Skinfaxi - 01.05.1993, Síða 12
Knattspyrnan alltaf vinsæl:
Erum aö bæta viö flokk-
um og fjölga æfingum
- segir Björn Friðþjófsson formaður Umf. Svarfdæla
Á Dalvík er að rísa myndarleg bygging, sem mun þjóna íþróttasvœðinu á staðnum. Ný
sundlaug er í sjónmáli, sem leysa mun þá gömlu afhólmi.
„Það er sígandi starf í kvenna-
knattspyrnunni. Það fór rólega af
stað með meistaraflokki, síðan
bættist við 3. flokkur og síðastliðið
sumar var svo 4. flokki bætt við.
Það er mikill áhugi, en það vantar
kannski fleiri og stærri verkefni fyrir
þær yngri. “
Þetta sagði Björn Friðþjófsson for-
maður Umf. Svarfdæla. Það er mikil
gróska í starfi félagsins um þessar mundir,
bæði hvað varðar íþróttir og félagsstarf
ýmiss konar.
,,Karlarnir láta sitt ekki eftir liggja í
knattspyrnunni, því þeir æfa í öllum
flokkum, nema 2. flokki,“ sagði Björn.
„Meistaraflokkurinn er í 3. deild, sem
stendur. Síðan er í gangi samstarf við
Ólafsfjörð um lið í 3. og 4. flokki karla.
Ef við ættum að hafa í lið í þeim
Þessa hressilegu stráka rákumst við á í
hinum vistlega skíðaskála, sem Skíðafélag
Dalvíkur hefur komið sér upp.
flokkum, þyrftu allir strákarnir á staðnum
að vera í fótbolta."
I 5., 6., og 7. flokki karla er inikill áhugi
og þangað koma krakkar af Arskógsströnd
til þess að æfa.
„Knattspyrnustarfið hefur verið að vefja
upp á sig. Við höfum verið að bæta við
fleiri flokkum, fjölga æfingum og lengja
æfingatímabilið hjá krökkunum,“ sagði
Björn. ,,Við stefnum nú að því að gera
starfið markvissara m.a. með gerð skipurits
um hvern flokk, þannig að þeir þjálfarar
sem taka við í vor viti nákvæmlega að
hverju þeir ganga og hafi lýsingu á
hverjum og einum strák sem æfir hjá
okkur.“
Frábær aðstaða fyrir
frjálsar
Vonir standa til þess að áhugi á iðkun
frjálsra íþrótta aukist verulega í næstu
framtíð vegna hinnar nýju aðstöðu, sem
tekin var í notkun í tengslum við
unglingalandsmót UMFÍ sem haldið var á
Dalvík sl. sumar.
„Við eigum mjög mikinn efnivið og við
vonumst til þess að sú mikla uppbygging
sem farið hefur fram á svæðinu virki
hvetjandi fyrir íþróttafólkið okkar,“ sagði
Björn.
I sumar, nánar tiltekið 24. júlí er
fyrirhugað að halda á Dalvík meistaramót
18 ára og yngri og 14 ára og yngri.
„Mér skilst það á þeim, sem til þekkja,
að reikna megi með 7-800 keppendum.
Það verða því alla vega yfir þúsund manns
sem heimsækja okkur þessa helgi, ef að
líkum lætur,“ sagði Björn. „Við leggjum
undir okkur alla skóla og aðrar þær
byggingar sem geta hýst fólkið. Það verður
vafalaust mikið um að vera hérna á Dalvík
þann tíma sem mótið stendur.“
12
Skinfaxi