Skinfaxi - 01.08.1993, Side 22
Landsmót á Laugarvatni 1994:
Framkvæmdir komn-
ar á fullan skrið
Undirbúningur fyrir landsmótshald að
Laugarvatni á næsta ári er nú kominn á
fullan skrið. Framkvæmdir við aðalleik-
vanginn eru hafnar og miðar þeim vel.
Samið hefur verið við verktakana Jón og
Tryggva á Hvolsvelli sem annast fram-
kvæmdir við fyrri áfanga vallarins, sem er
jarðvinnsla. í haust hefur verið unnið við
að taka upp úr vellinum og brautunum.
Stefnt var að því að tyrfa hann fyrir
veturinn og undirbúa hlaupabrautirnar
undir malbik og gerviefni. Einnig verður
lagt gerviefni á aðhlaupsbrautir. Þá hefur
verið unnið að útboði og samningi við
verktaka um frágang brautanna og vall-
arins í heild, svo sem girðingavinnu o.fl.
Fullkomið
íþróttasvæði
„Á undanförnum árum hefur verið gert
mikið átak í uppbyggingu á Laugarvatni,“
sagði Reynir Karlsson íþróttafulltrúi
ríkisins og formaður skólanefndar íþrótta-
kennaraskólans á Laugarvatni í stuttu
spjalli við Skinfaxa. „Ef litið er til
íþróttamannvirkja á staðnum þá hefur
verið gert stórátak varðandi þau. Fyrst má
nefna íþróttahúsið, malarvöllinn og loks
sundlaugina. Nú er síðasta stóra átakið
hafið, sem er endurbygging íþróttavallar
að Laugarvatni. Menntamálaráðherra
hefur gengið vel fram í þessu máli og
tryggt það að verkið færi af stað. Og nú
hefur allt verið sett í gang til þess að ljúka
megi því fyrir landsmótið, sem við
vonumst til að verði glæsilegasta landsmót
ungmennafélaganna til þessa. Síðasta
landsmót á Laugarvatni var mjög
glæsilegt, en ætla mætti að það yrði enn
betra núna með bættri aðstöðu. En þess
ber að geta, að þarna er ekki verið að búa
til einnota glæsivöll fyrir eitt mót. Þetta er
það sem hefur vantað á staðinn vegna
Iþróttakennaraskólans og Iþróttamiðstöðv-
arinnar. Fyrirhugað er að ganga þannig frá
vellinum að þar sé aðstaða fyrir allar
frjálsíþróttagreinar og fullnægjandi keppn-
isaðstaða.“
Ungmennafélagarfjölmenntu á dögunum að Laugarvatni og unnu þar í sjálfboðavinnu við
að flytja þökur, sem teknar höfðu verið af aðalleikvanginum og leggja þœr á svœði í
nágrenninu.
I haust var unnið við að taka upp úr vellinum og hlaupabrautunum. I framhaldi af því
hófst undirbúningur að útboði áfrágangi á brautunum og vellinum í heild.
22
Skinfaxi