Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 34
Hrafnaflóki á Vestfjörðum: Ætlum að auka vetrarstarfið Á félagssvæði Héraðssambandsins Hrafnaflóka á Vestfjörðum, sem nær yfir Barðaströnd, Bíldudal, Patreksfjörð og Tálknafjörð, hefur mikið verið að gerast á sviði íþróttanna á meðal yngri sem eldri. Formaður sambandsins er Krístín Gísla- dóttir á Patreksfirði, sem hefur haft í ýmsu að snúast í sumar ásamt framkvæmda- stjóranum Valdintar Gunnarssyni. Kristín var tekin tali og beðin um að segja undan og ofan af starfseminni vestra. „Mesta lífið er yfir sumartímann eins og víða annars staðar, en við erum að reyna að auka vetrarstarfið. Hér eru stundaðar frjálsar íþróttir, fótbolti og lítils háttar sund, - einkum þó á Tálknafirði þar sem er 25 metra laug. Á veturna höfum við reynt að halda innanhússmót í frjálsum íþróttum. Það gekk ágætlega í fyrra þó að við hefðum þurft að fresta því þrisvar vegna veðurs. I fyrra héldum við einnig körfuboltamót innanhúss.“ Aðspurð um hvort ekki væru langflest skólabörn á svæðinu innan vébanda íþrótta- og ungmennafélaganna sagði Krístín að svo mætti heita. „Hér er svo mikill áhugi. Á veturna er það þó körfu- boltinn sem mest er stundaður og hafa Patreksfirðingar leikið í annarri deildinni, þar sem þeir hafa teflt fram þrem liðum. Þetta hefur einnig verið að aukast á Tálknafirði þar sem líka er komið gott hús.“ Að sögn Kristínar hafa allir staðirnir verið með þjálfara á launum á sumrin. „Það er æft upp á hvern einasta dag.“ Aðstaðan nokkuðgóð Hvað aðstöðuna varðar sagði Kristín að hún væri víðast viðunandi og sums staðar allgóð. Best væri hún á Bíldudal þar sem frjálsíþróttavöllurinn væri orðinn mjög góður. „Á undanförnum árum höfunt við lagt frarn mikla vinnu við að byggja upp vell- ina á svæðinu. Það má segja að þau verk- efni hafi verið okkur nóg og óhætt sé að kalla þau fósturbörnin okkar. Hér vestra er ekki mikið undirlendi, og eru vellirnir jafn- vel staðsettir uppi í fjallshlíðum eins og hér á Patreksfirði. Á Bíldudal er völlurinn utan við bæinn þar sem hann var settur niður á sléttu og góðu landi - en breyta þurfti þýfðum móum í sléttan grasvöll. Það var því mikið starf sem þurfti til.“ - En livernig hefur gengið að fá fólk til starfa ? „Það gengur ágætlega nú orðið, þótt alltaf sé erfitt að fá fólk til að fara í stjórn og einkunt þó að taka að sér formanns- embætti. Eg var til dæmis formaður í íþróttafélaginu bér síðastliðin fimm ár þangað til ég var leyst af hólmi nú í vor. Mér fannst erfitt að vera formaður bæði sambandsins og félagsins hér á Patró. Mér finnst ég vera búin að vera í fríi síðan.“ - Hvað með fullorðna fólkið, tekur það líka þátt í íþróttum? „Það er eins og hér hafi orðið hugar- farsbreyting síðastliðið haust. Þá fór fólk að stunda almenningsíþróttir miklu meira en áður, eins og sund og skokk. Það varð áberandi aukning.“ Islenska karlalandsliðið í handknattleik notar eingöngu Rehband hitahlífar Trönuhrauni 8 220 Hafnarfirði Sími 91 -652885 Opið frá 8 til 17 K L M verðlaunagripir, er ört vaxandi þjónustufyrirtæki meö glæsilega en ódýra verðlaunagripi fyrir íþróttafélög og félagasamtök. • Litprentaður bæklingur • Yfir 650 titlar á skrá • Ágröftur 15-20 kr. pr. staf • íþróttagreinamerki fyrir allar greinar íþrótta. Við sendum hvert á land sem er og erum ekkert mikið lengra frá þér en telefaxið eða síminn. Þess vegna er hægt að panta verðlaunin heima í stofu. K L M VERÐLAUNAGRIPIR Siglufirði, sími 96-71866 (virka daga kl. 9-18) hs: 96-71133 FAX 96-71399 34 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.