Skinfaxi - 01.05.1993, Side 19
Olafur G. Einarsson menntamálaráðherra:
Veit hve mikilvægt
landsmót UMFÍ er
„Ég styð þetta verkefni vegna þess,
að í fyrsta lagi veit ég hve mikilvægt
landsmót UMFÍ er. Það er mikilvæg-
ur þáttur í starfi ungmennaféiag-
anna og er til eflingar íþróttalífinu í
landinu. “ sagði Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra vegna fyrir-
hugaðs landsmóts UMFI á Laugar-
vatni 1994.
„Þetta er mikið fyrirtæki, sem þarna er
ráðist í af miklum dugnaði. Framtak af
þessu tagi er til mikillar fyrirmyndar. Við
hér í ráðuneytinu viljum leggja okkur fram
um að lagfæra á staðnum það sem þarf, til
að mótshaldið geti orðið sem myndarleg-
ast.
í öðru lagi veiti ég málinu stuðning
minn vegna þess, að mér er það áhugamál,
að gengið verði í það af alvöru, að ljúka
uppbyggingu á Laugarvatni. Þar er Iþrótta-
miðstöðin mikilvægur þáttur og því þarf
þarna fullkominn íþróttavöll. Sundlaugin
er komin, svo og glæsilegt íþróttahús. Við
erum að ganga frá áætlun um allan staðinn
og lagfæringu þeirra rniklu bygginga sem
þarna eru, en þær eru margar hverjar orðn-
ar þreytulegar. Þetta er semsagt liður í
þessari uppbyggingu, sem ég stefni að, að
lokið verði við á fjórum árum eða svo.“
Ákveðið hlutverk
- Nú hafa þœr rnddir heyrst, að stokka
beri upp á Laugarvatni og flytja t.d.
íþróttakennaraskólann til Reykjavíkur.
Hver er þín skoðun á því?
„Ég held að það sé ekki raunhæft. Það
þarf að ætla Laugarvatni ákveðið hlutverk.
Menn hafa, sumir hverjir, efasemdir um að
menntaskólinn muni lifa þar. Ég held að
hann muni gera það og ég tel mikilvægt að
halda Laugarvatni sem myndarlegu skóla-
setri í framtíðinni. Til þess að svo verði,
þarf að gera staðnum eitthvað til góða.“
- Eg veit að margajysir að vita hvort þú
hafir einhvern tíma starfað innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar?
„Það hef ég ekki gert. En meðan ég var
sveitarstjóri í Garðahreppi, sern ég varð
1960, var Umf. Stjarnan stofnað. Ég studdi
það eins og ég framast gat, allan þann tíma
sem ég hafði afskipti af sveitastjórnarmál-
um, sem var í 18 ár. Að því leyti hef ég
stutt við bakið á hreyfingunni eins og ég
hef getað.
Mér finnst starf hreyfingarinnar vera til
mikillar fyrirmyndar. Ég veit að þarna er
unnið af miklum myndarskap og ósérhlífni
á sviði íþrótta, landverndar, stuðnings við
íslenska framleiðslu og margt fleira. Mér
þykir vænt um að svona hugsunarháttur
skuli ennþá vera til.
Ég á þær óskir, ungmennafélagshreyf-
ingunni til handa, að hún vaxi og dafni hér
eftir, sem hingað til.“
Ársþing UDN:
Ýmsar breytingar á lögum
Ársþing Ungmennasambands Dala-
manna og N-Breiðfirðinga var haldið 13.
mars sl. í Búðardal. Á þinginu var mikið
rætt um lög sambandsins, sem höfðu
verið í endurskoðun. Ymsar breytingar
voru samþykktar, þar á meðal kjör
stjórnar til tveggja ára í senn. Þá voru
samþykktar minni breytingar á reglu-
gerðum urn mótahald.
Gísli Gunnlaugsson í Búðardal hlaut
framfara- og félagsmálabikarinn. Gísli er
formaður tafl- og bridgedeildarinnar og
hefur verið mjög ötull í því starfi. Þá var
íþróltamaður ársins 1992 valinn,
Finnbogi Harðarson, frjálsíþróttamaður.
Formaður UDN var kjörinn Ingimar
Sigurðsson, sem tekur við af Ingibjörgu
Jóhannsdóttur. Ritari er Kristján Jó-
hannsson, gjaldkeri Sigrún Halldórsdóttir
og varaformaður er Þorgrímur Guð-
bjartsson. Meðstjórnandi er Eyjólfur
Sturlaugsson.
Skinfaxi
19