Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 6
Göngugarpurinn Stefán Jasonarson: Verst að geta ekki talað við spóana Stefán tekur við viðurkenningu frá Markúsi Erni Antonssyni borgarstjóra. Einrt þeirra atburða ársins 1993, sem koma til með að geymast á spjöldum sögunnar, er 500 kílómetra ganga Stefánar Jasonarsonar í Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi í tilefni af Ári aldraðra. Hann var eldhress að vanda, þegar Skinfaxi sló á þráðinn til hans austur í Vorsabæ, skömmu eftir að hann kom heim úr göngunni miklu. Hann var fyrst spurður hvenær hugmyndin að henni hefði fæðst. „Fyrsta flugan í þessa veru var í tilefni af því að við hjónin áttum 50 ára hjú- skaparafmæli á þessu ári, - það var fyrsti hvatinn til þess að gera eitthvað. Þegar ég las svo í blöðunum að árið væri tileinkað öldruðum þá var teningunum kastað, - þetta var kjörið tækifæri til að gera eitthvað sem þjónaði góðum málefnum.“ - Hvað er þér minnisstæðast þegar þú lítur til baka eftirþessa löngu göngu? Þegar göngugarpurinn var kominn á leiðarenda flutti hann þátttakendum Gvm í Norden ávarp. „Það er vandi að svara þessu því að alla leiðina, - frá upphafi til enda, var þetta alveg eftirminnilegt og dásamlegt. Ég get í raun ekki skilgreint það hvar hlutirnir hafi verið mestir og bestir, - en móttökurnar voru hvarvetna alveg stórkostlegar. Það var eins og allir þekktu mig og allir voru boðnir og búnir að til labba rneð mér. Þetta var feykileg upplifun. Ég kynntist landi og þjóð, og fósturjörðinni, á allt annan hátt heldur en ntaður gerir með því að hanga í bíl, sitjandi undir stýri og mega ekki vera að því að líta til hægri né vinstri. Við þessar aðstæður gat ég hlustað á fuglana, virt fyrir mér kindurnar í haganum og þar fram eftir götunum. Ég sagði það stundum við samferðamenn mína að verst væri að geta ekki talað við spóana sem sátu á girðingar- staurum við veginn og fylgdust rneð mér.“ - Hvernig var gangan skipulögð? „Það var fyrirfram ákveðin áætlun sem ég fór eftir út í ystu æsar. Alla leiðina fylgdi mér bfll, sem Glóbus hf. lagði til án endurgjalds og var fermingarbróðir minn, Sigursteinn Ólafsson, bílstjóri. Fram- kvæmdastjóri göngunnar var einn ágætur ungmennafélagsfélagi, Sigurður Péturs- son. Hann var alltaf í símasambandi við bílstjórann og lagði á ráðin urn hvar við ættum að gista. hvenær við ættum að vera þar og svo framvegis. Fólkið mætti stundvíslega þegar mín var von og gekk í lið með mér. Þjónustan, í hvaða formi sern hún var, brást aldrei. Ég hafði ekki áhuga á því að ganga hringveginn allan tímann, og þaðan af síður hann allan, því að hann er yfir 1400 kílómetrar. Ég vildi alls ekki fara í förin hans Reynis Péturs, sem var með allt annað erindi. Ég vildi manna síst fara að taka frá honum þann heiður sem hann sýndi með þessari göngu. Ég valdi þann kostinn að fara aðra leið og oftast utan við hringveg- inn, um byggðakjarnana víðs vegar með- frarn ströndum landsins. Það gaf þessari ferð minni gildi að mínum dómi. Undan- tekningalaust kornu hópar fólks á móti mér, sumir göngugarpar gengu alll upp í 5 og I0 kílómetra. Það var á stefnuskránni hjá okkur að heimsækja eldra fólkið sérstak- lega á hverjum stað, ýmist í íbúðir aldraðra eða þá í dvalarheimili aldraðra. Það taldi ég mjög ánægjulegt. Þeir sem höfðu heilsu til gengu ávallt með mér svolítinn spöl. Hin- urn, sem ekki áttu heimangengt, tók ég i höndina á og spjallaði lítillega við þá. Þarna átti sér stað mikil gagnkvæm kynn- ing og alls staðar gladdi hún bæði fólkið á 6 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.