Skinfaxi - 01.08.1993, Page 17
Sunna Gestsdóttir USAH.
á árinu og einokuðu öll mót sumarsins í
100 og 200 m hlaupum. Anægjulegar
framfarir urðu hjá öllum þessum stúlkum á
þessum vegalengdum og greinilegt er að
við búum vel að framtíðarhlaupurum á
meðal kvennanna. Svanhildur Kristjóns-
dóttir Á, var sú eina sem ógnaði þessum
fjórum, er hún komst upp á milli þeirra í
200 m hlaupi á MI. - En Svanhildur ein-
beitti sér að 400 m hlaupinu með ágætis ár-
angri og vann öll sín hlaup gegn íslenskum
keppinautum þar til í Bikarkeppni FRÍ. Þá
kom Snjólaug, sá og sigraði og sýndi að
þarna er kannski hennar framtíðargrein.
Breiddin í spretthlaupum kvenna hefur
aldrei verið meiri og efnilegar ungar stúlk-
ur í öllum yngri flokkunum eru á leiðinni
upp.
Millivegalengdir og
langhlaup kvenna
Fríða Rún Þórðardóttir Aftureldingu
sýndi mikið öryggi á hlaupabrautinni. Hún
náði góðum tímum og stóð sig vel þegar
mest lá við, einsog á Smáþjóðaleikunum,
Evrópubikarkeppninni og Evrópumeistara-
mótinu. Martha Ernstdóttir ÍR náði lág-
marki í þátttöku í 10.000 m hlaupi á HM
en gaf ekki kost á sér til keppni vegna
veikinda sem hrjáðu hana í allt sumar. Hún
setti hins vegar Islandsmet í hálfu mara-
Snjólaug Vilhelmsdóttir UMSE
Stökkgreinar
kvenna
Þórdís Gísladóttir HSK ber enn eitt árið
höfuð og herðar yfir aðra stökkv- ara
Iandsins og stökk 1,87 m innanhúss í há-
stökkinu og varð sænskur meistari. Hún
náði sér ekki á strik utanhúss fyrr en á HM
í Stuttgart þar sem hún stökk 1,84 metra og
varð í 24. sæti af 37 keppendum. Hún náði
þar með sínum besta árangari á HM, OL
og EM. Þórdís sigraði í hástökki á Smá-
þjóðaleikunum og Reykjavíkurleikunum.
Þóra Einarsdóttir kom næst Þórdísi í há-
stökkinu með 1,71 m, þar á eftir kemur
fjöldi efnilegra stúlkna með 1,60-1,65 m.
Vonandi stöðvast ekki árangur þeirra við
þær tölur eins og svo oft hefur gerst í
gegnum árin.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir HSK ein-
okaði þrístökkið frant eftir sumri og marg-
bætti Islandsmetið. Hún varð fyrst kvenna
til að stökkva lengra en 12 metra er hún
stökk 12,11 m í Evrópukeppninni í Kaup-
mannahöfn. Guðrún Arnardóttir sýndi
mikla hörku þegar hún sigraði Sigríði og
jafnaði íslandsmet hennar í hörku einvígi
þeirra á milli í Bikarkeppninni.
Snjólaug Vilhelmsdóttir náði besta ár-
angrinum í langstökkinu á árinu, 5,74 m,
sem verður að teljast frekar dapur árangur,
sem lengsta stökk íslenskrar konu á árinu.
Margar stúlkur, yngri sem eldri, geta
stokkið 5,30-5,60 með frekar lítilli fyrir-
höfn. Ef stökkva á lengra, verður að gjöra
svo vel að æfa langstökk af alvöru, - það
nægir ekki að stökkva bara einhvem veg-
inn úti í gryfju.
þoni. Martha á vafalaust eftir að ná sér á
strik á hlaupabrautinni á næsta ári.
Margrét Brynjólfsdóttir UMSB náði
sínum besta tíma í 800 m hlaupi á árinu en
hún var ansi mistæk á brautinni. Fjöldi
ungra og efnilegra stúlkna er að bæta sig
en vantar herslumuninn til að komast niður
á tíma sem skera sig úr. Laufey Stefáns-
dóttir Fjölni sýndi mest öryggi þeirra yngri
en Unnur Bergsveinsdóttir UMSB sýndi
einnig góða takta.
Grindahlaup kvenna
Guðrún Arnardóttir sýndi geysilegar
framfarir á árinu og kom Islandsmetinu í
100 m grindahlaupi niður í 13,39 sek, sem
er aðeins rúmu sekúndubroti frá Norður-
landametinu. Hún hljóp einnig á ágætum
tíma í 400 m grindahlaupi, 59,64 og sýndi
með því hlaupi að sú grein er jafnvel ekki
síðri kostur en stutta grindahlaupið fyrir
hana. Guðrún kom mest á óvart allra frjáls-
íþróttakvenna í sumar og ánægjulegt er að
verða vitni að stórum framfarasporum þar
sem keppnisfólk nær að nýta það sem í því
býr.
Ungu stúlkurnar bættu sig einnig veru-
lega í 100 m grindahlaupinu. Sólveig
Björnsdóttir Á hljóp á 14,52 sek, Þuríður
Ingvarsdóttir á 14,78 sek, Snjólaug Vil-
helmsdóttir á 14,69 og Sunna Gestsdóttir á
14,78. Þuríður náði næstbesta tímanum í
400 m grindahlaupi og Valdís Hallgríms-
dóttir frá Akureyri kom nú sterk fram á
keppnisvöllinn aftur og náði þriðja besta
tíma ársins í 400 m grindahlaupi.
Margrét Brynjólfsdóttir UMSB.
Skinfaxi
17