram undan hjá sam-
bandinu núna?
„Það er meistaramótið í sumar og svo
að sjálfsögðu landsmótið á næsta ári. Við
erum að hefja undirbúning fyrir þátttöku í
hinu síðarnefnda.
En stærstu verkefnin eru varðandi
fjáröflunina. Hún hefur gengið upp og ofan
og stendur í járnum, miðað við að reyna að
halda úti þeirri starfsemi sem við erum
með. Það má ekkert bera út af.“
Tengsl félaganna við
sambandið
-Hvernig hefur verið með tengsl félag-
anna við sambandið, hafa þau verið ntegi-
lega mikil?
„Eðlilega hafa félögin verið svolítið sér
á báti. En það vantar nokkuð upp á að þau
finni sig í sambandinu. Við ætlum að reyna
að breyta því viðhorfi. Framkvæmda-
stjórinn er nú ekki í fastri vinnu frá átta til
fjögur, heldur vinnur hann þegar hann þarf
að vinna, án þess þó að vera með ómælda
heildarvinnutíma í mánuði. Félögin geta
því beðið um hann á fundi og hafa meiri
aðgang að honum heldur en tíðkast hefur.
Þróunin hefur verið á þann veg, að
sumum félögunum hefur fundist sam-
bandið vera fyrir og að það sé dragbítur
t.d. á fjáraflanir þeirra. Einstaka taka svo
djúpt í árinni, að telja sambandið 18.
aðildarfélagið innan svæðisins.
Þetta er eðlilegt, þegar sambandið er,
vegna einhvers rekstrar, sem félögin finna
sig ekki í, að taka lottótekjur og aðra fjár-
8
Skinfaxi