Skinfaxi - 01.05.1993, Page 10
Iþróttamaður UMSE 1992:
Áhuginn ekkert
að minnka
-segir Snjólaug Vilhelmsdóttir
„Ég byrjaði 13 ára að stunda frjálsar
íjpróttir og hef gert það síðan.
Áhuginn er ekkert að minnka, alla
vega ekki enn sem komið er, “ sagði
Snjólaug Vilhelmsdóttir, frjáls-
íþróttakona og íþróttamaður UMSE
1992, þegar Skinfaxi leit inn til
hennar á Dalvík ekki alls fyrir
löngu.
Snjólaug hefur einkum æft 100 og 200
m hlaup og langstökk. Hún hefur náð
góðum árangri á mótum og oftar en ekki
hafnað í verðlaunasæti. í vetur tók hún
m.a. þátt í Islandsmeistaramótinu innan
húss. Þar keppti hún í 50 m hlaupi, 50 m
grindahlaupi og langstökki. I það skiptið
sigraði hún í síðasttöldu greininni. Á
mótinu fyrir 22ja ára og yngri varð hún svo
2. í langstökki, 2. í grindahlaupinu og vann
50 m hlaupið.
Á páskamóti UMSE sigraði hún í
kúluvarpi, langstökki án atrennu og
þrístökki án atrennu. Af þessu sýnishomi
má sjá, að hún lætur ekki sitt eftir liggja,
stúlkan sú, þegar íþróttirnar eru annars
vegar.
Stúdent í ár
Snjólaug stundaði í vetur nám í 4. bekk
Menntaskólans á Akureyri, sem þýðir að
hún setur upp hvíta kollinn nú í júní.
Skinfaxi óskar henni að sjálfsögðu til
hamingju með áfangann. Hún sagðist ekki
vera búin að ákveða hvað hún gerði næsta
vetur. Til dæmis kæmi vel til greina að
fara til útlanda sem au pair.
„Eg hef ekki enn ákveðið hvaða mótum
ég muni taka þátt í, í sumar. Það er
Islandsmeistaramót, bikarmót og fleira
sem ég mun líklega keppa í. Þá getur verið
að ég taki þátt í Norðurlandamóti unglinga.
Það var í Finnlandi í haust og ég fór
Frá verðlaunaafhendingu fyrir langstökk á MÍ innan húss í Baldurshaga, f.v. Sunna
Gestsdóttir, USAH, Snjólaug Vilhelmsdóttir, sigurvegari, UMSE, og Erna B. Sig-
urðardóttir, A, í 3ja sœti.
Snjólaug Vilhelmsdóttir íþróttamaður
UMSE 1992.
þangað. Það var mjög gaman og ég gæti
alveg hugsað mér að fara aftur.
En það er af nógu að taka og maður
verður að velja á milli. Sum mótanna verða
á sama tíma og ég er að útskrifast, svo það
er margra hluta vegna óvíst hvar ég
keppi.“
Að læra tonlist
En þótt flestir kynnu að halda að það
væri meira en nóg að vera í menntaskóla
og standa sig svo vel á íþróttasviðinu, sem
Snjólaug gerir, þá lætur hún ekki þar við
sitja. Hún hefur stundað nám í Tón-
listarskólanum á Akureyri og lært þar á
þverflautu. Hún vill þó ekki gera mikið úr
tónlistarnámi sínu, en segir, að það sé
„bara lítið, sem ekki taki að tala um, “ og
að hún hafi verið í þessu með vinkonu
sinni.
Snjólaug segir, að mikill íþróttaandi sé
ríkjandi á Dalvík. Einkum sé þó áberandi
áhuginn á fótbolta. Sjálf segist hún ekki
taka þátt í slíkum íþróttum því hún sé
„ekki mikil boltamanneskja.“
gRT Vó
10
Skinfaxi