Skinfaxi - 01.05.1993, Qupperneq 25
%
60-
Mynd 3: Þátttaka í íþróttafélögum í 8. og 10. bekk
54,5
□ 8. bekkur
| 10. bekkur
24,1
20,4
Aldrei
1x í viku eða sjaldnar 2-3x í viku 4x í viku eða oftar
% Mynd 4: Þátttaka I íþróttafélögum i 8. bekk
60-
50-
40-
30-
44,7
f------
32,9
-18-
yhi
11
| Piltar
Q Stúlkur
24,9
23,5
24,2
16,9
Aldrei
1x í viku eða sjaldnar
2-3x í viku
4x í viku eða oftar
á mynd 1. Á myndinni sést að um það bil
77% þeirra stunda íþróttir einu sinni í viku
eða oftar og urn 52% stunda íþróttir þrisvar
sinnum í viku eða oftar. Nokkur munur er
á þátttöku pilta og stúlkna. Þennan mismun
á þátttöku kynjanna má fyrst og fremst
rekja til þess að mun fleiri piltar en stúlkur
stunda íþróttir fimrn sinnum í viku eða
oftar, eða 32,2% pilta á móti 20,9%
stúlkna. Einnig má sjá að 27,4% stúlkna
stunda svo til aldrei íþróttir utan skóla-
leikfimi, en aðeins 18,2% pilta. Hins vegar
er svipaður fjöldi pilta og stúlkna sem
stunda íþróttir 1-4 sinnum í viku.
Á mynd 2 sést íþróttaástundun nemenda
í 10. bekk utan skólaleikfimi. Iþrótta-
ástundun nemenda í 10. bekk fylgir svip-
uðu mynstri og íþróttaástundun nemenda í
8. bekk, með tveimur undantekningum.
Annars vegar er um að ræða minni
íþróttaástundun og hins vegar örlítið meiri
kynjamun á íþróttaástundun nemenda í 10.
bekk. Um 67% nemenda stunda íþróttir
einu sinni í viku eða oftar og unt það bil
44% stunda íþróttir þrisvar sinnum í viku
eða oftar. Þetta er tæplega 10 prósentustiga
pninni íþróttaástundun en hjá nemendum í
8. bekk.
Þessi munur á íþróttaástundun neinenda
í 8. og 10. bekk stafar annars vegar af því
að íþróttaástundun fer vaxandi, þannig að
fleiri nemendur stunda nú íþróttir í 8. bekk
en áður. Hins vegar stafar þessi munur af
því að nokkuð er urn það að unglingar
hætta í íþróttum í 9. og 10. bekk. Erfiðara
er að útskýra kynjamuninn, en gögn okkar
sýna að heldur er algengara að stúlkur
hætti í íþróttum á þessum aldri en piltar.
Meginniðurstaða þessara niðurstaðna er þó
hin mikla þátttaka unglinga í íþróttum.
Þátttaka unglinga í
íþróttafélögum
A mynd 3 má sjá þátttöku nemenda 8.
og 10. bekkja í íþróttum með íþrótta-
félögum. Á myndinni sést að rúmlega 61%
nemenda á 8. bekk stunda einhverjar
íþróttir með íþróttafélögum og 44,5%
þeirra stunda íþróttir tvisvar sinnum í viku
eða oftar. í 10. bekk stunda hins vegar
45,5% nemenda einhverjar íþróttir með
íþróttafélögum og 34% stunda íþróttir
tvisvar sinnum í viku eða oftar. Af þessu
má sjá að munurinn á íþróttaþátttöku með
íþróttafélögum í 8. og 10. bekk er heldur
meiri en munur á almennri íþróttaástundun
nentenda þessara bekkja, en þó varla
umtalsverður.
Til samanburðar við þessa þátttöku í
íþróttafélögum má nefna að sú frjálsa
félagastarfsemi sent næst kernur, það er að
segja skátastarfið, er með 7,7% þátttöku í
8. bekk og 5,8% í 10. bekk. Þessi sainan-
burður sýnir svo að ekki verður um villst
hversu mikil þátttakan í íþróttafélögum er,
en hún er langumfangsmest í öllu
æskulýðs- og tómstundastarfi.
Þegar litið er á það hvernig þátttaka í
íþróttum með íþróttafélögum skiptist eftir
kyni, kemur í ljós að mun fleiri piltar
stunda þær íþróttir en stúlkur. Á mynd 4
sést að 67,1% pilta í 8. bekk æfir eitthvað
með íþróttafélögum og 49,1% pilta æfir
tvisvar í viku eða oftar. Á sama hátt kemur
í ljós að 55,3% stúlkna í 8. bekk æfa
eitthvað með íþróttafélögum og 40,4%
stúlkna æfa tvisvar í viku eða oftar. Af
þeim sem æfa eitthvað er munurinn mestur
á þeim piitum og stúlkum sem æfa fjórum
sinnunt í viku eða oftar með íþrótta-
Skinfaxi
25