Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 17
Hestaíþróttadeild Hrings á Dalvík: Mikil fjölgun í yngri flokkunum „Það er að lifna yfir starfinu núna, en að undanförnu hefur verið háifgerð deyfð í því,“ sagði Þosteinn Hólm Stefánsson formaður hestaíþróttadeildar Hrings, sem er eitt aðildarfélaga UMSE. Það var mikið um að vera á svæðinu við Dalvík, þegar Hringur var sóttur heim nú í vetrarlok. Daginn þann leiddu félagsmenn saman hesta sína á rennisléttum ísnunt og öttu kappi um hver væri dæmdur bestur gæðinga. Þarna voru saman komnir knapar á öllum aldri sem allir stefndu að sarna takmarki, að taka þátt í skemmtilegri keppni. Ekki spillti fyrir að hafna í verðlaunasæti. Félagsmenn hafa nú, ásamt fleirum, komið sér upp aðstöðu í félagshesthúsi í Hringsholti. í kjölfar þess hefur starfsemin tekið við sér. Að undanförnu hafa menn verið önnum kafnir við að undirbúa þátttöku í mótum sumarsins. Má þar nefna bikarmót Norðurlands, fjórðungsmót og Islandsmót, sem haldið verður á Akureyri. „Unglingastarfið hefur tekið miklum breytingum eftir að við fluttum í félagshúsið,“ sagði Þorsteinn. „Nú er allt á sama stað og miklu auðveldara að ná til hinna yngri. Þeim hefur fjölgað verulega að undanförnu og það þykir okkur mjög jákvæð þróun. Við höfum verið með námskeið fyrir þau og stefnum að því að undirbúa þau sérstaklega fyrir þátttöku í fjórðungs- mótinu og bikarmótinu.“ Þorsteinn sagði að nú yrði lögð áhersla á að halda áfram því uppbyggingarstarfi Þorsteinn Hólm Stefánsson formaður hestaíþróttadeildar Hrings á Dalvík. sem þegar væri hafið. Það hefði svo sannarlega sýnt sig, að það skilaði sér betur og fyrr en menn hefðu þorað að vona. „Það er mjög garnan að keppa og í sumar stefni ég á þátttöku í félags- mótinu og öðrum þeim mótum, sem ég kemst á,“ sagði Bergþóra Sigtryggs- dóttir, 13 ára, frá Helgafelli. Hún keppti á hryssunni Blædísi. Bergþóra kvaðst fara mikið á hestbak og hafa ntikinn áhuga á hestamennsku. Hún sagðist eiga tvo hesta, annar væri lítið taminn foli og hitt ekki keppnishross. Þess vegna hefði hún fengið hryssuna lánaða hjá frænda sínum til þess að geta tekið þátt. „Hesturinn minn heitir Sólmyrkvi og ég fékk hann í fermingargjöf,” sagði Rannveig Vilhjálmsdóttir, 14 ára hestakona frá Syðra-Garðshorni. Rannveig sagðist ríða mikið út, enda eins gott, þar sem hún ætti fimm hesta. Einn þeirra hefði hún fengið í afmælisgjöf, annan í fermingargjöf, eins og áður sagði og hina þrjá úr stóðinu heima hjá sér. í framtíðinni sagðist Rannveig stefna á að fara í bændaskólann á Hólum og verða síðan tamningamaður. Hann Agnar Snorri Stefánsson, 12 ára knapi frá Dalvík, var ekki í nokkrum vafa um hvað hann myndi leggja fyrir sig í framtíðinni. Hann sagðist ætla að verða hestamaður. Agnar Snorri á hestinn Topp, sem hann keppti á að þessu sinni. Þar að auki á hann tvö tryppi og tvo fullorðna hesta. Hann sagðist oft hafa keppt og krækt í verðlaunapening 4-5 sinnum. Skinfaxi 17

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.