Skinfaxi - 01.12.1993, Qupperneq 7
Þingfulltrúar stóðu upp og þökkuðu Pálma vel unnin stöifmeð lófataki.
Úttekt á framtíð og stöðu
hreyfingarinnar
Þá samþykkti þingið að fela stjórn
UMFI að skipa nefnd sem fjalla skal
um framtíð og stöðu ungmennafélags-
hreyfingarinnar, þar með fræðslu- og
útbreiðslumál. Á 39. þingi UMFÍ skal
liggja fyrir lokaskýrsla frá nefndinni.
Skal hún innihalda langtímamarkmið
og áfangamarkmið fyrir ungmenna-
félagshreyfinguna til 2007, ásamt til-
lögum um það hvernig markmiðunum
skuli náð. Á þinginu var Sigurður
Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi særndur
Heiðursfélagakrossi UMFI, en hann
var framkvæmdastjóri samtakanna í 16
ár, á einhverjum mesta uppgangstíma
þeirra. Þá var Reynir Karlsson íþrótta-
fulltrúi rfkisins sæmdur Gullmerki
UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu
samtakanna.
Nýr formaður, Þórir Jónsson, óvarpar
þingið.
Unglingalandsmót hjá
USAH
Á þinginu var endanlega gengið frá
reglugerð fyrir landsmótið næsta sum-
ar. Þá var samþykkt að skipa nefnd til
að endurskoða landsmótsreglugerðina
fyrir komandi landsmót. Einnig var
samþykkt reglu»erð fyrir unglinga-
landsmót UMFI. Samþykkt var að
næsta unglingalandsmót verði á félags-
svæði Ungmennasambands Austur-
Húnvetninga, USAH, árið 1995.
Miklar umræður urðu unt umhverf-
ismál, nauðsyn þess að efla íslenska
framleiðslu svo og um lýðveldisafmæl-
ið, svo eitthvað sé nefnt. Þingið sam-
þykkti að hvetja stjórn UMFÍ lil að
finna verðugt verkefni til að vinna að á
50 ára afmæli lýðveldisins á næsta ári.
Er vakin athygli á því mikilvæga hlut-
verki sem UMFI gegndi í sjálfstæð-
isbaráttunni í byrjun aldarinnar. Þá lýs-
ir þingið yfir miklum áhyggjum vegna
þess slæma atvinnuástands sem nú rík-
ir. Atvinnuleysi er einn mesti bölvald-
ur sem ungt fólk getur lent í og leiðir
oft til mikillar ógæfu. Þingið skorar á
stjórnvöld, sveitastjórnir og aðila
vinnumarkaðarins að leita allra leiða til
að efla atvinnu að nýju með því að
veita meira fé til nýsköpunar í atvinnu-
lífi og reyna allar aðrar sparnaðarleiðir
áður en gripið er til uppsagna starfs-
fólks.
Pólmi Gísktson sœmdi Sigurð Geirdal Heiðursfélagakrossi UMFl.
Skinfaxi
7