Skinfaxi - 01.05.1993, Síða 13
Mikil gróska er í fótboltanum á Dalvík og kvennaknattspyrnan hefur eflst verulega að
undanförnu.
Körfuboltinn hefur numið
land
Körfubolti er einnig stundaður innan
félagsins. Hann hefur verið stundaður
síðastliðna tvo vetur og er verulega
vaxandi áhugi á honum.
„Körfuboltinn er í uppsveiflu í landinu
og við höfum ekki farið varhluta af því
frekar en aðrir, sem betur fer vil ég segja.
Þetta er sú boltaíþrótt sem hentar okkur
best þegar horft er til stærðarinnar á
íþróttahúsinu,“ sagði Björn.
Sundaðstaða hefur verið fremur
bágborin á Dalvík. Það stendur nú til bóta,
því verið er að byggja nýja sundlaug, sem
verður mun stærri en sú garnla, eða 25 x
12.5. Húsið sjálft er vel á veg komið og er
gert ráð fyrir að gengið verði frá því að
utan í suntar. Samkvæmt áætlun verður
það tekið í notkun næsta vor.
Sundlaugin verður við hliðina á
íþróttasvæðinu og kjallari hennar verður
nýttur sent aðstaða fyrir svæðið. Þarna
verður einnig aðstaða fyrir félagsstarf-
semina.
Líflegt félagsstarf
Innan Umf. Svarfdæla er nokkuð líflegt
félagsstarf. Spilakvöld eru vinsæl, svo og
herrakvöldin. Þá hefur félagið efnt til
spurningakeppna milli fyrirtækja á staðn-
um og staðið fyrir ýmiss konar skemmt-
anahaldi. I sumarlok er ævinlega efnt til
mikillar uppskeruhátíðar, þar sem íþrótta-
fólk, sem hefur skarað fram úr í ástundun
æfinga og keppnunt, fær viðurkenningu.
Sjálfur hefur Björn lifað og hrærst í
íþróttum frá því að hann var polli. Hann
var í handbolta, fótbolta, á skíðurn og í
frjálsum og þekkir því vel til þeirra rnála af
eigin raun.
„Það var mikið handboltalíf hérna ‘70-
’80. En þegar það gekk ekki að spila í
húsinu hérna, vegna srnæðar þess, þá
lagðist þetta smárn sarnan niður. Þá tók
knattspyrnan við og höfum við einbeitt
okkur að henni. Það er ánægjulegt, að þeir
sem eru hættir að spila eru rnargir kornnir í
starf hjá okkur.
Mín skoðun er sú, að bæjarfélag eins og
Dalvík, sem telur ekki nema 1500 manns,
beri ekki ótakmarkaðan fjölda
íþróttagreina. Með rnjög mörgunt greinum
er orðin svo ntikil samkeppni um krakkana
og forystufólkið, að það er hætt við að það
verði hálfkák alls staðar.
En það er alltaf pláss fyrir fleiri hendur
og þeir eru fjölmargir, sem hafa lagt okkur
lið, til dæmis við framkvæmdir á
íþróttasvæðinu okkar.“
Verð 250 kr. stk.
með áletrun
ERÐLAUNAPENINGAR
stærð 42 mm.
Einnig mikið úrval af bikurum
og öðrum verðlaunagripum.
Pantið tímanlega.
GULLSMIÐIR
Sigtryggur & Pétur
Brekkugötu 5 - Akureyri
S. 96-23524 - Fax 96-11325
Skinfaxi