Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 29
hlaupunum en ég geri fastlega ráð fyrir því að hún nái lágmarki í 10.000 metrunum. Tvær stúlkur hafa þegar tryggt sér þátt- tökurétt í mótinu, þær Þórdís Gísladóttir í hástökkinu og Guðrún Arnardóttir í 100 metra grindahlaupi.“ Langtímamarkmið - A hvað leggur þú áherslu sem lands- liðsþjálfari? „Mitt hlutverk er að skipuleggja und- irbúning landsliðanna. Þar með vinn ég í raun miklu meira sem skipuleggjandi heldur en þjálfari einstaklinga. Ég þjálfa enga slíka nema í starfi mínu sem þjálfari HSK. Ég undirbý og skipulegg æfinga- búðir og keppnisferðir, reyni að afla fólki okkar þátttöku í mótum sem koma sér vel sem undirbúningur fyrir stórmótin og svo framvegis. Einnig skipulegg ég þjálf- unarmál allra aldurshópanna frá hendi Frjálsíþróttasambandsins. Ég er í hálfu starfi eins og það heitir, - fæ borgað fyrir hálft starf sem er síðan rniklu meiri vinna í reyndinni, - það vita þeir sem taka slíkt að sér. Ég legg áherslu á að allt það sem við höfum gert þessa mánuði sem ég hef verið landsliðsþjálfari sé unnið með lang- tímamarkmið í huga, - að langtíma- uppbygging sé að hefjast. ‘ ‘ Efnilegir unglingar - Lítur þú fram á bjarta daga í íslensk- um friálsíþróttum ? „Ég er mjög bjartsýnn. Við erum mjög vel stæð hvað varðar afreksfólk eins og er, en staðreyndin er sú að allt okkar besta fólk er í kringum þrítugsaldurinn. Við eigum aftur á móti mjög efnilega unglinga um tvítugt og þar fyrir neðan sem við bindum miklar vonir við og ætlum að leggja áherslu á að koma upp í afreks- mannahópinn á næstu árum. Til stendur að gera það markvisst og á faglegan hátt. Þetta er greinilega góður jarðvegur til að vinna úr fyrir næstu ár, góður hópur bæði þátttakenda og þjálfara út um allt land. Starf mitt byggist mikið á samstarfi við þjálfara hinna ýmsu félaga og sambanda vítt og breitt urn landið. Það hefur ekki staðið á jákvæðum viðbrögðum.“ - Þú starfar einnig á vegum HSK. ,,Þar annast ég þjálfun stórs hóps íþróttafólks, um 50 manns. Ég er með æfingar á Selfossi, Hvolsvelli og í Reykjavík á veturna en í sumar flyst starfsemin sem þar var upp í Mosfellsbæ. Þetta er sterkt lið á aldrinum 15 ára og upp úr. Við erum með margt afreksfólk og síðan unglinga sem eiga eftir að taka við af þeim eldri. Það er rík hefð fyrir frjálsum Þráinn Hafsteinsson. íþróttum á Suðurlandi og það er gott að vinna á þessu svæði.“ - Finnst þér áhuginn vera að aukast? ,,A vissum svæðum eins og Rangár- vallasýslu þar sern greinilega er mikill uppgangur um þessar mundir. Á Selfossi aftur á móti finnst mér heldur hafa dregið úr þátttökunni, þar er svo margt annað sem togar.“ Til framdráttar - Nú er búið að vígja nýju aðstöðuna á Laugardalsvellinum í Reykjavík. Fœr frjálsíþróttafólk nœgilega mikil afnot af honum eða eru þau oftakmörkuð? 100 m hlaup kvenna á vormóti HSK 1993. „Því miður hafa notkunarreglurnar ekki tekið mið af þörfum frjálsíþróttafólks sem skyldi en verið er að reyna að komast að samkomulagi um að unnt verði að nota þessa góðu aðstöðu eins og nauðsyn krefur. Ég efast ekkert um annað en það eigi eftir að ganga í gegn, það tekur bara smá tíma. Menn hafa ekki náð að tala nægilega vel saman um þetta að því er virðist. Nú, - ef þetta gengur ekki upp þá höfum við aðgang að mjög góðri aðstöðu í Mosfellsbæ þar sem okkur hefur verið tekið sérstaklega vel og af miklum velvilja hjá starfsfólkinu. Það sem háir okkur mest er að okkur vantar góða innanhússhöll, - ein slík með 200 metra braut og annarri nauðsynlegri aðstöðu væri á við 10 „tartanvelli“ utanhúss. - Mér er kunnugt um að aðstaða af þessu tagi er til athugunar í Hafnarfirði en nokkur ár munu líða áður en slíkt íþróttahús verður að veruleika.“ - Hvernig líst þér á Laugarvatn sem nœsta landsmótsstað, þú œttir að vera kunnugur aðstœðum þar. ,,Ég fullyrði að Laugarvatn sé besti staðurinn á landinu til þess að taka við landsmóti - þegar nýi völlurinn verður kominn og sú aðstaða sem honum tilheyrir. Þarna er allt sem til þarf. Ég vona bara að það takist að gera nauðsynlegar fram- kvæmdir í tæka tíð. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra hefur gefið vilyrði fyrir myndarlegu framlagi til þessa verkefnis og hefur hann sýnt málinu mikinn skilning. Ég er því sannfærður um að þarna verður kominn fyrsta flokks völlur að ári, sem á eftir að verða frjálsum íþróttum til mikils framdráttar á komandi árum.“ Skinfaxi 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.