Skinfaxi - 01.08.1993, Síða 26
Þórólfur Þórlindsson og Þorlákur Karlsson:
íþróttir unglinga
- og tengslin við sjálfsvirðingu þeirra og líkamsímynd
Gott sjálfstraust, jákvæð sjálfsmynd og
sjálfsvirðing virðist vera gott veganesti í
lífsbaráttu einstaklingsins ef marka má
rannsóknir síðustu áratuga. Þannig sýna
þær að fólk sem ber mikla virðingu fyrir
sjálfu sér (self-esteem) þjáist síður af kvíða
og þunglyndi en þeir sem hafa litla sjálfs-
virðingu (Battle, Jarratt, Smit og Precht,
1988), því gengur betur í námi og er yfir-
leitt heilsuhraustara (Rosenberg, 1965;
Rosenberg, Schooler og Schoenbach,
1989; Workman og Beer, 1989). Þá hafa
rannsóknir á unglingum sýnt að áfengis-
neysla tengist sjálfsvirðingu, þannig að lítil
sjálfsvirðing og mikil áfengisneysla fara
saman (Workman og Beer, 1989; Yanish
og Battle, 1985). Einnig hefur verið sýnt
fram á að sjálfsvirðing unglinga tengist af-
brotum (Rosenberg og Rosenberg, 1978;
Rosenberg ofl., 1989).
Rétt er að taka það fram að ekki er ljóst
hvernig orsakatengslum er háttað hér.
Þannig er ekki unnt að fullyrða að lítil
sjálfsvirðing beinlínis orsaki þunglyndi eða
leiði til afbrota. Bandarísku fræðimennirnir
Rosenberg, Schooler og Schoenbach
(1989) hafa reynt að meta orsakatengsl
sjálfsvirðingar við nokkra þætti á þremur
sviðum í lífi unglinga. Fræðimennirnir
telja að frammistaða í skóla hafi áhrif á
sjálfsvirðingu en ekki öfugt. Þeir komast
einnig að þeirri niðurstöðu að sambandið
milli sjálfsvirðingar unglinga og afbrota
þeirra fari eftir þjóðfélagshópum. 1 sumum
tilfellum ýtir lítil sjálfsvirðing undir afbrot
en í öðrum tilfellum eykst sjálfsvirðing við
afbrot. Þá telja Rosenberg og samstarfs-
menn hans (1989) að áhrifasamband milli
sjálfsvirðingar og þunglyndis sé gagn-
kvæmt.
Þetta dæmi er rakið hér til þess að sýna
fram á hve erfitt er að álykta um orsaka-
tengsl sjálfsvirðingar og annarra þátta. Þá
bætir það ekki úr skák að öll umræða um
sjálfsvirðingu og sjálfsmynd einstaklings-
ins vísar til flókinna fyrirbæra sern erfitt er
að mæla. Þannig er sjálfsvirðing einstak-
lings samofin fjölda annarra þátta í vitund
hans um sjálfan sig, líkama sinn og útlit,
svo og ýmsa aðra eiginleika sína.
Hér á eftir munum við reyna að varpa
nokkru ljósi á tengsl sjálfsvirðingar og
Mynd 1: Hlutfall nemenda í 8. bekk sem eru með mikla sjálfsvirðingu (self-esteem) fer
hækkandi með aukinni íþróttaiðkun (r = 0,19)
Svotilaldrei l-2xíviku 3-4x í viku 5x f viku eða oftar
fþróttaiðkun
þátttöku í íþróttum. Þá gerum við einnig
grein fyrir niðurstöðum sem tengjast við-
horfum unglinga til líkama síns eða það
sem oft hefur verið nefnt líkamsímynd
(body-image).
Rannsóknir á tengslum sjálfsvirðingar
Mynd 2: Hlutfall nemenda í 8. bekk sem eru með mikla sjálfsvirðingu fer hækkandi með
hærra mati á eigin getu í íþróttum (r = 0,33)
%
Neðan meðallags í meðallagi Góður/góð Meðal bestu
Mat á eigin getu í íþróttum
26
Skinfaxi