Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 15
Við þurfum betri aðstöðu - Rætt við Jón Sævar Þórðarson þjálfara UMSE í frjálsum íþróttum Hann hefur um árabil helgað UMSE krafta sína. Það má segja að hann sé eins og sameiningartákn allra þeirra innan sambandsins sem stunda frjálsar íþróttir en hann hefur með höndum að búa alla þátttakendur 15 ára og eldri undir keppni og mót að vetri sem sumri. Hann leiðbeinir þeim og hvetur þá til dáða og frekari afreka. Þetta er Jón Sævar Þórðarson þjálfari. unum á miðsvæðinu og vonandi verður það til þess að efla íþróttastarfið í Glæsi- bæjarhreppi, Skriðuhreppi og Arnarnes- hreppi.“ Hlaupið á ganginum „A Hrafnagili höfum við aðgang að íþróttahúsi. A Akureyri er ég með æfingar væri að hlaupa þarna á gaddaskóm. Svo fór að við fengum ekki að vera þarna lengur vegna brunahættu, held ég. Það er svo sem ekkert við því að segja en við þetta þurfum við að búa. Vorið er versti tíminn, maí og fram undir miðjan júní. Þá eru húsin lokuð og útivellimir ekki komnir í notkun. Þá reynir á ímyndunaraflið. “ Á ísköldum maídegi, þegar snjóað hafði í fjöll sem byggð í Eyjafirði var hann spurður nokkurra spurninga um starfið á nýliðnum vetri, komandi sumri og stöðu frjálsra íþrótta um þessar mundir. „Það er góð hefð fyrir frjálsum íþróttum í Eyjafirði, - en UMSE nær yfir sveitir Eyjafjarðar utan Akureyrar. Grasrótar- starfið fer fram út í félögunum en til þess að sinna eldri þátttakendunum, 15 ára og eldri, hefur verið ráðinn þjálfari flestöll undanfarin ár. Starfi rnínu sinni ég að töluverðu leyti á Akureyri yfir vetrarmánuðina þegar krakkarnir eru komnir hingað í mennta- skólann og verkmenntaskólann. Þá er gott að halda hópnum sam- an en á sumrin eru krakkarnir út um allar trissur. Einnig er ég með tvær æfingar á viku á Hrafnagili. Að öðru leyti er þjálfunin mest í höndum hinna einstöku félaga en þau eru um tíu talsins sem hafa verið með frjálsar íþróttir að marki síðustu árin. Aðstaða þeirra er misjöfn eins og gengur. Hún er orðin mjög góð á Dalvík með til- komu nýja vallarins. Það er lfka þokkaleg aðstaða í nágrannabyggðarlaginu Árskógs- strönd en léleg annars staðar. Á sumrin verða krakkarnir að sætta sig við að þjálfa á túnum sem þeim standa ef til vill til boða. Á veturna safnast þátttakendur frá ákveðnu svæði saman eins og þeir sem búa framan eða sunnan við Akureyri og á Svalbarðsströndinni, en þau æfa á Hrafna- gili þar sem þau sækja jafnframt skóla. Á Dalvík koma einnig krakkar úr nágrenninu til æfinga. Nú er í byggingu íþróttahús við Þelamerkurskóla sem mun þjóna krökk- Jón Sœvar Þórðarson. í íþróttahöllinni en eina aðstaðan sem okkur hefur verið boðið upp á þar er í lyftingaklefanum. Af þeim sökum reyni ég að leggja áherslu á lyftingar, en inn í lyftingaæfingarnar reyni ég að blanda hoppæfingum og því um líku, sem unnt er að stunda í svo takmörkuðu rými. Ég þarf oft að beita hugmyndafluginu til þess að búa eitthvað til úr engu. Að vísu fengum við um nokkurra mánaða skeið í vetur að taka ræstingagang í höllinni undir hlaupabraut en hann er 35 metrar að lengd og 2,5 að breidd. Þetta var svona eins og rör. Við settum gerviefni á gólfið svo unnt Sumaraðstaðan - Hvernig er sumaraðstaðan? „Völlurinn á Dalvík er prýðilegur og nú er verið að kaupa áhöld á hann en slíkt hefur mjög verið sparað á völlunum alla tíð. Til dæmis hafa aldrei verið til stang- arstökksdýnur utan höfuðborgarsvæðisins, - nerna ef til vill með einni undan- tekningu. Slík dýna af bestu gerð kostar milljón og við hana bætast uppistöður og annar nauðsyn- legur búnaðar. Allt kostar þetta fjármuni en annaðhvort erum við í þessu eða ekki. k Okkur vantar völl hér í I suðurenda UMSE-svæðisins * og þá dettur mér helst Hrafna- gil í hug, en þar er fyrir ákveð- Pr_ Bætt aðstaða eflir áhugann - A hvað stefnið þið núna? „Við höfum verið í 1. deild í frjálsum undanfarin ár. Að sjálfsögðu er ætlunin að halda hlut sínum þar og reyna jafnframt að bæta hann. Landsmótið er á næsta ári og vissulega er það stórt verkefni fyrir liðið. Hvað einstaklingana varðar þá keppa þeir að sínum markmiðum sem eru misjöfn eftir því hvað þeir eru sterkir á sínu sviði. Margir íþróttamenn héðan eru búsettir í Reykjavík og jafnvel í útlöndunum, þess vegna er hópurinn býsna dreifður. Ég reyni eftir megni að fylgjast með hverjum og einum til að halda tengslunum því að þetta fólk keppir allt undir merkjum UMSE. Skinfaxi 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.