Skinfaxi - 01.08.1993, Blaðsíða 35
Kjartan Bergmann Guöjónsson:
Minntist 70 ára starfs
í hreyfingunni
- og gaf út veglega bók um íslenska glímu
Nýlega kom út bókin „íslensk glíma og
glímumenn," eftir Kjartan Bergmann Guð-
jónsson. Bókin er 435 blaðsíður að stærð og
vönduð að allri gerð. í henni er fjallað um
íslensku glímuna sem þjóðaríþrótt, uppruna
hennar og iðkun. Sagt er frá stofnun einstakra
glímufélaga og Glímusambands Islands.
Einnig er fjallað um Ólympíuleikana 1908 og
1912 og glímusýningar erlendis. Einn kafl-
anna er tileinkaður Jóni Þorsteinssyni
fimleika- og glímukennara og ferðum hans
með glímusýningarflokka erlendis. Þá er sagt
frá Íslandsglímunni 1906-1991 og handhöf-
um Grettisbeltisins. Loks er gerð grein fyrir
iðkun glímunnar í einstökum landshlutum og
fjallað um þekkta glímumenn. Fleira mætti
nefna af efnisþáttum bókarinnar, en hér
verður látið staðar numið. Þess skal getið að
bókin er prýdd fjölda mynda.
Sjötfu ár í hreyfingunni
Kjartan er ungmennafélagshreyfingunni að góðu kunnur fyrir
störf sín í þágu hennar. Hann gekk í Ungmennafélag Staf-
holtstungna þegar hann var aðeins 12
ára gamall. A hann á þessu ári 70 ára
afmæli sem ungmennafélagi. Hann átti
síðar eftir að gegna stjórnunarstörfum
fyrir félagið og varð formaður þess
aðeins 19 ára.
Glíman hefur verið Kjartani hug
leikin frá blautu barnsbeini og var hann
ekki nema 7 ára þegar hann fór að æfa
þá íþrótt. Arið 1942 gerðist hann glímu-
kennari á vegum Iþróttasambands
Islands og fræðslumálastjórnarinnar og
kenndi glímu bæði í skólum og íþrótta-
og ungmennafélögum víða um land. Á
þessum glímuferðum sínum kynntist
Kjartan mörgum gömlum glímumönn-
urn og aflaði sér fróðleiks um íslenska
glímu, sem lesendur bókarinnar fá nú
að njóta góðs af nú.
Eins og fyrr sagði hefur Kjartan
gegnt trúnaðarstörfum fyrir ýmis íþróttasamtök í landinu, og var
m.a. framkvæmdastjóri ÍSÍ um skeið og síðar fyrsti formaður
Glímusambands Islands.
ISLENSK GLIMA
OG
GLÍMUMENN
Kjarlan Bcrfímann
(Juðjónsson
Skinfaxi
35