Skinfaxi - 01.08.1993, Qupperneq 37
Á ungbændaráðstefnu í Noregi:
Fróðleg ferð og
skemmtileg
Skriðjökulseftirlíkingin í jöklasafninu. Brúðurnar eru klœddar fornum og nýjum útbúnaði
til jöklaklifurs og sjá má aftan á mann sem er að ganga inn í „jökulinn. ”
Eirtn afþáttum í starfi Ungmenna-
félags Islands er samskipti þess við
systurfélög sín á Norðurlöndum, sem
fara að mestu leyti fram innan NSU,
Nordisk Samorganisation for
Ungdomsarbejde. Einn þáttur þeirra
samskipta er Norræn ungbænda-
ráðstefna sem haldin er ár hvert til
skiptis á Norðurlöndunum. Þetta árið
var hún haldin í Noregi um mánaðar-
mótin maí-júní. Þarna mættu
fulltrúar frá Danmörku, Finnlandi og
Svíþjóð, auk Noregs og íslands.
Ráðstefnan byggirá fyrirlestrum um
ákveðin efni og skoðunarferðum. Að
þessu sinni voru fyrirlestrarnir um
„lifandi byggðir“ og „byggðastefnu.“
íslenskir þátttakendur í ferðinni á
ráðstefnuna sem haldin var í Breim í
Noregi voru undirritaður, Sigurður Aðal-
steinsson bóndi í Vaðbrekku og formaður
UÍA og Einar Óli Petersen bóndi Álftár-
tungukoti, Mýrum í Borgarfirði suður og
formaður Ungmennasambands Borgar-
fjarðar. Fararstjóri var Sæmundur Run-
ólfsson framkvæmdastjóri Ungmennafélags
íslands.
Flogið var frá Keflavík til Osló 26. maí.
Þaðan var tekin lest og lá leiðin norður eftir
Guðbrandsdalnum, sem er fallegur og
gróskumikill, þrátt fyrir að nyrst í honum sé
úrkoma með því minnsta sem þekkist í
heiminum eða um 240 millimetrar á ári.
í Otta fórum við, ásamt fleiri ráðstefnu-
gestum, af lestinni í rútu yfir og gegnum
fjallgarð til vesturstrandarinnar, meðal
annars í gegnum þrjú samliggjandi jarð-
göng, fjögurra til sex kílómetra löng hvert.
Á þeirri leið fórum við fram hjá nokkurs
konar Möðrudal þeirra Norðmanna, eða því
býli sem hæst er yfir sjó í Noregi 1200
metrum yfir sjávarmáli. Þar var enn snjór
yfir öllu.
Frændur í snjókasti
Ekki vakti snjórinn sérstaka athygli
okkar íslendinganna eins og skandina-
vískra frænda okkar. Þeir notuðu tækifærið
og fóru í snjókast, meðan við Frónbúarnir
sátum í rútunni og horfðum á, enda ný-
komnir úr hraglandanum heima og ástæðu-
laust að velta sér upp úr snjónum þarna
meðan hvítasunnuhretið geisaði heima á
Islandi.
í fjörðunum á vesturströndinni er Breim,
þar sem ráðstefnan var haldin. Bjuggum
við á gömlu sveitahóteli meðan við dvöld-
um þar.
Á milli fyrirlestra var farið í skoð-
unarferðir. Meðal annars var listasafn
heimsótt, skoðuð vinnuaðstaða og íveru-
staður Nikolai Astrup, sem var frægur
norskur listmálari, er dó úr asma og
lungnabólgu árið 1928. Er heimili hans
haldið við líkt og Nonnahúsi og á síðsta
áratug var byggt hús yfir verk hans á sama
stað. Þess má geta til fróðleiks, að nýlega
seldist málverk eftir hann í London á
rúmlega 35 milljónir íslenskra króna. Þarna
sáum við meðal annars félagsfána tveggja
ungmennafélaga, sern Astrup hafði málað
upp úr síðustu aldamótum.
Einnig var skoðað sláturhús, þar sem
slátrað var nautum, sauðfé og svínum. Þetta
var nýlegt og fullkomið hús, þaðan sem
varan fór eingöngu fullunnin, í formi loft-
tæmdra vöðva. Hefðbundnar pylsur, bjúgu
og kjötfars var þar líka að sjá, ásamt steikt-
um hamborgurum og áleggi alls konar. Og
þarna gilti sama um alla kjötvöru, ekkert
fór út fyrir hússins dyr, nema í neytenda-
pakkningum. Þetta þýðir að öll úrvinnsla er
heima í héraði og skapar þar atvinnu. Þarna
er nánast allt kjöt unnið ferskt, en ekki fyrst
óunnið. Athygi vakti, að allt sauðfé var rúið
áður en því er slátrað.
/ jöklasafni
Norskt jöklasafn skoðuðum við, sem
opnað var 1991. Það stendur skammt frá
skriðjökli, með sýn til hans. Þarna er sýnt
flest sem viðkemur jöklum á einfaldan en
fróðlegan hátt í rúmgóðum sölum innan
húss. Meðal annars má sjá líkan af skrið-
jökli sem hægt er að ganga í gegnum með-
an hljóðin í honum, bæði vatnsniður og
marr, þegar jökullinn hreyfist, eru leikin af
segulbandi. Alls konar útbúnað til jökla-
ferða var þarna að sjá, bæði gamlan og
nýjan. Einnig var sýnd kvikmynd um jökla-
og fjallaklifur. Utlínulíkan af mammút með
Skinfaxi
37