Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 8
Stefán og Guðfinna ásamt dætrunum Unni og Kristínu.
koma á fót víðavangshlaupi út um mýrar
og móa, undirbúa það og taka síðan þátt.
Við vorum tregir til, höfðum enda öðrum
hnöppum að hneppa en iétum þó til leiðast.
Hann lét okkur meðal annars vaða tvívegis
yfir vatnsfall austan við Haukadalsskólann.
Þetta var síður en svo skemmtileg braut,
mosaþýfi, mýrar og alls konar ófæra. Ég
hafði það af að verða fyrstur í mark og
fékk gullpening fyrir íþróttaafrek.
Oðru sinni fékk ég silfurpening fyrir
skautahlaup en stórvirki hef ég ekki unnið.
Reyndar fékk ég eitt sinn siifurbikar til
eignar eftir að hafa þrisvar sinnum tekið
þátt í Víðavangshlaupi Islands. Það var.
ekki fyrir það að ég hafi verið fyrstur í
mark, heldur vegna þess að ég var elsti
keppandinn. Ég hefði þess vegna getað
verið tvær vikur á leið í markið, - bikarinn
hefði ég fengið samt.“
- Að lokum Stefán, hvernig myndir þú
vilja sjá ungmennafélagshreyfinguna þró-
ast íframtíðinni?
„Ég myndi vilja sjá hana þróast þannig,
að félögin sköpuðu æskunni sem besta að-
stöðu til hreyfingar, íþróttakeppni og til
þess að geta sinnt sfnum áhugamálum, sem
eru náttúrlega ótal mörg. Það er fyrir mestu
að láta ekki þetta nútímaglingur af ýmsum
toga ráða ferðinni. Það er grátlegt að vita
til þess að stór hópur barna sé talinn vera
heimilislaus götubörn. Þetta er blettur á
íslensku þjóðfélagi. Hvað haldið þið svo
að þau kosti öll þessi hryðjuverk sem eru
að færast smám saman til okkar íslend-
inga? Ég held að starfsgleðin, lífsfyilingin
og bjartsýnin þurfi að ráða ríkjum hjá ung-
mennafélagshreyfingunni og í fjölskyldu-
lífinu og vel að merkja, - næsta ár er ár
fjölskyldunnar. Nú er verk að vinna bæði
fyrir ungmennafélögin, kvenfélögin og öll
ágæt félög þessa lands.“
Stefán ásamt fleiri góðum gestum á
íþróttaleikvanginum í Mosfellsbœ á 20.
Landsmóti UMFI.
Framkvæmdastjóri Landsmóts '94
Þann 15. september sl. tók Ólafur
Örn Haraldsson við starfi fram-
kvæmdastjóra Landsmóts 1994 á
Laugarvatni. Ólafur er ungmennafé-
lagshreyfingunni að góðu kunnur.
Hann starfaði lengi með HSK og
keppti undir merkjum þess á þrem
landsmótum.
Olafur er uppalinn á Laugarvatni. Hann
tók stúdentspróf frá ML, síðan BS-próf í
landafræði frá HI og MA-próf í byggða- og
skipuiagsfræði frá háskólanum í Sussex í
Englandi. Sfðan stundaði hann nám við
Iþróttaháskólann í Sonderborg í Danmörku
og síðan í Þýskalandi.
Ólafur Örn Haraldsson
Árið 1973 réðst hann sem ráðgjafi til
Hagvangs, og varð framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins 1980-1985. Þá varð hann
framkvæmdastjóri innanlandsdeildar ferða-
skrifstofunnar Útsýnar til 1987 og síðan
framkvæmdastióri Gallup á íslandi frá
1988.
Samhliða þessum störfum hefur Ólafur
fengist við kennslu, kynningarstörf, blaða-
mennsku, gerð útvarpsþátta og ýmis félags-
störf.
Hann er kvæntur Sigrúnu Jakobsdóttur
Richter og eiga þau þrjá syni, Harald Örn,
Örvar Þór og Hauk Stein.
8
Skinfaxi