Skinfaxi - 01.05.1993, Síða 9
muni og velta kannski einhverjum millj-
ónum, og þau sjá ekkert af þessu. Það eru
fleiri sambönd en við sem eru að berjast
við þetta sama vandamál.“
-En hvernig getið þið breytt þessu
viðhoifi?
„Við höfum alls ekki neina allsherj-
arlausn á takteinunum. En við ætlum að
fara í kynningarherferð í skólana, ásamt
félögunum. Þannig ætlum við að reyna að
ná unga fólkinu inn í félögin. Eins ætlum
við að fara út til félaganna, fara í starf-
semina með þeim og reyna að miðla hug-
myndum frá einu svæði til annars. Menn
horfa svolítið á ungmennafélögin í dag
sem eitthvert íþróttabákn. Það er ekki rétt.
Iþróttir eru af hinu góða, en það eru ýmsar
aðrar greinar líka, svo sem bridge, skák
eða leiklist. Það getur líka myndast kjarni í
kringum slíka starfsemi. Það er svolítið
gremjulegt að sjá á eftir góðum félags-
mönnum úr félögunum á svæðinu í ein-
hvern félagsskap á Akureyri, vegna þess
að þeir finna sig einfaldlega ekki í ung-
mennafélögunum. Við sjáum of mörg slík
tilfelli.
Við ætlum okkur að gera formönnum
félaganna heimsókn og ræða við þá. Það er
orðið mjög brýnt að ná einhverju jafnræði
milli sambandsins annars vegar og félag-
anna hins vegar.”
Myndband frá
unglingalandsmóti
Ef allt hefur gengið samkvæmt áætlun
þá er nú komið út, á vegum UMSE,
myndband frá unglingalandsmótinu, sem
haldið var á Dalvík.
,,Það voru teknar upp sjö eða átta
þriggja tíma spólur. Við erum að koma
þessu á eina eða tvær spólur og bjóða til
sölu. Við ætlum að gefa fólki kost á að
kaupa þetta. En við höfum það einnig í
bakhöndinni að geta útvegað ákveðna
kafla ef einstaklingar eða héraðssambönd
vilja það fremur. Við eigum nóg efni og
það er óþarfi að horfa á það í hillunum.
Við ætlum að halda verðinu á þessum
spólum eins mikið niðri og kostur er.”
Þá er núna verið að vinna upp
afrekaskrá UMSE. Er búið að vinna
„utanhússskrána” að mestu leyti og verið
að byrja á unnum afrekum innan húss.
Ekki hefur verið tímasett hvenær þessari
vinnu skuli ljúka, en Örn sagðist reikna
með að henni yrði lokið um áramót.
Ýmislegt fleira er á döfinni hjá UMSE
en hér verður látið staðar numið að sinni.
Iþróttastarf undir einum hatti
Það er mikill hugur í UMSE-mönnum
þessa dagana. Unglingalandsmót UMFÍ,
sem haldið var á Dalvfk á síðasta sumri,
hleypti auknum krafti í starfið. Nú er
ýmislegt framundan, svo sem
meistaramót í frjálsum íþróttum, sem
haldið verður nú í júlí.
Þá eru ýmsar skipulagsbreytingar
innan sambandsins uppi á borðinu, sem
einkum felast í sameiningu íþróttadeilda
einstakra félaga. Til dæmis hefur í
nokkuð mörg ár verið náið samstarf milli
Ungmennafélags Skriðuhrepps og
Möðruvallasóknar. Þessi tvö félög hafa
raunar rekið saman íþróttadeild og hefur
það samstarf þótt gefa góða raun.
Ungmennafélögin Framtíð, Æskan og
Arroðinn hafa nú fetað í fótspor
fyrrgreindra félaga og sameinað
íþróttastarf sitt í einni deild. Þau munu
keppa undir einu nafni á mótum UMFI.
íþróttafólk Umf. Vorboðans mun einnig
keppa innan vébanda hinnar nýstofnuðu
deildar.
Þetta samstarf er fyrst og fremst
hugsað í hagræðingarskyni, hvað
viðkemur þjálfun, ferðalögum á mót og
fleiru á þeim nótum. Reynslan hefur
verið sú, að þegar unglingar ná 13 ára
aldri, hætta margir þeirra þátttöku í
frjálsum íþróttum. Það eru kannski ekki
nema 4-5 í hverju félagi sem halda áfram.
Það segir sig sjálft að það er hlutfallslega
Frá stofnfundi hinnar sameiginlegu íþróttadeildar Umf Æskunnar, Umf. Arroðans og
Umf Framtíðar.
nijög dýrt að halda úti þjálfara fyrir
kannski 5 manns. Þá verður félagsstarfið
innan slíks hóps mjög lítið, þannig að
hætta er á að einstakir iðkendur gefist
hreinlega upp. Þess vegna er tilraunin
með sameiginlegt íþróttastarf félaganna
mjög áhugaverð og á vafalaust eftir að
skila góðum árangri.
Skinfaxi
9