Skinfaxi - 01.05.1993, Blaðsíða 20
Laugarvatn:
Hefur upp á allt að bjóða
Rætt við Kjartan Lárusson framkvæmdastjóra landsmóts UMFÍ á Laugarvatni 1994
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Nú
er ár þangað til landsmót UMFÍ
verður haldið að Laugarvatni. Mótið
sem þar var haldið árið 1965 er
þeim sem þar voru enn í fersku
minni, þrátt fyrir að tæpir þrír
áratugir séu liðnir síðan. Bæði var
mótið afar fjölmennt og ákaflega
skemmtilegt fyrir margra hluta sakir
auk þess sem veðurblíðan var með
ólíkindum mótsdagana.
Framkvæmdastjóri landsmótsins 1994
hefur þegar verið ráðinn, - Kjartan
Lárusson, sem er að góðu kunnur fyrir
þátttöku sína í ýmsum íþróttagreinum, svo
sem glímu, og mjög góðan árangur sem
þjálfari í henni hjá HSK. Kjartan er
Laugvetningur og þekkir því aðstæður
mjög vel, - sem kemur sér vel þegar í
mörg horn þarf að líta.
Tíðindamaður Skinfaxa brá sér austur
að Laugarvatni til þess að fá upplýsingar
um mótsstaðinn, fyrirhugaðar fram-
kvæmdir og undirbúning en nú standa fyrir
dyrum umfangsmiklar endurbætur á
aðalleikvanginum.
Völlurinn endurbættur
Kjartan verður þetta árið í hlutastarfi.
Hann fylgist náið með framkvæmdum á
staðnum og annast annan nauðsynlegan
undirbúning. 1 sumar fylgist hann með
forkeppninni í knattspyrnu en í henni
munu taka þátt yfir 20 lið karla og 14 lið í
kvennaflokki. I karlaflokki munu 8 lið fá
heimild til þátttöku á landsmótinu og 6 í
kvennaflokki. Forkeppnin fer fram í
samráði við félögin og sérgreinastjóra sem
skipaðir hafa verið.
Kjartan mun á næstunni verja drjúgum
tíma í að kanna fjáröflunarleiðir lands-
mótsins og hrinda fjáröflun af stað í
samráði við landsmótsnefnd. Þegar nær
dregur mun starfið aukast og verður líkast
til 24 tímar á sólarhring áður en yfir lýkur.
- Hann var fyrst spurður hvað fram-
kvœmdum við íþróttavöllinn liði.
„Völlurinn verður endurbættur og
verður þá orðinn í hópi þeirra bestu og
fullkomnustu hér á landi. I sumar verður
skipt um jarðveg í honum að hluta til og
tyrft yfir. Það eina sem verður eftir í haust
er að malbika hlaupabrautirnar og setja
gerviefnið yfir en það verður gert næsta
vor. Aætlaður kostnaður er um 50
milljónir. Þá verður aðstaðan hér á
Laugarvatni orðin fullkomin og ekkert til
fyrirstöðu að halda hér frábært landsmót.
Þá verður jafnframt búið að gera staðinn
þannig úr garði að
Iþróttamiðstöðin getur tekið við öllum
landsliðum í æfingabúðir í hvaða grein
sem er. Það er einn kosturinn við Laug-
arvatn að hér næst sá andi í liðunum sem
hingað til hefur oft verið reynt að ná með
því að fara með þau í æfingabúðir
erlendis.“
Allt innan seilingar
- En upp á hvað hefur Laugarvatn að
bjóða sem landsmótsstaður?
„Allt. Hér erurn við með nýtt og
fullkomið íþróttahús sem meðal annars er
unnt að skipta í þrjá sali með þremur
löglegum körfuboltavöllum auk þess sem
það rúmar um 500 áhorfendur. Að auki
höfum við gamla íþróttahúsið til umráða.
Sundlaugin er líka ný, fullbúin keppnislaug
með sex brautum. Hér höfum við jafnframt
einn besta malarvöll landsins þar sem
knattspyrna karla mun fara fram. Líkast til
munum við fara með hluta knatt-
spyrnunnar yfir að Utey, þar sem leikið
verður á grasi. Loks bjóðum við upp á
malbikaðan handboltavöll. Keppni í brids
og skák mun fara fram í kennslustofum
héraðsskólans eða barnaskólans. Við
munum jafnframt bjóða upp á gistiaðstöðu
innanhúss fyrir um 1000 manns, eða um
þriðjung keppenda og fararstjóra, í skóla-
stofum og heimavistum.
Tjaldbúðir fyrir fjölskyldur og kepp-
endur verða rétt sunnan við aðalleik-
vanginn. Almennar tjaldbúðir, fyrir þá sem
ekki taka þátt í mótinu sjálfu en koma
hingað sér til dægradvalar og vilja
skemmta sér jafnframt á kvöldin, eru innan
við þorpið.
Við gerum ráð fyrir að gestir og
þátttakendur á landsmótinu verði á bilinu
15-20.000 en hér voru um 25.000 manns á
mótinu 1965. Við þurfum að fjölga
bílastæðum umtalsvert og munum leggja
tún í þorpinu og næsta nágrenni undir þau.
Stærsti kosturinn við Laugarvatn er að
20
Skinfaxi