Skinfaxi - 01.05.1993, Page 32
Skógarganga ÚIA erfastur liður í starfinu.
annast veitingasölu. Þetta er algjör nýjung
og enginn veit hvernig þetta mun takast.
Framtakið er mjög athyglisvert.”
Fáir tilbúnir til starfa
Þegar Jóhannes er spurður að því hvort
hann sé ánægður með þann farveg sem
ungmennafélags- og iþróttahreyfingin sé í
um þessar mundir, segir hann að sér finnist
við mega líta um öxl. Hann kveðst hafa
verið að blaða í gegnum sögu hreyfing-
arinnar af ákveðnu tilefni.
„I gamla daga var bæði verið að hugsa
um að þjálfa líkama og sál. Til þess að það
mætti verða gerðu menn sér grein fyrir því
að þá þyrftu þeir að gera sitt nánasta
umhverfi byggilegra og meira aðlaðandi.
Það vildu þeir gera með ýmsu móti en ekki
síst á þann hátt að halda uppi umræðu um
slíka hluti sem gætu komið sveitar-
félögunum til góða. Margt af þessu var
framkvæmt. Þetta finnst mér hafa gleymst.
Við erum alltof upptekin af því að fara
fram á að aðrir útvegi okkur peninga vegna
þess að okkur finnst það sem við erum að
gera svo gott. Til þess að afla starfi okkar
fjár þá þurfum við að leggja sjálf eitthvað
af mörkum og hafa jákvæð áhrif á
samfélag okkar um leið. Þetta getum við
gert á ýmsan hátt. Ég veit að mörg félög
hafa Iagað til í kringum bæi, gróðursett og
þar fram eftir götunum, - og hlotið þóknun
fyrir framlag sitt um leið og þau hafa
stuðlað að bættu umhverfi. Þetta eru hlutir
sem hafa varanlegt gildi og eiga eftir að
sjást um ókomna framtíð. Ungmenna-
félögin geta einnig látið meira til sín taka í
félags- og líknarmálum.
Það stendur hins vegar félagsstarfi fyrir
þrifum nú um stundir hversu fáir eru
reiðubúnir að taka að sér forystustörf.
Þegar kemur að því að á að fara að kjósa í
stjórn einhvers félags, reynir fólk að koma
sér undan því, - þess vegna mæta ekki
nema fáir, - og oftast sami fámenni
kjarninn, á aðalfundi til dæmis. Ég held
því fram að í hreyfingu okkar sé til fullt af
fólki sem er tilbúið til að láta meira til sín
taka en treystir sér ekki til þess einhverra
hluta vegna. Þessum þætti höfum við ekki
sinnt nægilega vel. Enda er það staðreynd
að það er alveg sama hvar við berum niður
í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni,
alls staðar virðast vera vandræði að fá fólk
til að takast á við störf í stjórnum, nefndum
og ráðum.”
Ársþing UMSE:
Afreksmannasjóður efldur
Á 72. ársþingi UMSE sem haldið var í
febrúar síðastliðnum var meðal annars
ákveðið að efla afreksmannasjóðinn
verulega. Sem kunnugt er rennur hluti
lottótekna í sjóðinn. Ákveðið var að auka
hlutfallið sem í hann fer og skerða sem
því nemur fjárhæðina til sambandsins
sjálfs og félaganna.
Á þinginu var talsvert fjallað um
unglingalandsmót UMFÍ á Dalvík, og
hugleitt hvað menn gætu lært af
reynslunni. Þá var rætt um meistaramótið
í frjálsum íþróttum sem haldið verður á
Dalvík í júlf næstkomandi.
UMSE hefur fram til þessa haldið sín
mót á vellinum í Árskógi, en á því verður
nú breyling í kjölfar hinnar miklu
uppbyggingarstarfsemi sem fór fram á
Dalvík fyrir unglingalandsmótið. UMSE
hefur nú gert samning við Umf. Dalvíkur
um afnot af vellinum til næstu tíu ára.
Á þinginu var kjörinn nýr formaður,
Örn Þórisson, sem tók við af Þuríði S.
Árnadóttur. Aðrir f stjórn eru Jóhanna
Gunnlaugsdóttir, varaformaður, Sigur-
gísli Sveinbjörnsson gjaldkeri og Alda
Stefánsdóttir, ritari. Meðstjórnandi er
Sigurður Sveinn Antonsson.
Á þinginu veitti Sæmundur Runólfs-
son framkvæmdastjóri UMFI Bimi Frið-
þjófssyni formanni Umf. Svarfdæla
starfsmerki UMFÍ. Félagsmálabikarinn
hlaut að þessu sinni Umf. Svarfdæla. Það
hlaut einnig Sjóvábikarinn, sem veittur er
því félagi sem hlýtur flest stig á mótum
innan héraðs. Styrki út menningarsjóði
hlutu Umf. Reynir fyrir Rokkhátíð, Umf.
Árroðinn fyrir Revíu og Umf. Skriðu-
hrepps fyrir uppsetningu á Bör Börssyni.
Ákveðið var að veita UMFÍ 50.000 króna
styrk vegna nýrrar þjónustumiðstöðvar.
32
Skinfaxi