Skinfaxi - 01.12.1993, Síða 11
kvatt og hún lokað dyrunum ákvað ég
að líta nú ofan í vagninn til þess að sjá
hvernig barnið liti út. Þá kom það
óvænta í Ijós, það var ekkert barn í
vagninum!“
Engar stökkbreytingar
- Hvernig sérð þú fyrir þér að
gengum við í hús og seldum. Þegar við
bönkuðum upp á í húsi við Kársnes-
brautina kom kona til dyra en barna-
vagn var fyrir framan. Mér datt í hug
að vænlegt væri til árangurs við söluna
að að dást að barninu hennar og segi
við hana: „Mikið átt þú fallegt barn!”
Þetta virtist virka vel því konan keypti
af okkur tvo miða. Þegar við höfðum
ungmennafélagshreyfmgin þróist í
framtíðinni?
„Ég sé engar stökkbreytingar fyrir
mér. Ég held að við þurfum að halda
áfram að vinna þeim málum brautar-
gengi, sem ég hef þegar nefnt. Nauð-
synlegt er að hreyfingin leiti stöðugt
nýrra leiða til að koma hugsjónum
sínum í framkvæmd og virkja sem
- Ertu ánægður með þessi ár þegar
þú lítur til baka?
„Ég er geysilega ánægður með
þennan tíma. Þetta hefur verið stór
hluti af lífi mínu mjög lengi. Ég held
mér hafi aldrei þótt þetta leiðinlegt, þó
að alltaf geti komið upp einhver mál
sem valdið geti óánægju um stund-
arsakir. ‘ ‘
- Hvernig œtlar þú nú að nota þann
tíma, sem þú hefur aflögu utan vinnu-
tímans?
„Ég er ekki búinn að átta mig á því
alveg ennþá. Eitthvað fæ ég nú að gera
fyrir hreyfinguna. Ég er meðal annars í
landsmótsnefndinni og ennþá í stjórn
norrænu ungmennafélaganna auk þess
sem ég sit í nokkrum nefndum öðr-
um.“
- Eru ef til vill einhvers konar rit-
stöifá döfinni?
„Ekki ritun endurminninga að
minnsta kosti. Ég fékkst að vísu aðeins
við skriftir þegar ég var um tvítugt og
fékk birtar nokkrar smásögur. Ég hef
einnig leikið mér að því að setja saman
vísur við ýmis tækifæri.“
- Nú hlýtur margt eftirminnilegt og
skemmtilegt að hafa drifið á daga þína
í þessu staifi?
„Það er vissulega margt eftirminni-
legt í huganum, ekki síst í tengslum
við landsmótin. Ég á erfitt með að
benda á eitthvað eilt sem er eftirminni-
legast, þau hafa öll eitthvað sérstakt
við sig sem gerir þau frábrugðin öðrum
mótum. Ég hef stundum sagt söguna af
því þegar við tveir félagarnir í Breiða-
bliki vorum að selja miða í happdrætti
sem íþróttasambandið gekkst fyrir um
tíma, líklega var þetta 1965 eða ‘66. Þá
Unnið að húsakaupum UMFÍ í Fellsmúlanum.
Félögum í UMFl fjölgaði um 25.000 í formannstíð Pálma.
flesta. „Eflum íslenskt“ og fósturbörn-
in eru mál sem gengið hafa mjög vel.
Einnig skal nefnt verkefnið: „Tökum á
- tökunt til“ þegar 8000 ungmennafé-
lagar hreinsuðu meðfram 600 kíló-
metrum af vegum landsins. Þetta var
einnar helgar átak árið 1989 og var
talsvert mikið í kringum það. Mér
hefur oft verið sagt, meðal annars af
sjoppueigendum út unt allt land, að
þetta átak hal'i breytt hugarfari fólks
mikið. Það er kannski kominn tími til
að taka aftur upp mál af þessu tagi.
Göngudagurinn, sem farið er að dofna
yfir núna, hefur þó víða haldið velli.
Hugmyndin var aldrei að hann yrði
eilífur, frekar í þá veru að við hæfum
þennan leik sem fólk gæti síðan haldið
áfrarn með á hverju ári. Ég man meira
að segja hvenær hugmyndin fæddist,
þá var ég á gönguferð uppi í Hengli
árið 1980. í upphafi var gert ráð fyrir
að skrifaðar yrðu leiðarlýsingar í
tengslum við gönguferðirnar. Þetta var
dálítið gert fyrst og eru nokkrar þeirra
til hjá þjónustumiðstöðinni.“
Skinfaxi
11