Skinfaxi - 01.08.1993, Síða 18
Þórdís Gísladóttir HSK.
Kastgreinar kvenna
Toppárangurinn í kastgreinunum var
mun slakari í ár en í fyrra, því að hvorki
Iris Grönfeldt né Guðbjörg Gylfadóttir
æfðu af fullum krafti. Ungu stúlkurnar
sýndu hins vegar að bjart er framundan í
kastgreinunum.
Vigdís Guðjónsdóttir bætti stúlknamet
Irisar Grönfeldt og kastaði spjótinu 48,02
m og sigraði mjög óvænt á Smáþjóðaleik-
unum. Halla Heimisdóttir bætti sinn besta
Sigríður Anna Guðjónsdóttir HSK.
árangur í Evrópukeppninni í Kaupmanna-
höfn í kringlukasti og Hanna Lind Olafs-
dóttir, aðeins 15 ára gömul, hafði kastað
Þuríður Ingvarsdóttir HSK.
lengst tæpa 40 metra þegar þetta er skrifað.
Halldóra Jónasdóttir, Guðbjörg Viðarsdótt-
ir, Sigrún Hreiðarsdóttir ásamt Brigittu
Guðjónsdóttur, sem nú kom aftur sterk til
leiks í spjótkastinu, settu mark sitt á mót
sumarsins.
Fjölþrautir kvenna
Þuríður Ingvarsdóttir og Sunna Gests-
dóttir stóðu upp úr með árangur í sjöþraut.
Sunna setti stúlknamet og sýndi að hún
getur náð langt í þessari grein ef hún snýr
sér að henni. Þuríður keppti allt árið með
slitið liðband í fæti og kom það fyrst og
fremst í veg fyrir bætingu á árinu. Bæði
Sunna og Þuríður sýndu fjölhæfni sína í
verki í Bikarkeppni FRÍ. Sunna sigraði í
öllum einstaklingsgreinum sínum, 6 að
tölu, og Þuríður varð önnur í sínum þremur
greinum. Báðar höfðu úrslitaáhrif á gengi
sinna liða í boðhlaupunum. Kristín Mark-
úsdóttir UMSB og Jóhanna Jensdóttir
Brigitta Guðjónsdóttir UMSE.
UBK eru efnilegar sjöþrautarstúlkur sem
fróðlegt verður að fylgjast með á næsta ári.
Spretthlaup karla
Einar Þór Einarsson A var yfirburðar-
rnaður í 100 m hlaupi í sumar og hljóp
mörg póð hlaup þó ekki tækist honum að
bæta Islandsmetið eða ná lágmarki fyrir
HM. Margir ungir og efnilegir sprett-
hlauparar létu verulega að sér kveða í sum-
ar og skal Haukur Sigurðsson A nefndur
sérstaklega ásamt Jóhannesi Má Marteins-
syni ÍR, Atla Guðmundssyni UMSS og
Helga Sigurðssyni UMSS. Þessir strákar,
ásamt Einari Þór, eiga væntanlega eftir að
láta mikið að sér kveða á næstu árum.
Gunnar Guðmundsson FH komst nú
sæmilega í gegnum tfmabilið, án meiðsla,
og hafði nokkra yfirburði í annars slöku
gengi 400 m hlaupara á árinu. Ólafur Guð-
mundsson Selfossi, Egill Eiðsson UBK,
18
Skinfaxi